Frjáls verslun - 01.01.2001, Blaðsíða 55
OPIÐ RÝIVII fl VINNUSTÖÐUM
starfsmönnum sínum. Guðbjörg Linda tekur undir
þetta.
„Rannsóknir sýna að opið rými hentar vel fólki, sem
þarf að vera mikið í innbyrðis samskiptum. Það hentar
hins vegar síður fólki sem þarf að sökkva sér niður í
lestur, vinnslu gagna og einbeita sér að því að koma
hugsunum sínum á blað eða í tölvu. Rannsókn-
ir sýna að áreiti vegna hljóðmengunar er al-
gengur streituvaldur á sumum vinnustöð
um og þá er ekki einungis átt við hljóð frá
háværum vélum heldur einnig frá tölvu-
búnaði, símum og töluðu máli, svo að
dæmi séu nefnd. í blaðagrein kom ný-
lega fram að lágtíðnisuð og niður frá
t.d. loftræstibúnaði valdi ekki aðeins
höfuðverk, þreytu og pirringi heldur
trufli það einbeitingu og hæfni til
vinnu. Mörgum finnst einnig þreyt-
andi að þurfa að hlusta á símtöl sam-
starfsmanna sinna og það er þetta
áreiti sem ég held að sé algengasta
umkvörtunarefnið frá starfsmönnum í
opnu rými,“ segir hún.
Hvað er til ráða? Það hlýtur að teljast
til réttinda starfsmanna í fullu starfi að fá
eðlilegt svigrúm til þess að hringja nauð-
synleg símtöl af vinnustað sínum eða eiga
Katrín S. Oladóttir, ráðningastjóri
allra leiða til að ná niður kostnaði í
rými sé góð lausn til að nýta þlássið
viðtöi við viðskiptavini í einrúmi. Til að koma til
móts við þessa þörf hafa fyrirtæki komið sér
upp nokkrum litlum símaklefum og fundar-
herbergjum til viðbótar við þau fundarborð
sem eru í opna rýminu. Lokuð fundarher-
bergi eru þá gjarnan með glerveggjum
þannig að þau eru opnari en ella og
þar er allur helsti búnaður; stóll,
borð, tölva og sími. Þá má benda á
lausn sem sífellt fleiri nota þegar
^ þeir þurfa að tala einkasamtal en
það er að grípa GSM símann,
labba út á gang eða út fyrir hús-
ið og tala þaðan. „Tilkoma
„gemsans" hefur gert opin rými
möguleg í fyrirtækjum,“ segir í
greininni í Time.
Fyrir þá starfsmenn sem
| vinna í opnu rými og þrá að hafa
þar næði má benda á eyrnatappa
eða heyrnartól til að hlusta á tón-
list og eða skapa sinn eigin heim.
Og til að leysa einbeitingarvand-
ann eru sífellt fleiri starfsmenn
farnir að taka enn róttækara
skref: Þeir yfirgefa skrifstofuna
og vinna heima með samþykki
yfirmanna sinna. SH
PwC. „Fyrirtœki leita
rekstri og telja að oþið
eins ogkosturer."
I www.airiceland.is
Flugkortið ergreiðslu-
og viðskiptakort
ætlað fyrirtækjum í viðskiptum við Flugfélag íslands
Flugferðir
Hótel
Veitingar
Fínn kostur á f erðalö^utn
Alltað 30% afsláttur til Flugkortshafa
Með Flugkortinu má greiða flugfarseðla með Flugfélagi íslands,
bílaleigubíl, hótelgistingu, mat á veitingastöðum og ýmsa aðra
þjónustu hjá völdum fyrirtækjum í samstarfi við Flugkortið.
Notkun kortsins hefur einnig í för með sér ýmsa sérþjónustu og
fríðindi ásamt því hagræði sem fylgir sundurliðuðu reiknings-
yfirliti sem Flugkortshafa er sent mánaðarlega.
■ Bílaleiga
■ Fundaraðstaða
■ Eldsneyti
Upplýsingar hjá Fyrirtækjaþjónustu
Flugfélags íslands
sími 570 3606. Fax 570 3001
Netfang: flugkort@airiceland.is
Umtalsverður sparnaður
Viðskipti með Flugkorti hafa í för með sér allt að 30% afslátt af
viðskiptum við Flugfélag íslands og Flugkortshöfum eru ætíð
tryggð betri kjör hjá samstarfsaðilum en annars staðar, séu
gæðin lögðtil grundvallar.
FLUGFÉLAG ÍSLANDS
Fyrirtækjaþjónusta
55