Frjáls verslun - 01.01.2001, Page 102
%
Hallgrímur Gunnarsson, forstjóri Rœsis. „Mazda leggur mikla áherslu á framleiðslugœði og fyrirtœkið
var fyrst japanskra framleiðenda til að fá ISO 9001 vottun. “ FV-mynd: Geir Olafsson
JAPANSKIR DflGflR
eru tengipunktar milli Daim-
lerChrysler og Mözdu í sam-
bandi við vetnisvélar þar sem
hvor tveggja er í samvinnuhópi
ásamt Ford um efnarafala frá
Ballard Power Systems. Auk áð-
urnefnds þróunarstarfs hefur
Mazda lagt mikla áherslu á fram-
leiðslugæði og nefna má að þeir
voru fyrstir japanskra framleið-
enda til að fá ISO 9001 vottun
(1993-1996) á alla sína fram-
leiðslu og þannig staðfest að
gæði á góðu verði séu aðals-
merki Mözdu.
Samvinna Ford og Mazda Fyrsti
Jjögurra dyra bíllinn frá Mazda
kom fram árið 1962 og þegar árið
1963 hafði fyrirtækið framleitt
eina milljón ökutækja. Nú er
heildarframleiðslan komin vel
Hallgrímur Gunnarsson, forstjóri Ræsis:
Fjölnotabíll frá Mazda
Það nýjasta hjá okkur frá Mazda
(Motor Corporation) er Mazda
Premacy, ijölskyldu- og fjölnotabíll,“
segir Hallgrímur Gunnarsson, forstjóri
Ræsis. „Þetta er bráðskemmtilegur bíll en
einnig er að vænta jeppa, Mazda Tribute,
sem kemur hingað á íyrri hluta árs 2002.
Annars hafa Mazda 323 og Mazda 626 ver-
ið uppistaðan í sölunni en þó einnig alltaf
eitthvað af léttum vöru-, sendi- og „pick-up“
bifreiðum.
Mercedes-Benz er líklega
það sem flestum dettur í
hugþegar Ræsir er nefndur,
en fyrirtœku) flyturlíka inn
Mazda híla frá Japan.
Eftir Vigdísi Stefánsdóttur
„Geníal tíekni" Hallgrímur segir Mazda hafa verið stofnað
árið 1920 í Hiroshima og þá heitið Toyo Cork Ltd. ,Árið 1929
hófu þeir að fi'amleiða vélaverkfæri og upp úr 1931 litla vöru-
bíla (þríhjóla) en stuttu síðar hófst útflutningur, m.a. til Kína.
Það var ekki fyrr en á sjötta áratugnum að bílaframleiðslan fór
verulega á skrið og vörumerkið Mazda, sem bíll, varð þekkt.
Arið 1961 hófst svo tæknilegt samstarf við NSU/Wankel í
Vestur-Þýskalandi um þróun Wankel véla. Mazda hefur einn
allra framleiðenda boðið upp á slíkar vélar, þær eru allt öðru-
vísi en hefðbundnar bílvélar en sprengirýmið gengur í hring
og knýr ás í miðjunni þar sem aftur á móti hefðbundnar vélar
hafa strokka sem ganga upp og niður og knýja sveifarásinn
með örmum. Þetta er alveg snilldartækni sem því miður allt of
fáir framleiðendur hafa sinnt. Mazda tók þessa tækni upp á
sína arma og hefur haldið þróun hennar áfram en fyrirtækið
kynnti nýjustu afurðirnar á bílasýningunni í Detroit týrir
skömmu. Kostir þessara véla eru þeir helstir að þær eru létt-
ari og hafa færri hreyfihluti en hefðbundnar vélar, en gefa þó
jafngott afl. Það er skemmtilegt týrir okkur að í þróunarstarfi
yfir 30 milljónir. Mest er framleitt af Mazda
323, sem einnig er kallaður Mazda Familia í
Japan og Mazda Protege í Bandaríkjunum.
Mazda hóf útflutning á Evrópumarkað 1967-
1968 og í kringum 1970 hóf Bílaborg inn-
flutning hingað til lands. Arið 1979 kom Ford
inn sem eignaraðili að Mazda með um 25%
hlut í fyrirtækinu og jók aðildina upp í 33,4 %
árið 1996. Þetta hefur leitt af sér ýmiss konar
samvinnu Ford og Mazda og hafa Mazda
bílar verið seldir undir nafni Ford, og öfugt.
Háð útllutningi „Ég kann persónulega vel við Japani og þyk-
ir gott að eiga við þá viðskipti. Menningin er allt önnur en okk-
ar og þótt þeir geti verið þungir í viðskiptum og erfiðir, þá veit
maður oftast hvar maður hefur þá. I upphafi fór mest af bílaút-
flutningi Mazda fram í samvinnu við Sumitomo og Itochu, sem
eru dæmigerð Japönsk „trading house“ fyrirtæki en smátt og
smátt hafa þeir tekið dreifinguna í sínar hendur. Mazda er
mjög háð útflutningi og hefur því þurft að rifa seglin dálítið á
síðasta áratug vegna hás gengis japanska jensins, en nýlega
var tilkynnt að þeir myndu hefja framleiðslu í Evrópu innan 2-
3 ára. Þannig munu þeir geta varist gengissveiflum betur, kom-
ið nær markaðnum og veitt helstu keppinautum harðari sam-
keppni. Þetta hafa hinir japönsku framleiðendur gert á undan-
förnum árum með góðum árangri.
Ræsir hóf innflutning á Mazda bílum árið 1990 og var fyrsti
bíllinn afhentur á Þorláksmessu það ár.“ Hjá Ræsi starfa nú
um 50 manns.jl]
Heimasíða Mözdu í Japan (ensk útg.) er: www.e.mazda.co.jp
Heimasíða Ræsis er: www.raesir.is
102