19. júní - 19.06.1989, Page 63
innan og meðal efnis hafa verið rétt-
indi eða réttindaleysi heimavinnandi
kvenna, staða kvenna almennt, jafn-
rétti barna í skólum, barnaþrælkun
o.fl. Hafnfirsku konurnar hafa og
verið að kynna sér upplýsingar frá
norskum stallsystrum sínum um að-
stoð við konur í þróunarlöndunum
en Kvenfélagasambandið norska og
norskar hægri konur hafa staðið þétt
við bakið á kynsystrum sínum í þró-
unarlöndunum m.a. við konur í
Ghana og hafa byggt upp þar skóla til
að reyna að miðla til þeirra þekkingu
og reynslu. Hjördís sagði að þingið
hefði verið stórfróðlegt og það eitt að
geta miðlað þeim fróðleik sem þar
kom fram væri stórkostlegt og við
íslenskar konur gætum lært margt af
stallsystrum okkar á hinum Norður-
löndunum. Þó sagði hún að þeir
fundir og þær ráðstefnur sem haldnar
hefðu verið að loknu kvennaþingi
bæru nokkra hnökra að því leyti að
auglýsingar og kynningar um fund-
ina vísuðu eða höfðuðu of mikið til
annars kynsins þ.e. kvenna, því jafn-
rétti kæmi körlum einnig við og ekki
væri hægt að ræða málin á jafnréttis-
grundvelli ef jafnréttisumræðan færi
meira eða minna fram hjá körlum.
Þess vegna yrðu karlmenn að taka
þátt í undirbúningi næsta jafnréttis-
málaþings því að fullkomið jafnrétti
næðist ekki fram nema fullkominn
skilningur ríkti á milli beggja kynja.
Bandalag kvenna í Reykjavík,
Kvenfélagasamband íslands og
Kvenréttindafélag íslands hafa einn-
ig staðið fyrir fundaherferð í
Kvennaheimilinu Hallveigarstöðum
sem gengið hefur undir nafninu
Framhalds Forum. Þar hafa ýmis
Ljósmyndir frá Nordisk Forum: Hrefna Tynes.
samtök flutt fyrirlestra um stöðu
konunnar í hinum ýmsu atvinnu-
greinum, stöðu faglærðra og ófa-
glærðra kvenna, mismunandi stöðu
kvenna í dreifbýli og þéttbýli,
kvenna í stjórnmálum og hlut kvenna
í fjölmiðlum og svo mætti lengi telja.
Þessir fundir hafa verið nokkuð vel
sóttir, reyndar ótrúlega vel miðað
við þá ótíð sem verið hefur í vetur
enda hafa þeir bæði verið mjög fróð-
legir og skemmtilegir og verið kon-
um vettvangur til skoðanaskipta um
hin ýmsu mál er þær varða.
Þó þetta séu þeir aðilar sem standa
upp úr með einhvers konar uppá-
komur, fundi eða ráðstefnur í fram-
haldi af kvennaþingi eru fleiri aðilar
sem hafa staðið fyrir ótal fundum um
allt land. Til dæmis hafa stjórnmála-
flokkarnir og kvenfélög innan þeirra
staðið fyrir fjölda funda undanfarið
og má nefna að nú nýverið fengu
sjálfstæðiskonur miðstjórn Sjálfstæð-
isflokksins til að samþykkja þau til-
mæli til kjördæmisráða að kona skipi
a.m.k. eitt af hverjum þremur sætum
á framboðslistum þannig að það sé
tryggt að ein kona verði í það
minnsta í þriðja sæti á hverjum fram-
boðslista.
Það er því alveg ljóst að jafnréttis-
umræðan skilar árangri en betur má
ef duga skal. Höldum því áfram
stelpur, saman sigrum við.
63