Frjáls verslun - 01.03.2003, Blaðsíða 19
Bílanaust:
I POULSEN OG YMSUM OÐRUM REKSTRI
Matthías Helgason, Elín Ragnarsdóttir og börn þeirra
seldu bílavarahlutaverslunina Bílanaust sumarið 1999.
Börnin Reynir, Lovísa, Lúðvík, Baldvin Smári og Ragnar
störfuðu með foreldrum sínum við fyrirtækið þegar það var
selt þannig að það var ekta fjölskyldufyrirtæki. Reynir Matthí-
asson, framkvæmdastjóri Poulsen, segir að freistandi tilboð
hafi borist frá Islandsbanka, Burðarási, Slípivörum og verk-
færum, Filtertækni og Eignalind og samstaða hafi verið
innan ijölskyldunnar um að taka því.
Núverandi framkvæmdastjóri fyrirtækisins er Hermann
Guðmundsson en hann hafði frétt af því að fjölskyldan Væri
tilbúin til að selja og átti frumkvæði að kaupunum.
Fyrirtækið Bílanaust var stofnað árið 1962 af Matthíasi og
Hákoni Kristinssyni, sem einnig voru saman með verslunina
Stapafell í Keflavík. Nokkrum árum
síðar skiptu þeir með sér eignunum
og Matthías tók við Bílanausti og rak
með fjölskyldu sinni fram til 1999.
Matthías og Elín settust í helgan stein
eftir söluna og dvelja tvo mánuði á ári
á Spáni. Lúðvík rekur í dag Radíóþjón-
ustu Sigurðar Harðarsonar, RSH,
Reynir og Ragnar eiga ásamt Lovísu
systur sinni meirihluta í Poulsen á
móti Kristjáni Jónssyni og er Reynir
framkvæmdastjóri. Baldvin Smári á og
rekur kaffihús á Spáni. Fjölskyldan er
jafnframt með fasteignarekstur undir
heitinu Borgargarðurinn ehf. 35
Ellingsen:
ÞRIÐJA KYNSLÚDIN
IIIÐ STJÓRNVÖLINN
Olís keypti allt hlutafé í Ellingsen ehf. af Othar Peter Ellingsen og
afkomendum hans sumarið 1999 en fyrirtækið hafði verið í eigu íjöi-
skyldunnar frá því verslunin var stofnuð árið 1916. Fyrirtækið hafði átt við
rekstrarerfiðleika að stríða. Eignarhaldið hafði dreifst á sjö aðila og höfðu
margir hluthafar áhuga á að fá hlut sinn greiddan út. Þriðja kynslóð stýrði
fyrirtækinu þegar ákvörðun um sölu var tekin og var Ottar Birgir Elling-
sen framkvæmdastjóri og Gísli Örn Lárusson stjórnarformaður og hættu
þeir báðir eftir söluna. Óttar Birgir gerðist framkvæmdastjóri Stjörnunnar
og er nú sjálfstætt starfandi í verslun með Nu Skin snyrtivörur og fæðu-
bótarefni. Stjórnarformennska Gísla Arnar var hins vegar bara hlutastarf.
Auk þeirra störfuðu ýmsir aðrir úr ljölskyldunni í fyrirtækinu. Ellingsen
var sameinað Sandfelli árið 2000 og í dag heitir sameinað fyrirtæki Olís-
Ellingsen. 35
SNERU SER
AÐ ÖÐRU
Baugur keypti íþrótta- og útilífs-
verslunina Útilíf í Glæsibæ vorið
1999 en fyrirtækið var stofnað árið
1974. Aðaleigendur voru María Tóm-
asdóttir og íjölskylda, sem höfðu
stofnað fyrirtækið. Synirnir Tómas
Bjarnason og Arnar Orri Bjarnason
störfuðu áfram við verslunina fyrst
eftir söluna en sneru sér síðan að
öðrum verkefnum. 35
19