Frjáls verslun - 01.11.2002, Síða 35
BOK BOGfl ÞÓRS SIGURODDSSONAR
Fréttatilkynning Árna og Hallbjörns verður að teljast mistök á sviði almannatengsla og
hvernig bregðast eigi við í krísumálum sem þessum þegar menn fá heila bók yfir sig.
þess þurftí. Almenningur skilur efnisleg rök betur en margur
heldur. Vissulega er það rétt að það fennir fljótt í sporin í svona
málum og þau útvatnast smátt og smátt og víkja fyrir öðrum
dægurmálum sé þeim ekki við haldið. Þess vegna halda sumir
sérfræðingar i almannatengslum þvi fram að best sé að svara
ekki ásökunum, segja ekkert og láta málin deyja út og gleymast.
En hvers vegna ekki að tjá sig þegar aðrar eins ásakanir koma
fram um siðleysi, ef menn hafa hreina samvisku?
Á einum stað í bókinni vísar Bogi Þór til samtals við Árna
Hauksson þar sem Árni á að hafa sagt við hann: „Það er allt
vitlaust í bankanum þvi að það var annar hópur í bankanum sem
var að vinna fyrir manninn sem þú fundaðir með sumardaginn
fyrsta, en við vorum á undan.“ Þessi setning þarfnast skýringar
af hálfu bankans. Var bankinn að vinna fyrir annan mann á sama
tima að sama máli? Hvernig geta viðskiptavinirnir treyst því að
það leki ekki upplýsingar á milli herbergja innan bankans? Þeir
geta auðvitað ekki treyst því.
Þetta samtal Boga og Árna um þriðja manninn vekur upp
margar spurningar um vinnubrögð og viðskiptasiðferði bank-
anna.
Bogi með einkarétt á Húsasmiðjunni? Við lestur bókarinnar
fær maður á tílfinninguna að Boga þyki sem hann hafi haft ein-
hvers konar einkarétt eða forkaupsrétt á að kaupa Húsa-
smiðjuna af þeim systkinum Jóni, Sturlu og Sigurbjörgu og
íslandsbanka. Aðrir hafi hreinlega ekki mátt koma þar nærri.
Þetta er talsverður galli á framsetningu bókarinnar þótt Bogi
hafi vafalaust kveikt eldana, komið málinu á hreyfingu sl. vor,
en ekki auðnast að njóta þeirra. Málið snýst ekki um það hvort
Árni Hauksson hefði haft siðferðilegan rétt á að kaupa Húsa-
smiðjuna, það hafði hann til jafns við Boga og aðra. Málið snýst
um það siðferði Árna, sem undirmanns Boga, að ganga ekki
hreint til verks og vera ærlegur gagnvart honum og segja upp
starfi sínu sem Jjármálastjóri um leið og viðræður þeirra Hall-
björns við Guðmund í Búnaðarbankanum hófust, í stað þess að
leika tveimur skjöldum í málinu og verða fyrir vikið eins konar
úlfur í sauðargæru. Þar er fnykurinn. Ennfremur er sérlega
óheppilegt ef Kaupþing hefur ekki verið búið að afgreiða málið
gagnvart Boga þegar einn starfsmanna þess, Hallbjörn, var
skyndilega orðinn kaupandi. Alveg sama þótt hann hafi hætt hjá
Kaupþingi samdægurs að kaupunum loknum.
Er Bogi að Skjóta Sig í fótinn? Er Bogi Þór að skjóta sig í fótinn
með útgáfu bókarinnar og hvernig mun honum ganga að fá
vinnu annars staðar eftir öll herlegheitin? Þetta eru vangaveltur
margra þessa dagana. Þar skiptast menn algerlega í tvær fylk-
ingar. Sumir halda því fram að útgáfan sé mistök, öðrum finnst
hún frábær og orð í tíma töluð um siðferði í viðskiptum á
íslandi. Tilgangurinn með bókinni og rauði þráðurinn í henni
finnst manni vera að klekkja á Árna Haukssyni og borga fyrir
.
wm
Sparisjóðurinn f Keflavík
Tjarnargata 12
230 Keflavfk
Sími 421 6600
Fax 421 5899
Grundarvegur 23
260 Njarðvík
Sími 421 6680
Fax 421 5833
Sunnubraut 4
250 Garði
Sfmi 422 7100
Fax 422 7931
Víkurbraut 62
240 Grindavfk
Sími 426 9000
Fax 426 8811
Vogar
Iðndal 2 ^
Sfmi 424-6400 &
Fax 424-6401
35