Frjáls verslun - 01.03.2003, Blaðsíða 14
Árelía Eydís Guðmundsdóttir, dósent við
Háskólann í Reykjavík, fjallaði um óþekkt á
vinnustöðum.
Afkösl eða
klukkutímar?
□ þekkt á vinnustað" er það nefnt þegar
starfsmenn gera í vinnutíma sínum
það sem ekki er ætlast til að þeir geri.
Fjallað var um slíka óþekkt á fundi FVH nýlega
og kom m.a. fram að stjórnendur þurfi fyrst að
líta í eigin barm og spyrja sjálfa sig að því hvað
þeir hafi gert sem kallar fram þessa hegðun og
hvort þeir geti sett skýrari mörk. Arelía Eydís
Guðmundsdóttir, dósent við Háskólann í
Reykjavík, benti m.a. á að stjórnendur þyrftu
að gera upp við sig hvort þeir legðu meira upp
úr að starfsmenn skili réttum tímafjölda í vinnu
eða góðum afköstum. 33
Erna Hauksdóttir, framkvæmdastjóri SAF, og Jón Karl Ólafsson, fram-
kvæmdastjóri Flugfélags íslands, sem var kjörinn formaður SAF.
Ferðafijónustan í Evrópuumræðu
i ðalfundur Samtaka ferðaþjónustunnar var haldinn á Hótel Nordica
i í byijun apríl undir yfirskriftinni Ferðaþjónustan í Evrópuumræðu.
I Fundinn sátu á þriðja hundrað manns og var mikil ánægja með
þessa góðu þátttöku. Jón Karl Olafsson, framkvæmdastjóri Flugfélags Is-
lands, var kjörinn formaður samtakanna. S3
Frá fréttamannafundi þar sem Nýtt afl var kynnt. Mynd: Geir Ólafsson
Nýtt afl kynnt
□ rög að stefnuskrá nýrra stjórnmálasamtaka, sem hlotið hafa
nafnið Nýtt afl, voru samþykkt á stofnfundi samtakanna nýlega. Á
fundinum var Guðmundur G. Þórarinsson kjörinn formaður og
varaformaður Jón Magnússon hrl. Framboðslistar hreyfingarinnar ligaa
fljótlega fyrir. S3
t/itnað 1 Vísbendingu
Áskriftarsími: 512 7575
Ekki er fyrirsjáanlegt að erlendur banki
komí hingað og setji upp útibúanet en
ekki er óhugsandi að erlendur banki
kaupi innlendan eða hefji hérviðskipti án
útibúanets. Helsta fjarlægðarvernd
íslenska fjármálakerfisins byggist á því
að íslendingar eru með sjálfstæðan
gjaldmiðil. Ef (slendingar taka upp
evruna mun samkeppnisumhverfi
íslensku fjármálafyrirtækjanna breytast
mjög.
Gylfi Magnússon
ÍSamruni fjármálafyrirtækja).
Til að mynda er möguleiki á því að
[íslenskl fyrirtæki geti valið á milli
þriggja líkana við ársreikningagerð sem
geta dregið upp talsvert ólíkar myndir
af afkomu og efnahag fyrirtækja. Hér á
ég við að samkvæmt lögum er heimilt
að miða ársreikning á árinu 2002 við
verðleiðréttar eða óverðleiðréttar mæl-
ingar og einnig gæti fyrirtæki gert
reikningsskil í erlendum gjaldmiðli. Ég
leyfi mér að fullyrða að hvergi á byggðu
verðbréfabóli sé slíkt heimilt.
Stefán Svavarsson
(Um stöðuna í reikningsskilamálum).
Áhrif virkjana og álvers á hagsæld hér á
landi ráðast af því hvað þessi fyrirtæki
skapa landsmönnum miklar tekjur
þegar þau eru komin upp, rétt eins og
arðsemi Smáralindar byggist á vin-
sældum verslunarhússins eftir að það
var fullbúið. En sú ranghugmynd er
útbreidd að virkjanir byrji að mala gull á
framkvæmdatímanum sjálfum. Stjórn-
málamenn eiga mikinn þátt í að halda
þeirri hugmynd við.
Sigurður Jóhannesson
(Þensla um ókomna tíð?l.
í stefnuræðu sinni í byrjun október tal-
aði forsætisráðherra íslands um að
kosningaþing ættu það til að vera „upp-
hlaupasöm'' og nokkuð um „ístöðuleysi
og yfirboð". Flestir hafa sennilega haldið
að þetta ætti að vera gagnrýni á
andstæðingana en ekki hluti af stefnu-
yfirlýsingunni.
Eyþór iuar Jónsson
[í jarðvegi efnahagsblóma).