Frjáls verslun - 01.01.2001, Blaðsíða 20
Jón er fæddur árið 1967
og alinn upp hjá ömmu
sinni og afa á Skólabraut-
inni á Seltjarnarnesi.
Hann á stóra fjölskyldu á
íslandi og lítur á móður-
systkini sín sem systkini
þó að þau séu talsvert
eldri en hann. Jón er
stúdent frá MR.
Vinnustaðurinn er snyrtilegur. „Við eyðum ekki peningum í
íburð hér innanhúss, við viljum frekar nota peningana í að fara
út með starfsfólkið. Hér á fólk að vera að vinna. Við reynum að
gera það þægilegt fyrir fólk að vinna hérna, það er mikilvægt.
Það skiptir máli að hafa góð borð og stóla, útsýni út um glugg-
ana og fallegar plöntur,“ segir Jón.
áhuga fólks á forritínu okkar. Fyrirtæki út um allan heim þekkja forritið og stöðu
okkar. Ef þau hafa áhuga á að velja sér annan samstarfsaðila en Microsoft þá
koma þau tíl okkar,“ segir hann.
Hefur borist tílboð í ykkur frá Microsoft?
„Eg held að við höfum sagt það mjög skýrt að við seljum ekki Microsoft. Þegar
fólk heldur þvi fram að allir hafi sitt verð þá hef ég gefið upp verðið á okkur þvi
að það er ákveðið verð sem við myndum kannski taka. Það er verðgildi Microsoft
plús einn dollar."
Tökum enga áhættu Netfyrirtæki hafa átt erfitt það sem af er árinu og eru
ekki taldar miklar líkur á því að það breytist fyrr en sígur á seinni hluta ársins
eða á því næsta. Jón horfir jákvæður fram á veginn. Þó að hann hafi fundið íyr-
ir kreppunni hjá netfyrirtækjunum hefur rekstur Operu gengið vel það sem af
er. I dag er eignarhlutfall fyrirtækisins þannig að Geir og Jón eiga saman um
70 prósent, aðrir starfsmenn um 20 prósent og fjárfestar afganginn. Jón býst
við að Opera þurfi að sækjast eftir meira fjármagni síðar á þessu ári eða því
næsta og verður þá farið á hlutabréfamarkað.
„Við höfum verið að skoða það og förum hugsanlega á markað í ár en ekki
er ólíklegt að við bfðum fram á næsta ár. Við erum ekki undir neinum þrýst-
ingi. Auðvitað höfum við fundið þrýsting frá einstaklingum sem hafa áhuga á
að fá okkur á hlutabréfamarkaðinn og svo hefur norski verðbréfamarkaðurinn
haft samband við okkur til að kanna hvort við viljum ekki koma til þeirra. Þeir
höfðu áhyggjur af því að við færum á Nasdaq. En við höfum tekið þessu rólega.
Fyrir okkur er mikilvægast að halda áfram að vaxa og byggja okkur upp á rétt-
an hátt,“ segir Jón.
Verður Nasdaq fyrir valinu?
„Ekkert endilega. Það eru ekki mörg fýrirtæki í Noregi sem hafa farið á Nasdaq
og gert það vel. Það getur vel verið að við verðum fyrst norskra fyrirtækja tíl þess
en við ætlum ekki að taka neina áhættu í því efni. Við skoðum þetta vandlega og
tökum svo endanlega ákvörðun. Valið stendur milli þess að fara á Nasdaq, ein-
hvern af þessum evrópsku mörkuðum, t.d. Neue Markt, eða heimamarkað okk-
ar hér í Osló sem er að tengjast sænska markaðnum og hinum norrænu mörk-
uðunum. Það er heimamarkaður okkar í dag,“ svarar hann og vill greinilega ekki
taka af skarið á þessu stigi málsins um það hvort stefnan verður sett á Nasdaq eða
einhvern annan.
M Alll
Oþera Software er til husa á Waldemar Thranes götunni í Osló þar sem mörg hugbúnað-
ar- og tölvufyrirtœki eru til húsa. I daglegu tali er gatan stundum kölluð Silicon Alley.
Gatan er skammt frá Akerselva, fljótinu sem skiptir Ósló í tvennt og kallað er Silicon
River. Jón býr því með flölskyldu sinni á Silicon svœði Noregs. FV-mynd: Geir Olafsson