Frjáls verslun - 01.01.2001, Blaðsíða 69
Greinarhöfundur, Áslaug Pálsdóttir, er stjórnmálafræðingurfrá Háskóla Islands og hefur nýlokið meistaragráðu í almannatengslum frá Boston
University í Bandaríkjunum. Lokaritgerð Aslaugar fjallaði um „Crisis Management & Communication“ með áherslu á innköllun á vöru á
drykkjarvörumarkaði. Áslaug starfar hjá almannatengslafyrirtœkinu Inntaki. Fv-mynd: Geir Olafsson.
eða tækifæri?
matareitrun, skyndilegur dauði yfirmanns eða umhverfisslys,
svo nokkuð sé nefnt.
Undirkraumandi krísa - stafar af alvarlegum vandræðum af
viðskiptalegum toga sem ekki eru almennt á vitorði allra innan
og utan fyrirtækis en geta leitt af sér neikvæða umi]öllun í flöl-
miðlum verði þau „opinber". Dæmi um undirkraumandi krísur
er slök afkoma fyrirtækis, galli í framleiðslu, fjölmiðlar komast
á snoðir um ólögmætt athæfi eða siðlaust, starfsmaður hótar
að segja frá einhverju sem miður hefur farið, svo dæmi séu tek-
in. í þessu samhengi er stjórnendum hollt að minnast þess að
slæmar fréttir um afglöp eða eitthvað sem fer úrskeiðis ferðast
hægt upp á við innan fyrirtækja.
Við lifum á tímum hraða og aukins upplýsingaflæðis þar
sem starfsemi fyrirtækja og stofnana er undir mun nánara eft-
irliti en áður tíðkaðist. Fjölmörgum opinberum fyrirtækjum
hefur verið breytt í hlutafélög með það fyrir augum að einka-
væða þau og skrá þau á markað síðar. Þá hefur einkafyrirtækj-
um sem sækja um skráningu á markað fjölgað ört, með tilheyr-
andi hlutaijárútboðum og ljölgun hluthafa sem ekki koma ná-
lægt daglegum rekstri fyrirtækjanna en vilja vera vel upplýstir
um afkomu þeirra, stefhu og markmið. Þetta, ásamt auknum
kröfum um samfélagslega ábyrgð fyrirtækja, upplýsinga-
skyldu og ágengari fjölmiðlun hefur valdið því að þörfin fyrir
gott upplýsingaflæði frá fyrirtækjum hefur farið ört vaxandi.
Slæm umfjöllun eða hrísa Rými fyrir mistök í sþórnun krísu
er lítið þar sem fyrstu fréttir ijölmiðla, og það hvernig þeir bera
viðbrögðum fyrirtækisins söguna, gefa tóninn um þróun mála
og hvernig ijallað er um krisuna í framhaldi af þvi. Stjórnendur
og yfirmenn fyrirtækisins verða fyrir miklu áreiti og er því mik-
ilvægt að innan þess sé krisuteymi. I því eiga að vera einstakl-
ingar sem munu taka þátt í því ákvarðanaferli sem fer af stað í
kjölfar krísu. Tryggja verður að skilaboðin sem fyrirtækið vill
koma á framfæri berist til réttra aðila og eftir réttum leiðum.
Hvað segir Warren Buffett?
Ráðlegging Warren Buffetts, hins þekkta bandaríska kaupsýslumanns er: „Taktu skýrt fram í byrjun að
þú vitir ekki allar staðreyndir málsins. Að því loknu skaltu skýra frá þeim staðreyndum sem liggja fyrir.
Bregðast þarf snöggt við og koma upplýsingum til skila til allra sem málið varðar á sem skemmstum
tíma. Vandamál batna ekki með aldrinum.“
69