Frjáls verslun - 01.03.2003, Blaðsíða 82
HEILSfl OG VELLÍÐAN
Margrét Ágústsdóttir: „Oft nægir okkur aðeins að staldra við og
hlusta, gefa okkur smá tíma með sjálfum okkur og þá er gott að vera
í umhverfi þar sem hægt er að fá leiðsögn frá fagfólki."
NordicaSpa
NordicaSpa er heilsurækt á heimsmælikvarða
sem hefur það að markmiði að bjóða persónulega
þjálfun í fallegu og rólegu umhverfi.
eir sem áður stunduðu líkamsrækt á Hótel Esju geta nú
farið að anda léttar því innan skamms, nánar til tekið
þann 2. maí kl. 06.00 opnar glæsileg heilsurækt í
Nordica Hótel. Heilsuræktin hefur fengið nafnið NordicaSpa
og verður þar lögð áhersla á andlega og líkamlega vellíðan við-
skiptavina.
„Markmið okkar er að bjóða framúrskarandi þjónustu á
öllum sviðum heilsuræktar," segir Margrét Ágústsdóttir, fram-
kvæmdastjóri NordicaSpa. ,Allir viðskiptavinir okkar hafa
aðgang að þjálfara sem fylgir þeim eftir í tækjasal og vilji þeir
einkaþjálfara er það ekkert mál. í upphafi eru viðskiptavinir
Heilsulind í heilsulind NordicaSpa hefur verið
vandað sérstaklega til allrar aðstöðu. Þar geta við-
skiptavinir slappað af í fallegu og rólegu umhverfi
og látið þreytu dagsins líða úr sér. I heilsulindinni
eru meðal annars tveir pottar með slakandi og
mýkjandi þörungum og einn stór 20 manna nudd-
pottur. Boðið eru upp á herðanudd í pottum. Þar
að auki eru tvær blautgufur með nærandi, mýkj-
andi og frískandi olíum. Hannaður hefur verið
aflokaður garður fyrir utan heilsulindina þar sem
gestir geta notið ferska loftsins eða farið í þurr-
gufu í bjálkakofastíl. í heilsulindinni er einnig boðið upp á
fyrsta flokks nudd og fjölbreyttar líkamsmeðferðir. Vel
menntaðir nuddarar og meðferðarfræðingar bjóða upp á ýms-
ar leiðir til að auka heilbrigði og vellíðan. Þar verður m.a.
boðið upp á steinanudd og höfuðbeina- og spjaldhryggjar-
meðferð. „Þannig að það er óhætt að segja að allir ættu að
geta fundið eitthvað við sitt hæfi,“ segir Margrét.
„Ekki má svo gleyma Clarins snyrtistofunni en þar leggjum
við áherslu á að bjóða andlitsmeðferð og snyrtingu fyrir konur
jafnt sem karla. Við viljum einmitt hvetja karlmenn til þess að
nýta sér þessa þjónustu enda orðið sjálfsagt að karlmenn
hugsi líka vel um útlitið."
Heilsufæði Eftir æfingar geta viðskiptavinir gætt sér á
hollum réttum og heilsudrykkjum í notalegri aðstöðu
móttökunnar. Ef veður leyfir er hægt að sitja úti undir beru
lofti í garðinum og þeir sem kjósa geta tekið matinn með sér.
„Ég tel mig ekki ýkja þegar ég fullyrði að þetta sé glæsi-
legasta og best búna heilsurækt á íslandi," segir Margrét.
„Hvort sem viðkomandi ætlar að stunda hefðbundna líkams-
rækt eða dekra við sig á annan hátt, bjóðum við viðskipta-
vinum bestu þjónustu sem völ er á.“ Blj
heilsufarsmældir, þjálfari fer yfir stöðumat og setur
upp æfingakerfi fyrir viðkomandi. Einnig fær við-
skiptavinurinn næringarráðgjöf og sér þjálfarinn
um að fylgja æfingaáætlun vel eftir.“
Margrét er enginn nýgræðingur í heilsurækt
því hún hefur verið viðloðandi heilsurækt í rúm 20
ár allt frá því hún bytjaði sjálf í heilsurækt vestur í
bæ. Hún er viðskiptafræðingur frá Bifröst, hefur
unnið síðustu árin sem framleiðslu- og fram-
kvæmdastjóri á auglýsingastofum og var fyrsta
konan á íslandi sem útskrifaðist sem offset-
prentari.
Heilsurækt „í tækjasalnum hefur ekkert verið til
sparað,“ segir Margrét. „Yið erum með fyrsta
flokks PULSE fitness líkamsræktartæki, cardio
tæki og spinninghjól en PULSE fitness er þekkt
fyrir hönnun og framleiðslu á vönduðum og traust-
um líkamsræktartækjum. Sjálfur tækjasalurinn er
bjartur og rúmgóður. Hægt er á góðviðrisdögum
að opna út í lokaðan garð.“
82