Frjáls verslun - 01.01.2001, Síða 41
" . njni In
jiÉin
Nýtt húsnœði Austurbakka við Köllunarklettsveg 2.
Nýtt stórhýsi Thorarensen lyjja við Lyngháls 13.
öllum þeim kostum og göllum sem því fylgir fyrir eigendurna.
Vegna áherslna hér á það hve eignarhald fyrirtækjanna er óhkt
skal bent á að þegar Austurbakki og Hans Petersen áttu í viðræð-
um um samruna sl. sumar var um tvö skráð fyrirtæki á markaði
að ræða. Engu að síður slitnaði upp úr þeirri trúlofun, fyrst og
fremst vegna ágreinings um verð fyrirtækjanna, skiptahlutfallið,
þótt ýmsir fleiri agnúar hafi skotið upp kollinum. Austurbakki,
Búnaðarbanki og Gilding áttu orðið 35% hlut í Hans Petersen,
höfðu keypt hann af Opnum kerfum og Þróunarfélaginu. Þegar á
viðræðurnar leið gerðu þessi félög tilboð í bréf Hans Petersen tjöl-
skyldunnar á 6,65 með gagnkvæmum kauprétti, þ.e. að hægt væri
að kaupa 35% hlut Austurbakka og Búnaðarbanka í Hans Peter-
sen á sama gengi. En eigendur Hans Petersen vildu fá yfir 8 fyrir
bréfin. A þessum tíma var gengi bréfa í Hans Petersen á Verð-
bréfaþingi í kringum 6,4. Þarna reyndist því haf og himinn á milli
og þetta bil varð ekki brúað. Viðræðum vai' sfitið. Þess má geta að
Skeljungur keypti síðan Hans Petersen á genginu 7,35.
Fleiri ástarsambönd Út um þúfur Þótt augu manna beinist mest
að óvæntum endalokum á ástarsambandi Austurbakka og
Thorarensen lyfla eru þau ekki ein um að hafa sfitið trúlofun
sinni að undanförnu. Þannig sUtu heildsölurnar Islensk-Amer-
íska og Innnes viðræðum um samruna skömmu fyrir áramót.
Þessi félög keyptu sl. sumar Kexverksmiðjuna Frón og vöktu
þau kaup mikla athygD. Íslensk-Ameríska keypti helming hluta-
íjár í Innnesi í byijun ársins 1998. Sl. haust hófust viðræður um
að sameina Islensk-Ameríska, Innnes og Frón. Þær viðræður
voru taldar vel á veg komnar þegar þeim var sDtið skömmu fyr-
ir áramót. I stað samruna varð það úr að Olafur Björnsson, með-
eigandi Íslensk-Ameríska í Innnesi, keypti hlut Islensk-Amer-
íska út úr félaginu og í staðinn eignaðist Íslensk-Ameríska Frón.
Innnes flytur inn og dreifir mörgum þekktum vörumerkjum, t.d.
Hunts tómatvörum, Wesson og Filippio Berio matarolíum,
Swiss Miss súkkulaðidrykkjum, Tilda hrísgijónum, Orville
poppkorni og Heidelberg salatsósum.
GLERAUGNABUDIN
Laugavegi 36 • Sími: 551 1945
OPTIK
Kringlan • Sími: 588 9988
Laugavegi 65 • Sími: 551 8780
A
RODENSTOCK
Fjölskerpugleraugu
Við kynnumfjölskerpugleraugu, Rodenstock
Cosmolit Office, sem gefa þér aukið svig-
rúm að sjá fjær og nær án þess að þurfa
sífellt að taka gleraugun niður, setja þau
upp eða horfa framhjá þeim.
Cosmolit Office fjölskerpugleraugun eru hönnuð til að gera
þérkleiftað horfa á umhverfi þittfrá venjulegri lesnálægð,
eða 40 sentimetrum, til allt að 4 metrum, eins og myndin
hér að ofan sýnir. Rauða línan sýnir svið venjulegra lesgler-
augna, sem taka þarf niður eða horfa yfirtil að líta frá sér.
Græna línan sýnir svið venjulegra gleraugna, sem taka þarf
niður eða skipta úttil að líta nær sér. Appelsínugula línan
sýnir svið hinna nýju gleraugna. Þau þarf hvorki að taka
niður né horfa framhjá.
Þú nýtur þessara gleraugna ekki aðeins á vinnustað, heldur líka heima, í leik og starfi.
41