Frjáls verslun - 01.01.2001, Blaðsíða 34
NÆRMYND flF SIGURÐI EINflRSSYNI
Sáttasemjari
og leiðtogi
Nýlega var skrifað undir samn-
ing um kaup á Frjálsa ijárfest-
ingarbankanum og lýst yfir að
hann verði rekinn áfram sem sjálf-
stæður banki og sérhæfður; stundar
útlán en öll starfsemi sem lýtur að
verðbréfamiðlun og sjóðastýringu
verður sameinuð starfsemi Kaup-
þings. Heldur lengra er liðið síðan
fregnir bárust af því að Þorsteinn M. Jónsson, forstjóri Vífil-
fells, og Sigfús Sigfússon, forstjóri Heklu, hygðust kaupa Víf-
ilfell með aðstoð Kaupþingsmanna. Þá hefur Kaupþing vakið
athygli fyrir öfluga útrás þar sem stefnt er að því að helming-
ur af tekjum fýrirtækisins komi að utan. I framhaldi af þessu
hljóta margir að velta fyrir sér hver hann sé þessi maður sem
situr við stjórnvölinn í Kaupþingi. Við svörum því í nærmynd-
inni hér á eftir.
Uppruni Sigurður Einarsson er fæddur 19. september 1960.
Hann er alinn upp í Reykjavík en var í sveit að Höskuldsstöð-
um í Eyjafirði nokkur sumur sem
krakki. Hann fluttist tvítugur til Kaup-
mannahafnar og settist þar á skóla-
bekk. Hann bjó í Kaupmannahöfn í
átta ár og fluttist þá aftur til íslands.
Foreldrar Móðir Sigurðar er Þór-
unn Sigurðardóttir húsmóðir, fædd
12. maí 1927 í Reykjavík. Faðir hans
var Einar Agústsson lögfræðingur, bankastjóri í Samvinnu-
bankanum, varaformaður Framsóknarflokksins, utanríkis-
ráðherra og sendiherra í Kaupmannahöfn, fæddur 23. sept-
ember 1922. Einar fæddist á bænum Hallsgeirsey í Austur-
Landeyjum. Hann lést árið 1986.
Systkini Sigurður er yngstur í fjögurra systkina hópi. Elst
var Helga, meinatæknir og leiðsögumaður, fædd 1949, dáin
1994. Önnur systir hans er Erna, sviðsstjóri starfsmannamála
Landspítala háskólasjúkrahúsi, fædd 1954. Yngsta systirin,
Þóra, fæddist 1958 og lést 11 ára gömul.
Kaupþing hefur haft mörg járn í eldin-
um undanfarin misseri. SigurðurEin-
arsson, forstjóri Kaupþings, er í nær-
mynd Frjálsrar verslunar ad þessu sinni.
Eftir Guðrúnu Helgu Sigurðardóttur
Sigurður Einarsson.
19. september 1960.
Þórunn Sigurðardóttir húsmóðir og Einar Ágústs-
son, fv. utanríkisráðherra Framsóknarflokksins og
sendiherra í Kaupmannahöfh.
Stúdentspróf frá MH1980. Lauk prófi í hagfræði frá
Kaupmannahafnarháskóla 1987.
Forstjóri Kaupþings. Hefur setið í stjórn Samtaka
fjármálafýrirtækja frá 1999.
Arndís Björnsdóttir viðskiptafræðingur.
Þórunn, 6 ára, og Björn, 3 ára.
Skiði, ferðalög og silungsveiði. Sigurður er lista-
kokkur.
Nafn:
Fæðingardagur:
Foreldrar:
Menntun:
Starf:
Maki:
Börn:
Áhugamál:
34
Sigurður erfagmaður á sínu sviði. Hann hefurgegni ýmsum trún-
aðarstörfum, t.d. formennsku í Samtökum verðbréfafyrirtœkja og
setið í stjórn Samtaka fjármálafyrirtækja.