Frjáls verslun - 01.03.2003, Blaðsíða 56
1 '
Breski athafnamaðurinn
Philip Green missti sig
algjörlega gagnvart Juliu
Finch, kauphallarritstjóra
Guardian. Blaðið svaraði fyrir
sig og birti brot af því sem
hann sagði í reiðikastinu.
Green: „Þið vitið ekki hvað þið
eruð að lesa. Og það veit þessi lan
Griffith heldur ekki. Þú skalt bara
„f...“ reka hann. Þú hefur ekki „f...“
vit á þessu. Á ég að taka þig í kennslu-
stund? Farðu upp í bílinn þinn og
komdu á „f...“ skrifstofuna mína... Þið
eruð ekki læs þið þarna. Þið ættuð
ekki að fá að skrifa í „f...“ blöðin."
Breski athafnamaðurinn Philip
Green, sem keypti Arcadia m.a. af
Jóni Asgeiri, jós úr skálum reiði
sinnaryfir blaðamann The
Guardian. Hann var svo kjaftfor og
orðljótur að Guardian sá ástæðu til
að prenta valda kafla á forsíðu.
Orðbragð hans varð sérstakt frétta-
efiti. Við fjöllum hér um petta ein-
staka mál oggluggum í viðtalið.
Texti og myndir: Sigrún Davíðsdóttir í London
Breski athafnamaðurinn Philip Green
hefur verið fastagestur í breskum fjöl-
miðlum undanfarin ár eftir að hann fór
að kaupa upp þekktar verslanakeðjur hér.
Eins og kunnugt er hafa leiðir Greens og
Jóns Asgeirs Jóhannessonar, forstjóra
Baugs, legið saman í Arcadiu og víðar.
Philip þessi Green yfirtók að vísu Arcadia
án Jóns Ásgeirs og þeirra Baugsmanna.
Lítum aðeins betur á Philip Green. Eftir
kaupin á British Home Store, Bhs, fyrir
nokkrum árum var sagt að hann hefði
slegið hraðamet í að vinna sér inn milljarð
punda. Á fimm árum varð hann viðskipta-
kóngur með 2.500 búðir og 13 prósent
breska fatamarkaðarins. Bhs-veldið er
metið á milljarð, en hann keypti það fyrir
200 milljónir.
Núna er Green í brennidepli ljölmiðl-
anna því að hann hefur boðið 3 milljarða
punda í kjörbúðakeðjuna Safeway. Þar
keppir hann við fimm aðra aðila, Wm Morri-
son, sem er upphaflega skosk kjörbúða-
keðja, og svo stóru keðjurnar Tesco, Sains-
bury og Asda í eigu bandaríska Wal-Mart
veldisins. Þegar breska samkeppnisstofn-
unin birti úttekt sína um áhrif hugsanlegra
kaupa á samkeppni kom Green best út úr
þeirri umijöllun. Hann stendur því vel að
vígi en útkoman er enn óviss. Green er því
vísast glaðbeittur þessa dagana.