19. júní


19. júní - 19.06.1989, Side 62

19. júní - 19.06.1989, Side 62
Hver man ekki eftir þeim tnerku atburðum er gerðust síðla sumars 1988 er hátt í þúsund baráttuglaðar íslenskar konur tóku sér ferð á hendur til að sœkja norrœnt kvennaþing sem haldið var í Osló. Þessar harðgerðu og duglegu íslensku konur létu það ekki aftra sér þó reynt vceri að hnýta íþœr og gera grín að því sem þœr voru að gera enda vissu þœr að það sýnir aðeins vanmátt þeirra sem reyna að gera gys á annarra kostnað. Ráðstefna þessi var vel sótt af öllum Norðurlöndunum og hið mikla framboð á efni sem konur höfðu tekið saman og fluttu þar var hreint ótrúlegt. Islenskar konur vöktu töluverða athygli á kvennaþinginu annars vegar vegna þess hve þœr mœttu margar miðað við íbúatölu landsins og hins vegar vegna þess hve mikill kraftur og baráttugleði fylgdi þeim í öllum uppákomum þeirra. HÖFUNDUR / GUÐRÚN STELLA GISSURARD. Einn hópur íslenskra kvenna vakti sérstaklega athygli í Noregi en það var BSRB hópurinn svokallaði. Þ.e. hópur kvenna sem sótti ráðstefnuna á vegum Bandalags starfsmanna ríkis og bæja. BSRB stóð fyrir nokkurs konar revíu þarna úti undir leikstjórn þeirra Brynju Benediktsdóttur og Guðrúnar Alfreðsdóttur sem aftur fylgdi hópnum til Oslóar og leik- stýrði honum þar. Revía þessi fjall- aði um líf kvenna á tuttugustu öld- inni og þær breytingar sem átt hafa sér stað í þjóðfélaginu. Gegnum gangandi var í revíunni sú mikla vinna sem þjóðfélagið leggur konum á herðar m.a. vegna allra þeirra um- önnunarstarfa sem þær vinna, oftast ólaunuð, ásamt vinnu utan heimil- anna á lægstu launakjörum sem þekkjast. Já, kröfurnar eru miklar sem gerðar eru til nútíma kvenna, þær eiga að vera góðar mæður og húsmæður, fallegar og veltilhafðar eiginkonur og helst á framabraut í námi og starfi. Ég kom að máli við þær Guðrúnu Arnadóttur, framkvæmdastjóra BSRB og samstarfskonu hennar Sig- urveigu Sigurðardóttur til að forvitn- ast um það hvernig BSRB hefði fylgt kvennaþinginu eftir en fundir hafa verið haldnir á vegum samtakanna í BSRB húsinu að Grettisgötu. Síðan ræddi ég við Hjördísi Þorsteinsdóttur hjá Bandalagi kvenna í Hafnarfirði en hún er ein af þeim konum sem staðið hafa fyrir opnu húsi í fram- haldi af kvennaþingi í Hafnarfirði. Ég spurði þær Guðrúnu og Sigur- veigu hvort þeim fyndist kvenna- þingið hafa gert eitthvert gagn og hvað þeim fyndist um annað kvenna- þing sem nú er til umfjöllunar hjá norrænu ráðherranefndinni. Þær töldu báðar að kvennaþingið hefði verið til mikils gagns fyrir þær konur er fóru á Nordisk Forum, þær væru meðvitaðri um sín kjör og ákveðnari að láta ekki alltaf í minni pokann. Til væru dæmi um konur sem komið hefðu á skrifstofu BSRB á Grettis- götu til þess að berjast fyrir leiðrétt- ingu á sínum kjörum og sumt af því væri þegar komið í gegn þannig að ráðstefnan hefur skilað einhverju í vasann á þessum konum. Þó sögðust þær vera svolítið uggandi um ungu konurnar þ.e. á aldrinum 20—30 ára þar sem þær sæjust varla á fundum og töldu að þær væru alltof uppteknar við að fórna sér fyrir börnin sín og karlana sem væru annað hvort í námi eða á framabraut í starfi. Þær yrðu einhvern veginn útundan og þyrfti að gera sérstakt átak til að fá þær inn í jafnréttisumræðuna. Þær voru og mjög jákvæðar í garð annars kvenna- þings og töldu að reynslan af þinginu nú í sumar hefði lofað það góðu að annað jafnréttisþing ætti fyllilega rétt á sér. Hjördís Þorsteinsdóttir tjáði mér að Bandalag kvenna í Hafnarfirði hefði staðið fyrir opnu húsi í Hafnar- borg, menningarmiðstöð Hafnfirð- inga á laugardagmorgnum einu sinni í hverjum mánuði til að miðla meðal annars þeim mikla fróðleik sem kon- ur fengu er sóttu þingið til hinna sem ekki áttu þess kost að fara. Hver fundur fyrir sig hefur verið í umsjá þriggja kvenna og að loknum hverj- um fundi hefðu nýjar konur tekið við framkvæmdinni. Hafa verið fengnir fyrirlesarar utan Bandalagsins og 62

x

19. júní

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: 19. júní
https://timarit.is/publication/671

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.