Frjáls verslun - 01.01.2001, Síða 6
RITSTJÓRNARGREIN
Af himnum ofan
Það er alltaf gaman þegar tískuorð verða til í um-
ræðu um efnahagsmál. Góðæri er eitt þessara orða.
Það merkir uppgangur eða uppsveifla í efnahagslif-
inu; hagvöxtur. En eins og gjarnt er um tískuorð
hefur það verið skrumskælt í dagsins önn. Oftar en
ekki hefur púðrinu verið eytt í að karpa um það
hvort Davíð Oddsson forsætisráðherra hafi fundið
upp góðærið og hreinlega talað það inn í hug og
hjörtu manna, látið okkur hin - sem öll erum mjög
auðtrúa - trúa því að það væri komið góðæri. Ymsir
frasar hafa gengið í umræðunni. Hver þekkir ekki
þessa: Góðærið hefur ekki komið til okkar! Hvar er allt þetta góð-
æri, það hefur farið framhjá mér? Nýjasti frasinn er svona: Er góð-
ærið búið?! Það er einmitt þessi frasi sem fær mann tíl að staldra
við, en spurningin minnir óneitanlega á það þegar spurt er í veisl-
um hvort vinið sé búið. Einhvern veginn virðist góðæri búið að fá
nýja merkingu, að það sé vara eða sending sem falli af himnum
ofan. Góðæri er hvorki himnasending né eitthvað sem til verður af
sjálfu sér. Góðæri er okkar mannanna verk. Hver einstaklingur,
hvert íýrirtæki og hver þjóð er sinnar gæfusmiður. Uppsveiflu síð-
ustu sjö ára má rekja til þess að fólk og lýrirtæki hafa lagt hart að
sér við að skapa meiri verðmæti ár frá ári. Grunnurinn var ekki síst
lagður í niðursveiflunni á árunum 1989 til 1993, þegar lagst var á
eitt við að ná verðbólgu niður, ná stöðugleika. Hverju sem menn
vilja hnýta í samstarf Davíðs og Jóns Baldvins, Sjálfstæðisflokks og
Alþýðuflokks, þá voru afar mikilvægir viðskiptamúrar brotnir
niður með því að samþykkja lögin um EES, Evrópska efnahags-
svæðið. Evrópa varð eitt markaðssvæði, tollar af vörum okkar voru
afiiumdir eða lækkaðir stórlega og flæði ijármagns og vinnuafls
varð að iðandi fljóti í allar áttir. Viðeyjarstjórnin afnam ennfremur
aðstöðugjald hjá fýrirtækjum og lækkaði tekjuskatt þeirra. Því
miður virðist hins vegar engri ríkisstjórn hér á landi takast að
stöðva þenslu ríkisútgjalda og hinn glæsilegi tekjuafgangur ríkis-
sjóðs stafar af himinháum skatttekjum.
í blúmlegum lystigarði Það mun mæða mjög á stjórnendum
íslenskra fýrirtækja á þessu ári þegar uppsveiflan verður
snöggtum minni. En það góða er að það verður
áfram hagvöxtur. Línan í grafinu stefnir áfram upp,
verður bara ekki eins brött. Segja má að stjórnend-
ur íslenskra fýrirtækja hafi, eins og stallbræður
þeirra viða í hinum vestræna heimi, rekið fýrirtæki
sín í blómlegum lystigarði síðustu árin. Garði sem
skartað hefur öllu í senn; stöðugleika, ævintýraleg-
um hagvexti ár eftir ár, lítilli verðbólgu, sárafáum
viðskiptahindrunum, litlu atvinnuleysi, stanslaus-
um tekjuafgangi ríkissjóðs og stórauknu flæði Ijár
inn í fýrirtæki vegna áhuga almennings og fjárfesta
á hlutabréfum. En það er og verður alltaf auðvelt fýrir stjórnendur
að gleyma sér í lystigörðum. Hagnaður fýrirtækja dróst verulega
saman á síðasta ári og viðskiptahugmyndir tengdar nýju hagkerfi
hríðféllu í verði. Meiðingin varð umtalsverð verðlækkun á hluta-
bréfamörkuðum. Þannig hefur úrvalsvísitala Verðbréfaþings fallið
úr 1.889 stigum frá því um miðjan febrúar í fýrra niður í um 1.225
stig núna. Og rétt eins og í ársbyijun í fyrra eru allir hvattir til að
kaupa hlutabréf, að vísu núna vegna þess að verð bréfa er orðið svo
lágt og að markaðurinn sé kominn yfir það versta þannig að hann
geti ekki annað en farið upp. En hvernig má það vera að hluta-
bréfamarkaðurinn sé á leiðinni upp á sama tíma og spáð er talsvert
minni uppsveiflu en á undanförnum árum? Það mun örugglega
taka tíma fýrir hlutabréfamarkaðinn að sveiflast upp til fýrri hæða
og ráða þar vinnubrögð stjórnenda á þessu ári úrslitum. Þeir verða
að endurmeta viðskiptahugmyndir og vörur. Leita logandi ljósi að
nýjum tekjulindum. Fjárfesta í hæfum starfsmönnum og gera þá
enn hæfari með hvatningu og fræðslu. Fjárfesta í tækni sem af-
kastar meiru og gerir hlutina ódýrari. Þeir verða að láta hveijar
tvær hendur í fýrirtækjum skapa meiri verðmæti.
Mannanna verh Góðæri hjá fýrirtækjum og þjóðum er mann-
anna verk og vissulega getur það verið erfitt verk. En þó margt
komi gott að ofan þá fellur góðærið því miður ekki af himnum ofan.
Við verðum að vinna fýrir því sjálf, hver er sinnar gæfu smiður.
Hins vegar geta frasar stundum verið skemmtilegir.
Jón G. Hauksson
Stofinuð 1939
Sérrit um viðskiþta-, efnahags- og atvinnumál - 62. ár
Sjöfn Guðrún Helga Geir Ólafsson Hallgrímur
Sigurgeirsdóttir Sigurðardóttir Ijósmyndari Egilsson
auglýsingastjóri blaðamaður útlitsteiknari
RTTSTJÓRI OG ÁBYRGÐARMAÐUR: Jón G. Hauksson
AUGLÝSINGASTJÓRI: Sjöfn Sigurgeirsdóttir
ÁSKRIFTARVERÐ: kr 3.310,- fyrir 6.-11. tbl. - 2.990- ef greitt er með kreditkorti.
LAUSASÖLUVERÐ: 699 kr.
BIAÐAMAÐUR: Guðrún Helga Sigurðardóttir
UÓSMYNDARI: Geir Ólafsson
UMBROT: Hallgrimur Egilsson
ÚIGEFANDI: Heimurhf.
RITSTJÓRN, AUGLÝSINGAR OG AFGREIÐSIA:
DREIFTNG: Heimur hf., sími 512 7575
FILMUVINNA PRENTUN OG BÓKBAND: Prentsmiðjan Grafík hf.
UTGREININGAR: Prentmyndastofan hf. - Öll réttindi áskilin varðandi efni og myndir
ISSN 1017-3544
Borgartúni 23,105 Reykjavík, sími: 512 7575, fax: 561 8646, netfang: fv@talnakonnun.is
6