Frjáls verslun - 01.01.2001, Blaðsíða 90
Hajime Matsumura, fulltrúi jaþanska sendiráðsins í Osló, Olafur B.
Thors, ræðismaður fapana á Islandi, og Minoru Okazaki, en hann
mun veita sendiráðinu forstöðu fyrst um sinn sem fulltrúi sendiherrans.
Okazaki heilsaði upp á Ólaf
Minoru Okazaki mun veita japanska sendiráðinu í Reykja-
vík forstöðu fyrst um sinn og verður fulltrúi sendiherr-
ans sem kemur hingað til lands síðar. Okazaki heilsaði
upp á Olaf B. Thors, ræðismann Japana á Islandi, á dögunum.
Með honum i för var Hajime Matsumura, fulltrúi í sendiráðinu
í Noregi. Tilefnið var auðvitað opnun sendiráðs Japana á Hótel
Sögu hinn 5. febrúar sl. Sendiráðið verður fyrst um sinn til húsa
á neðstu hæð hótelsins, þar sem áður voru skrifstofur þess, á
meðan leitað verður að framtíðarhúsnæði fyrir sendiráðið. Bll
JflPflNSKlR DflGflR
Edik er talsvert notað í matargerðina og sætt hrísgrjónavín.
Helstu kryddtegundir eru ferskt engifer, græn piparrót
(Wasabi) og rauður pipar. Sesamfræ eru mikið notuð, soðin eða
ristuð, og svo sesamolia. Japönsk hreðka, sem hér á landi er
kölluð kínversk hreðka, er röspuð en hún er fremur bragðsterk.
Sushi er hrár fiskur með hrísgrjónum en sé hann án gijóna
heitir han sasimi.
Sukiyaki er þekktur réttur sem varð þó ekki til fyrr en á síð-
ustu öld. Hann samanstendur af örþunnum nautakjötssneið-
um sem soðnar eru með núðlum í stórum potti. Sukiyaki þýð-
ir „Það sem mér finnst best að elda“ og í þennan rétt er gjarn-
an bætt ýmsu grænmeti eftir smekk kokksins. Eins konar
naglasúpa eða súpa í líkingu við kjötsúpu okkar. Nautakjötið
er sérlega bragðgott þar sem nautin hafa verið látin drekka
bjór í nokkrar vikur fyrir slátrun og jafnvel nudduð til að fitu-
sprengja kjötið. Þessi réttur er látinn í litlar skálar með hráu
eggi og hrísgrjónum. Fyrst eru kjötið og grænmetið borðað
en þegar það er búið er eftir súpa með hrísgrjónum.
Hefðbundnir eftirréttir eru svolítið öðruvísi en á Vestur-
löndum. Þar sem sykur er nokkuð notaður í matargerðina
setur hann bragð sitt á matinn og því ekki þörf á sætum eftir-
réttum. I staðinn eru borðuð soðin grjón og misosúpa, stund-
um með legnu grænmeti. (Heimild: Kristín ísleifsdóttir,
hönnuður.) 35
Japönsk matargerð
Að læra japönsku
Japanskur matur er fremur einfaldur og léttur. Hann er
fallegur að sjá því talsverð áhersla er lögð á útlit og ilm
og diskar og áhöld oft valin með tilliti til þess hvaða
stemmingu á að skapa með matnum. Frumskilyrði er að allt
hráefni sé ferskt og sjávarfang ýmiskonar er mikið notað.
Einnig grænmeti, sem ræktað er á litlum, þröngum svæðum,
og rótarávextir sem koma úr ljallshlíðum.
Morgunmatur og kvöldverður eru meginmáltíðir dagsins.
I morgunverð eru gjarnan höfð soðin grjón og misosúpa sem
gerð er úr soja, grillaður fiskur og „pickles", sem er kryddað
og legið grænmeti. Með þessu er drukkið heitt te. í hádegis-
mat borða Japanir létta núðlusúpu eða steiktar núðlur með
grænmeti. Ferskar núðlur þykja bestar, auðvitað.
Dæmigerður kvöldverður samanstendur af 6-7 réttum:
Hrísgrjónum, misosúpu, aðalrétti og 2-4 smáréttum. Oftast er
fiskur eða sjávarfang aðalrétturinn, smáréttirnir geta verið úr
tófú, baunum, grænmeti eða rótarávöxtum. Máltíðin þarf að
miðla hreysti og orku og til að svo verði þarf eitthvað að
koma úr sjónum, eitthvað af akrinum og eitthvað úr íjallinu.
Helstu sósur eru Dashi, sem búin er til úr soði af þangi,
Bonito, úr þurrkuðum túnfiski og sojasósa, sem gerð er úr
gerjuðum sojabaunum en er yfirleitt léttari en sósan sem fæst
í öðrum Asíulöndum.
Námskeið í japönsku hafa verið haldin hjá Endurmennt-
unarstofnun HI síðan 1996 og alls hafa um 150 nemend-
ur tekið þátt í þeim. Fyrstu tvö skiptin kenndi Jón Egill
Eyþórsson en Tomoko Gamo hefur kennt frá árinu 1998 og
hafa þau námskeið verið kennd í samvinnu við Tómstunda-
skólann Mími.
Námskeiðin eru styrkt af Scandinavia -Japan Sasakawa
Foundation, sem er deild innan Nippon Foundation. Vilji fólk
fræðast nánar um samtökin er slóðin: http://www.nippon-
foundation.or.jp og upplýsingar um Islandsdeild þeirra gefur
Helga Magnúsdóttir í síma 553-7705. Oddný Sverrisdóttir hjá
Endurmenntunarstofnun HI segist verða vör við mikinn
áhuga á japönsku þjóðfélagi og menningu og upp hafa komið
hugmyndir um námskeið þar að lútandi.
Síðastliðið vor hélt Endurmenntunarstofnun HÍ námskeið-
ið: Viðskipti við Japan - Innsýn í ólíkan menningarheim.
Kennari var Denis Niedringhaus, bandarískur ráðgjafi sem
búsettur er í París. Hann hefur haldið fyrirlestra víða um
heim sl. sjö ár um viðskiptaheim Japana, en hann vann í nokk-
ur ár fyrir japönsk útflutningsfyrirtæki, hótel og banka. Hann
talar japönsku reiprennandi og það hefur gefið honum tæki-
færi til að kynnast náið starfsemi japanskra fyrirtækja.
Japanska verður seint talin auðvelt mál að læra, að
minnsta kosti fyrir okkur Vesturlandabúa. Hjá Endurmennt-
unarstofnun HI er hægt að læra þetta kliðmjúka mál og ýmis-
legt um siði Japana og venjur.Uj
90