Frjáls verslun - 01.03.2003, Blaðsíða 80
HEILSfl OG VELLÍflAN
Að uelja sér maka
W *":?
Anna Valdimarsdóttir sálfræðingur.
Afhverju skilja svo mörg hjón? Eða á kannski að
spyrja: Afhverju tolla svo mörghjón í hjónabandi
áratugum saman?
sem er ósáttur veigrar sér við að ræða málin vegna þess að
rótið og leiðindin, sem fylgja því að reyna að breyta einhveiju,
skapar álag á alla fjölskylduna og er of dýrt tilfinningalega í
samanburði við það sem út úr því kemur.“
Anna segir fleiri konur koma til sín vegna hjónabands-
vandamála eða hugleiðinga um skilnað. Þær hafi oft á tíðum
verið ósáttar lengi en annir vegna barnauppeldis og lífsgæða-
kapphlaups haldið aftur af þeim.
,Á meðan börnin eru ung og hjónin eru á kafi í að koma sér
þaki yfir höfuðið og koma sér áfram á vinnumarkaðnum er oft
ekki mikill tími til að ræða neitt umfram brýnustu mál dags-
ins,“ segir Anna. „Stundum ýta pör vandamálunum til hliðar
og þegar kemur að því að þau hafa meiri tíma saman finna þau
fyrir tómleika og skorti á nánd. Allt í einu er ekkert til að ræða
um og fátt sem parið langar til að gera saman. Hræðslan við að
afhjúpa tómarúmið í hjónabandinu verður stundum til þess að
spurningar eru látnar liggja milli hluta sem nauðsynlegt er að
spyija. En það eru spurningar eins og: Hvað finnst okkur
gaman að gera saman? Hvernig getum við bætt samband
okkar og hvers vegna völdum við hvort annað? Kreppa í
hjónabandi getur verið tækifæri til að byrja upp á nýtt. Þegar
hjón byija að ræða saman um líðan sína og langanir getur það
orðið til þess að þau nálgast hvort annað á nýjan leik.“
egar farið er að skoða hugtakið hjónaband/samband,
kemur ýmislegt í ljós. Af hveiju veljum við einmitt þann
sem við veljum? Hvenær er nógu mikið að í sambandi til
að slíta? Hvernig á að velja maka sem hentar manni? Anna
Valdimarsdóttir sálfræðingur hefur velt þessum spurningum
mikið fyrir sér og skrifað metsölubókina „Leggðu rækt við
ástina“ þar sem kennir margra grasa.
Umræðurnar Of dýrar „Þroski mannsins tekur tíma,“ segir
Anna um leið og hún hallar sér aftur á
bak í stólnum sínum og horfir íhugul
á viðmælanda sinn. „Það að vita hvað
maður vill og treysta sér til að fram-
fylgja því er nokkuð sem yfirleitt ger-
ist á löngum tíma og það er ein
ástæða þess að stundum skilur fólk
eftir margra ára hjónaband. Stundum
ríkir óheppilegt mynstur í hjónabandi
árum saman sem ekkert er gert í.
Ástæður þess geta verið margvísleg-
ar, ein er sú að það tekur tíma að átta
sig á mynstri og gera sér grein fyrir
hvað sé raunverulega að gerast.
Önnur er sú að stundum finnst
öðrum aðilanum allt vera í lagi en sá
Makavalíð „Það er auðvelt að verða ástfangin - ekki síst
þegar við erum svolítið einmana og finnst eitthvað vanta í líf
okkar,“ segir hún. „Og þegar svo er, hættir okkur til að sjá það
sem við viljum sjá í fari þess sem við hrifumst af.
Það er mikilvægt að hafa í huga að þótt einhver veki hrifn-
ingu okkar og kynferðislega löngun er ekki þar með sagt að
hann henti okkur sem lífsförunautur. Þegar við veljum okkur
maka þurfum við að beita góðri dómgreind og leggja mat á
mannkosti viðkomandi þótt við viljum auðvitað líka að neisti
og kynferðisleg aðlöðun sé til staðar.
Við þurfum að finna samrænfi í því
sem snertir okkur dýpst eins og lífs-
viðhorfi, gildismati og siðgæðisvitund
og vera nokkuð sammála um hvað
skipti mestu máli í lifinu. Að þessu
leyti má segja að lík börn leiki best.
Samt á það einnig við að andstæð-
urnar heilli. Við kærum okkur ekki
um spegilmynd af sjálfum okkur,
heldur viljum við félaga sem getur
verið okkur jafn góður og við honum.
Hamingjusamt hjónaband byggist á
tveimur einstaklingum sem elska
mannkynið og finnst lífið þess virði að
lifa því - og hafa fyrir því.“ SD
í upphafi skyldi endinn skoða
Eruð þið sammála um huað gefur lífinu gildi?
Geturðu treyst henni/honum?
Talar hún/hann frjálslega um hugsanir sínar
og gerðir eða hefurðu á tilfinningunni að
hún/hann uinsi úr?
Segir hún/hann þér satt?
Huaða sögu segir fortíðin?
Uppfyilir hún/hann þínar tilfinningalegu þarfir?
Sýnir hún/hann þér uirðingu í uerki? Huernig
bregst hún/hann uið þegar þið eruð ósammála
og þarfir ykkar fara ekki saman?
Er hún/hann gúð manneskja?
80