Frjáls verslun - 01.01.2001, Page 40
SAMEINING FYRIRTÆKJfl
óvænt fram á fundinum að beiðni Thorarensen lyfla, nokkru
fjaðrafoki hjá Austurbakkamönnum. Aður var talið að búið væri
að komast að samkomulagi um helstu atriði skipuritsins, en þeir
Arni Þór Arnason og Stefán Bjarnason höfðu unnið að gerð þess.
Á hinn bóginn lá fyrir snemma í viðræðunum að Bjarni yrði
stjórnarformaður og að þeir Árni Þór Árnason og Stefán Bjarna-
son yrðu báðir framkvæmdastjórar. Þeim var ætlað að vinna náið
saman og undir hvorn um sig áttu ákveðnar deildir að heyra.
Þannig átti Stefán t.d. að hafa yíirumsjón með lyfjadeildinni,
stærstu deildinni. Efdr því sem næst verður komist var engin
breyting orðin á skipan framkvæmdasljóranna í skipuritinu, sem
Landsbankinn lagði fram, heldur voru þar komnir nýir kassar
sem Austurbakkamenn eru sagðir hafa verið mjög ósáttir við og
að á þessum fundi hafi þeir skynjað að það væri rangnefni að tala
um samruna íyrirtækjanna heldur lægi í loftinu að um hreina og
klára yfirtöku á Austurbakka yrði að ræða og að ekki færi á milli
mála að Thorarensen lyf ætluðu sér að stýra ferðinni í krafti
meirihluta síns. Sagt er að Austurbakkamenn hafi klórað sér í
höfðinu og sagt sem svo að kæmu þeir ekki áformum sínum að í
„stjórnarsáttmálanum" hvernig yrði það þá eftir að í hnappheld-
una væri komið. Velta má því lýrir sér hvort þetta hafi í raun þurft
að koma þeim á óvart því skiptahlutföllin voru skýr og skorinorð,
það fór aldrei á milli mála frá upphafi að Thorarensen lyd væru
með svo öflugan meirihluta að þeir réðu ferðinni kæmi upp
ósætti um strauma og stefnur - og þar sem taka þyrfti af skarið.
Ýmis veigamikil mál voru óafgreidd Þótt þarna hafi hlaupið
snurða á þráðinn í ástarsambandinu var áfram þráast við að blása
lífi í sambandið helgina 6. og 7. janúar og koma viðræðum í íyrri
gír, bjarga sambandinu. En allt kom fyrir ekki. Áður en að hinum
sögulega fundi kom í húsakynnum Thorarensen lyQa vegna hins
nýja skipurits er því haldið fram að steytt hafi á nokkrum málum
sem ekki voru til lykta leidd. Fullyrt er við Fijálsa verslun að
mesti titringurinn hafi verið vegna þess að Thorarensen lyf vildu
halda áfram að reka dótturfélag sitt, Lyijadreifingu, sem sérstakt
íyrirtæki, en Austurbakkamenn töldu þess ekki þurfa og voru á
móti því. Vænlegra væri að skella Lyfjadreifingu inn í hið samein-
aða fyrirtæki til að ná fram sem mestri hagræðingu. Þarna voru
rök á móti rökum. Rök Thorarensen lyfja munu hafa verið þau að
Lyljadreifing dreifði lyijum fyrir fleiri en Thorarensen lyf og til að
koma í veg fyrir hagsmunaárekstra væri nauðsynlegt að hafa fyr-
irtækið aðskilið frá móðurfyrirtækinu. Rök Austurbakka eru
sögð hafa verið þau að þetta fyrirkomulag væri of kostnaðarsamt
Þess má geta að Thorarensen lyf eiga 87% í Lyijadreifingu og
100% í J.S. Helgasyni. Þá er staðhæft við Frjálsa verslun að fyrr í
viðræðunum hafi verið tekist á um tölvumál, þ.e. hvort ráðast ætti
í kaup á nýju og dýru tölvukerfi eða nota tölvukerfi sem til væri
fyrir hjá Austurbakka og sem Thorarensen lyijum fannst gamal-
dags og ekki í stakk búið til að þjóna hinu sameinaða fyrirtæki.
Ekki var búið að komast til botns í því máli þegar upp úr slitnaði.
Loks er þvi haldið fram að húsnæðismálin hafi svolítið verið að
veijast fyrir mönnum í viðræðunum. Austurbakki er nýbúinn að
byggja og flyrija inn í nýtt húsnæði við Köllunarklettsveg 2 og
Thorarensen lyf eru um þessar mundir að flytja hluta af starfsemi
sinni inn í nýtt, stórt og glæsilegt húsnæði við Lyngháls 13. Fyr-
irtækið mun síðar á árinu flytja alla starfsemi sína þangað. Frá
upphafi viðræðnanna var gengið út frá þvi að Austurbakki flytti
upp að Lynghálsi 13. Á hinn bóginn hefur komið fram í ljölmiðl-
um að það húsnæði hefði ekki dugað undir alla starfsemina.
Engu að síður var það í kortunum að bæði félögin lægju með
mikið fé bundið í flárfestingum í húsnæði og að flutningar kæmu
einhveiju róti á starfsemina á þessu ári en dæmin sýndu að þessu
fylgdi öllu nokkur aukakostnaður sem sjaldnast væri tekinn með
í reikninginn. Hins vegar verður að telja það fremur hæpið að
húsnæðismál, ein og sér, geti ráðið úrslitum í svona viðræðum;
orðið þúfan sem veltir hlassinu.
Ólíkur kúltúr og ólik viðhorf eigenda Af þessu má ráða að þarna
hafi verið nokkur óafgreidd mál enn uppi á borðinu sem skildu
fyrirtækin að í viðræðunum og voru einfaldlega ekki útkljáð. Tek-
ist var á um þessi mál í miklu bróðerni. En það þurfti að fara að
taka af skarið. I svona málum má ekki dóla of lengi. Hvorugur var
neyddur til að ganga upp að altarinu eða gera eitthvað gegn vilja
sínum í þessu ástarsambandi fremur en öðrum. Málum lyktaði
með því að menn tókust í hendur og hættu við allt saman. Allt
búið! Bæði fyrirtækin ályktuðu sem svo að betra væri að doka við
heldur en að ana út í eitthvað sem ekki gengi saman. Þegar öllu
var á botninn hvolft reyndist kúltúr fyrirtækjanna of ólíkur og eig-
endur þeirra með of ólík viðhorf til reksturs. Stóra spurningin í
herbúðum beggja fyrirtækja var auðvitað þessi: Til hvers að sam-
einast ef hvorki væri búið að kortleggja nýjar tekjur né mikinn
sparnað áður en lagt væri af stað í hið sameiginlega ferðalag?
Þegar allt kemur til alls snýst sameining fyrirtækja um að tryggja
áframhaldandi hagnað en þó fyrst og fremst að auka hann. Við
sameiningu þarf verðmæti beggja fyrirtækja að vaxa samkvæmt
formúlunni frægu um að „tveir plús tveir verði fimm‘!
Eignarhald fyrirtsekjanna ólikt Eignarhald fyrirtækjanna er afar
ólíkt. Austurbakki er í eigu um 250 hluthafa, þeirra á meðal eru
margir starfsmenn, og hann er skráður á aðallista Verðbréfa-
þings. Hann er með ávöxtunarkröfu hlutabréfamarkaðarins sem
sinn harða húsbónda. Thorarensen lyf eru gamalgróið Jjölskyldu-
fyrirtæki í eigu ijögurra ijölskyldna, þar af þriggja systra sem eiga
90% í fyrirtækinu. En hvað þýðir svo ólikt eignarhald? Jú, við sam-
runann þurftí Austurbakki að gæta hag 250 hluthafa á almennum
markaði en Thorarensen lyf að gæta hag ijögurra Jjölskyldna.
Vissulega fara hagsmunir eigenda beggja fyrirtækja saman, þ.e.
þeir vilja auka hagnaðinn, en Thorarensen lyf höfðu ekki sömu
svipuna yfir sér í viðræðunum vegna þess að þau eru ekki skráð
fyrirtæki á hlutabréfamarkaði. Og á því er munur! Ef Austur-
bakki væri ekki skráður á Verðbréfaþingi hefðu þessar viðræður
farið fram fyrir luktum dyrum og þær hefðu líklega aldrei komist
í fjölmiðla. En það varð að tilkynna þær. Eigendur Thorarensen
lyija hefðu með sameiningunni jaihframt stytt sér leið inn á Verð-
bréfaþingið í gegnum Austurbakka. Þar með hefði lokað og gam-
algróið ijölskyldufyrirtæki breyst í skráð fyrirtæki á markaði með
Áður en að hinum sögulega fundi kom í húsakynnum Thorarensen lyfja vegna hins nýja skipurits
er því haidið fram að steytt hafi á nokkrum málum sem ekki voru til lykta leidd. Fullyrt er við
Frjálsa verslun að mesti titringurinn hafi verið vegna þess að Thorarensen lyf vildu halda áfram
að reka dótturfélag sitt, Lyfjadreifingu, sem sérstakt fyrirtæki.
40