Frjáls verslun - 01.01.2001, Qupperneq 106
Hulda Sigurlína Þórðardóttir er hjúkrunarforstjóri Heilsustofnunar NLFI í Hveragerði. Þar hefur um
nokkurra ára skeið verið boðið upp á námskeið í reykbindindi með góðum árangri. Nú erþar farið afstað
nýtt vikunámskeið sem kennir fólki að minnka streituna í lífi sínu. FV-mynd: Geir Olafsson.
freyjum um daginn og þar var
aldurstakmarkið 2040 ára svo
ég get enn sótt um.“
Eiginmaður Huldu er Sig-
urður Guðmundsson en þau
kynntust veturinn sem hún
hóf nám í Háskólanum. Þau
eiga tvö börn, 11 og 15 ára.
„Við spiluðum bæði blak og
hittumst þannig en reyndar
spilum við blak enn þann dag
í dag og erum í blakdeild
íþróttafélagsins Hamars í
Hveragerði. Það má segja að
blak, og reyndar íþróttir yfir-
leitt, séu áhugamál okkar allra
í ijölskyldunni. Við höfum
ferðast töluvert, bæði innan
lands og utan, og ég er alltaf
að læra að meta Island betur
Hulda Þórðardóttir, NLFÍ
Efdr Vigdísi Stefansdóttur.
Hulda Sigurlína Þórðar-
dóttir er hjúkrunarfor-
stjóri Heilsustofnunar
NLFI í Hveragerði. Þar hefur
um nokkurra ára skeið verið
boðið upp á námskeið í reyk-
bindindi og nú hafa hafist
námskeið sem miðast að því
að kenna fólki að minnka
streituna í lífi sínu.
„Heilsustolhun hefur á að
skipa 140 rúmum og af þeim
eru 20 sem við getum selt til
námskeiða," segir Hulda. „Við
höfúm sex ára reynslu af reyk-
inganámskeiðunum og árang-
urinn af þeim hefur verið um
31%, þ.e. sem eru ennþá
reyklausir eftir eitt ár. Það
þykir mjög góður árangur
þegar um svona vanda er að
ræða. Heilsustofnunin er eini
aðilinn sem leggur inn fólk til
að kenna því að hætta að
reykja en við gerum reyndar
fleira. Við hjálpum fólki að
skoða venjur sínar og höfum
ekki síður að markmiði að
kenna þvi að lifa á annan hátt
og auðvelda því að gera eitt-
hvað í staðinn fyrir reyking-
arnar. Rannsóknir okkar hafa
106
sýnt að þótt fólk standi ekki
við reykbindindið þá breyti
það oft um lífsstíl í kjölfarið.“
I Heilsustoihuninni hófst
nýlega streitunámskeið sem
ætlað er fólki sem komið er
með sterk streitueinkenni án
þess að vera þó komið með al-
varlega sjúkdóma vegna streit-
unnar. Þar má telja vöðva-
bólgu, höfuðverk, magaverki,
einbeitingarskort og þreytu.
„Námskeiðin standa í viku, frá
sunnudagskvöldi til sunnu-
dags,“ segir Hulda. „í meðferð-
inni er boðið upp á leirböð,
nudd og fleira. Auk jjess er
fólki kennt að ná þreytunni úr
líkamanum og að temja sér nýj-
an lífsstíl. Áhersla er lögð á
hreyfingu og tekið er á ýmsum
þáttum heilsunnar en að dag-
skránni koma ýmsir sérfræð-
ingar. Haldin hafa verið nokk-
ur námskeið og árangurinn lof-
ar góðu.Vika er auðvitað ekki
endanleg lausn á langtíma-
vandamálum en hjálpar þó
mjög mikið og hægt er að
kenna ýmislegt um líkama,
hugarfar og lifsstíl á þessum
tíma, enda hefur fólk sjaldnast
lengri tíma í svona lagað.“
Hulda Sigurlína er fædd í
Keflavík og bjó þai' til tveggja
ára aldurs en flutti þá í Kópa-
voginn. Þar festi hún rætur og
hefur meira og minna búið þar
að undanskildum árunum í
Hveragerði og hálfu öðru ári á
Akureyri. „Eg fór í Verslunar-
skólann en þaðan í hjúkrunar-
fræði við HI. Kannski ekki
hefðbundin leið en ég fann að
Verslunarskólinn átti ekki við
mig. Hann var þó góður að því
leyti að þar fer fram mikil og
góð rökhugsunarþjálfrm sem
hefur nýst mér síðan. Það var
eiginlega tilviljun sem réð því
að ég fór í hjúkrun. Ætlunin
var að fara í sjúkraþjálfun en ég
komst ekki að. Þá ákvað ég að
vinna þann veturinn en var
ekki alveg sátt við það og ætl-
aði í læknisfræði. Af því varð þó
ekki því ég hitti góða vinkonu
sem sannfærði mig um það á
20 mínútum að hjúkrun væri
alveg frábært fag. Hún hafði þá
verið einn vetur að læra og það
varð úr að ég gekk út frá henni
með bækurnar undir hend-
inni. Það er með ólíkindum
hvernig hlutirnir geta gerst því
ég ætlaði alltaf að verða flug-
freyja. Eg sá reyndar að það
var verið að auglýsa eftír flug-
og betur og finnst eiginlega
ekkert vanta nema hitann.
Hann sækir maður til útlanda.
Við höfum bæði vaxandi
áhuga á gönguferðum og
erum í gönguklúbbi sem heit-
ir „Líttu þér nær“, en hann var
stofnaður í fyrra sem afrakst-
ur heilsuátaks í Hveragerði og
markmiðið er að ganga um
nágrennið með leiðsögn. Svo
hef ég verið leiðbeinandi hjá
RKI í sálrænni skyndihjálp og
hef mikinn áhuga á þeim mál-
um. En það sem á hug minn
allan núna er málaralistin. Eg
tók upp á því þegar ég flutti til
Hveragerðis að læra að mála
með vatnslitum og ætla að
setja myndir á sýningu hér í
febrúar ásamt tveimur öðrum.
Sýningin verður í Heilsustoih-
un NLFI og mun standa í tvo
mánuði en það var ákveðið af
stjórninni að bjóða starfsfólk-
inu upp á þennan möguleika
til sýningahalds til að ýta und-
ir og efla listsköpun þess. Síð-
ast, en ekki síst, hef ég áhuga
á víngerð, ljósmyndun og
garðrækt, enda vel í sveit sett
hvað það snertir hér í útjaðri
Hveragerðis," segir þessi
hressa kona að lokum. SU