Frjáls verslun - 01.01.2001, Síða 99
JflPflNSKIR DflGflR
Ragnar Birgisson, framkvœmdastjóri Skífunnar:
Fjölbreytt skemmtiefni frá Sony
Sony hefur höfuðstöðvar sínar í New York, þótt fyrirtækið
sé japanskt að uppruna. Það er leiðandi í framleiðslu há-
tækniraftækja, afþreyingarefnis og margmiðlunarefnis,
bæði fyrir almenning og aðra. Heildarvelta fyrirtækisins nem-
ur rúmum 63 milljörðum dollara á ári og starfsmenn eru um
190.000 talsins.
Hér á landi hefur Skifan einkarétt á því
sem Sony framleiðir og tengist afþreyingu.
„Við höfum engin bein tengsl við Japan þar
sem öll okkar samskipti eru við umboðs-
skrifstofur í Bandaríkjunum og London,“
segir Ragnar Birgisson, forstjóri Skífunnar.
„Mest af viðskiptum okkar við Sony falla
undir skemmtanageirann; kvikmyndir,
myndbönd og myndbandstæki, tónlist,
leikjatölvur, tölvuleikir og sjónvarpsefni. Við
seljum PlayStation leikjatölvur frá Sony og nú
fyrir jólin kom á markað PlayStation 2, vél
sem lengi hafði verið beðið eftir. Að vísu lent-
um við í svolitlum hremmingum því við feng-
um skammtað magn. Höfðum pantað 6.000
tölvur en fengum aðeins 600 stykki. Fjöldi við-
skiptavina varð fyrir vonbrigðum en ástæðan
er sú að tölvukubbur í vélunum, heilinn, er vandframleiddur og
það höfðu einfaldlega komið upp vandkvæði í framleiðslu. Því
erum við enn í þeirri stöðu að fá skammtaðar tölvur og það
ástand mun vara fram eftir marsmánuði.“
StOÍUStáSS Ragnar segir nýju PlayStation 2 tölv-
una mun öflugri og ljölbreyttari en PlayStation 1.
Hún býr yfir innbyggðum DVD spilara og einnig
möguleika á nettengingu. Með því að tengja
hana við sjónvarpið er hún orðin mun fremur al-
hliða afþreyingarvél en einungis tölvuleikjavél.
„DVD er það sem koma skal, á því er enginn
vafi,“ segir Ragnar. „Síðustu jól voru sannkölluð
DVD jól og við sjáum fram á að fólk muni í
auknum mæli kaupa sér myndir á DVD formi.
Myndbandið mun samt sem áður halda velli að
einhveiju marki áfram, en taiið er að DVD
muni ná yfirhöndinni eftir um 2-3 ár. Gæði
DVD mynda, svo og þægindin, eru svo miklu
rneiri að því verður ekki jafnað saman. Þar eru
viðtöl við leikara og leikstjóra, sýnd atriði sem
klippt hafa verið úr og fleira. Fyrir utan mynd-
gæðin ein og sér, sem eru mjög mikil.“ SD
’agnar Birgisson, framkvœmda-
tjóri Skífunnar: „Mest af vidskipt-
m okkar við Sony fellur undir
Hlutverk VUR, viðskiptaþjónustu utanríkisráðuneytisins, er að efla samkeppnisstöðu og árangur íslenskra fyrirtækja á
alþjóðlegum mörkuðum. Þungamiðja starfseminnar er í sendiskrifstofum erlendis en grunnþjónusta í utanríkisráðuneytinu
í Reykjavík. Auk almennrar fyrirgreiðslu vinnur VUR að sérsniðnum verkefnum fyrir einstök fyrirtæki, en einnig eru í boði
skilgreindir þjónustupakkar s.s.:
Fyrstu skrefin
Leitað upplýsinga um hóp fyrirtækja á skilgr. markaði. Valinn listi yfir tiltekinn fjölda fyrirtækja í umdæmislöndum sendiráðs.
Næstu skref
VUR greinir markhópa, leggur mat á kynningargögn og liðsinnir við að koma á fyrstu markaðstengslum.
Viðskiptavaktin
Tiltekinn tími á dag nýtturtil að fylgjast með fréttum af ákv. málefni í umsaminn tíma. Samantekt.
Lönd og markaðir
Stutt samantekt um viðskiptalönd og markaði. Gefin mynd af viðk. landi/markaði miðað við þarfir verkkaupa.
Markaðshæfni vöru
Einföld og árangursrík könnun við mat á útflutningshæfni vöru. Nýtist m.a. við stefnumörkun og markaðssetningu.
VUB á vettvangi
Leiga á viðskiptafulltrúa til fylgdar eða sem fulltrúa fyrirtækisins við tiltekin verkefni.
Eftirfylgni á markaði
Viðskiptafulltrúi viðheldur persónulegum samböndum og fylgir eftir einstökum verkefnum.
VUR viðskiptasetur
Útvegun skrifstofuaðstöðu í sendiráðum ytra. Aðgangur að samskiptatækjum og túlkum.
VUR • Raúðarárstíg 25 • 150 Reykjavík • Sími 560 9930 • Bréfsími 562 4878 • vur@utn.stjr.is • www.utn.stjr.is/vur
99