Frjáls verslun - 01.03.2003, Blaðsíða 27
er eins og vaxi þörf fyrir að stokka upp spilin og breyta úr flöl-
skylduformi yfir í annað, sem eykur arð af eiginfé. Þá verða
tengslin ekki endilega það sem gefur aðalstjrkinn, heldur geta
þau líka dregið úr framtíðarvexti og afli. Þó að verkaskipting
hafi verið góð og samkomulagið alveg einstakt og hreint út sagt
dásamlegt að hafa allar dætur sínar og tengdasyni í kringum sig
á hveijum degi, þá er engin eftirsjá í neinu sem gert var,“ segir
Jón Hjartarson.
Tengdasynir Jóns og Maríu Júlíu, þeir Oddur og Sverrir,
gáfu kost á að stjórna Húsgagnahöllinni og Intersport í tvö
ár eftir söluna. Jón hefur snúið sér að nýjum og lífsglöðum
verkefnum með ívafi af kaupsýslu, Aslaug og Oddur hafa
opnað í Smáralind glæsilega verslun með postulín og gjafa-
vörur undir nafninu Líf og list, Herdís og Sverrir eiga og
reka Baby Sam og Guðrún Þóra starfar fyrir Islenska erfða-
greiningu. SH
Ölgerðin Egill Skallagrímsson:
SESTIR í HELGAN STEIN
Bræðurnir Tómas Agnar Tómasson og Jóhannes Tómas-
son, sem höfðu verið í stjórn Ölgerðarinnar í nokkra ára-
tugi sem stjórnarmaður og stjórnarformaður, seldu Ölgerð-
ina Egil Skallagrímsson í desember 2000. Kaupendur voru
Islandsbanki (40%) og Gilding (60%) og var kaupverðið 2,1
milljarður króna. Við samruna Gildingar við Búnaðarbanka
eignaðist Búnaðarbankinn Ölgerðina að 60%. Bankarnir
seldu svo Ölgerðina til áfengisheildsölunnar Lindar ehf. sem
er í eigu Einars Friðriks Kristinssonar, framkvæmdastjóra og
eiganda Danól. Kaupverðið var trúnaðarmál en talið að það
hafi verið undir söluverði.
Ölgerðin var stofnuð árið 1913 af TómasiTómassyni. Hann
átti fýrirtækið einn fram til 1932 og var stærsti hluthafinn eftir
það. Hann var forstjóri frá upphafi og gegndi lengi vel jafn-
framt stjórnarformennsku. Þegar hann lést árið 1978 varð
sonur hans, Jóhannes, forstjóri og móðir hans formaður en
þegar hún lést varð Jóhannes einnig stjórnarformaður fyrir-
tækisins enda átti hann þá meirihluta í týrirtækinu. Tómas
Agnar starfaði ekki í fýrirtækinu að öðru leyti en því að sitja í
stjórn. Eftir söluna árið 2000 má segja að bræðurnir hafi sest
í helgan stein. Annar þeirra keypti sér íbúð á Flórída og dvelst
þar megnið af árinu. Hinn sinnir ýmsum verkefnum. H3
Securitas:
Jóhann Óli Guðmundsson, eigandi
tjárfestingafélagsins Frumafls,
stofnaði öryggisgæslutýrirtækið
Securitas árið 1979 og rak sem fjöl-
skyldufýrirtæki þar til hann seldi
starfsmönnum fýrirtækið árið 2000. Guðmundsson.
Securitas er í dag í eigu Guðmundar
Arasonar, Arna Guðmundssonar og Pálmars Þórissonar
(15%) og Sjóvár Almennra. Jóhann Óli er í dag kaupsýslu-
maður og á m.a. ijárfestingafélagið Frumafl, sem á 85 prósent
í Öldungi. Það félag rekur hjúkrunarheimili við Sóltún. 31]
Þorsteinn M. Jónsson. Pétur Björnsson.
llífilfell:
STARFAR SEM
KAUPSÝSLUMAÐUR
Fjölskyldufýrirtækið Vífilfell var selt Coca-Cola Nordic
Beverage árið 2000 í tengslum við skipulagsbreytingar hjá
Coca-Cola samsteypunni um allan heim. Aðaleigendur fýrir-
tækisins hér á landi voru Pétur Björnsson, sem hafði stýrt
Vífilfelli frá 1974, og fjölskylda hans með meirihluta, 55-60%,
Iðunn Björnsdóttir og fjölskylda hennar og eiginkona föður-
bróður þeirra, Guðrún Guðmundsdóttir, og hennar tjölskylda.
Vífilfell hafði áður verið í eigu Björns Ólafssonar stórkaup-
manns og tjölskyldu hans frá því kókverksmiðja var stofnuð á
íslandi 1942.
Pétur Björnsson, fv. forstjóri Vífilfells, segir að eftir skipu-
lagsbreytingarnar hjá Coca-Cola samsteypunni hafi Bandaríkja-
menn tekið við stjórn fýrirtækjanna um allan heim, það hafi lika
gerst hér á landi. Þetta hafi hinsvegar ekki reynst vel og því hafi
verið horfið frá þessu fýrirkomulagi. Nordic Beverage hafi
ákveðið að selja aftur fýrirtækið hér á landi en hann og hans
fjölskylda hafi ekki haft áhuga á því að taka aftur við því. Pétur
hefur starfað sem kaupsýslumaður og átt viðskipti á hlutabréfa-
markaði frá því hann seldi hlut sinn í Vífilfelli.
Vífilfell er í dag í eigu Þorsteins M. Jónssonar, Sigfúsar R.
Sigfússonar og Kaupþings. Hekla og Tryggingamiðstöðin
eiga líka hlut í félaginu. Sigfús er stjórnarformaður. 33
27