Frjáls verslun - 01.03.2003, Blaðsíða 45
Nærmvnd Grímur Sæmundsen
Grímur hefur verið í viðskiptum nánast alla tíð frá því að
hann lauk læknisfræðinni. Bláa lónið var stofnað 1992 af
Islenska heilsufélaginu og Grindavíkurbæ og hefur hann
stýrt því frá upphafi.
Ör 09 ÓþoMnmÓður Grímur hefur ríkt frumkvöðulseðli og
háleitar hugsjónir á sviði viðskipta og félagsmála enda má
segja að ekki geti hver sem er byggt upp fyrirtæki á borð við
Bláa lónið, ýtt því af stað, fengið tjármagn og menn til að taka
þátt í slíku ævintýri. Helgi Magnússon, framkvæmdastjóri
málningarverksmiðjunnar Hörpu-Sjafnar, segir að Grímur
eigi stærstan þátt í því að Bláa lónið er best sótti ferðamanna-
staðurinn á íslandi. Grímur var stjórnarformaður Lytjaversl-
unar Islands þegar valdabarátta kom þar upp fyrir tveimur
árum og trúnaðarbrestur varð milli manna. Grímur er sagður
hafa þroskast mikið á þessum átökum og náð sér vel.
Hvað gallana varðar er Grímur ör og óþolinmóður og fer
stundum fram úr sjálfum sér. Hann er óstundvís og veit af
þeim galla og hefur meðvitað reynt að vinna með hann. Hann
á auðvelt með að gera grín að sjálfum sér, t.d. þegar hann
bauð til 40 ára afmælis um árið og áminnti menn um stund-
vísi í boðskortinu. Hann getur tekið gríni. Eins og áður hefur
komið fram er hann ákveðinn og ýtinn og því þarf samstarfs-
fólk hans að vera með bein í nefinu.
l'.ÍfyL.iJ y.::4 w 2 : : -M
■ t ; æ í
Meistarar lávarðadeildar. A Pollamóti á Akureyri sumarið
2000.
við þróun félagsins og mótun framtíðarsýnar þess. Sigurður
Lárus Hólm, verkfræðingur hjá Vatnaskilum og vinur Gríms
frá þvi í menntaskóla, segir að íþróttafélögin í landinu séu börn
síns tíma og að hann sé ekki í nokkrum vafa um að reynsla
Gríms frá uppbyggingu fyrirtækja og rekstri þeirra ásamt
djúpum skilningi hans á rótum Vals og hvað Valur stendur fyrir
muni nýtast vel í þeirri uppbyggingu sem er framundan á
Hlíðarenda, jafnt á mannvirkjum sem félagslegum þáttum.
Mikill Valsari Grímur er margfaldur bikar- og íslands-
meistari í knattspyrnu með Val en hann lék með meistara-
flokki liðsins í 14 ár og var fyrirliði þess á gullaldarárunum
upp úr 1980. Grímur hefur enn áhuga á sinni gömlu íþrótta-
grein og hittir reglulega gamla félaga á vellinum. Hann hefur
einnig gegnt margvíslegum trúnaðarstörfum fyrir félagið, var
kjörinn formaður knattspyrnudeildar félagsins árið 1999 og í
haust var hann kjörinn formaður Knattspyrnufélagsins Vals.
Helgi Magnússon kynntist Grími á gullaldarárunum þegar
Grímur var leikmaður og Helgi var í stjórn félagsins. Hann
segir að formennskan sé tímafrek og mikil vinna og því þurfi
mikinn hugsjónamann til að fórna sér í slíkt starf. Grímur sé
einfaldlega svo mikill Valsari að hann sé tilbúinn til þess.
Mikið uppbyggingarstarf er framundan á Hliðarenda, m.a.
Lax, tjolf og hestamennska Grímur er vel tengdur maður
og hefur alla tíð verið afskaplega virkur í félagsmálum. Hann
beitti sér m.a. að íþróttastarfi í félagslífi MR-inga á sínum tíma.
Grímur hefur verið virkur í Sjálfstæðisflokknum. Hann hefur
áhuga á laxveiði og er til að mynda í veiðiklúbbnum Svart-
höfða, sem kenndur er við samnefndan veiðistað í Borgarfirði,
og félagsskapnum Smálöxum. Hann leikur golf, fer á hverju
ári á skíði og gengur vítt og breitt um landið með félögum sín-
um í gönguklúbbnum Labbabarar. Hann hefur einnig verið að
fikra sig áfram í hestamennsku með dóttur sinni.
Grímur er svo heppinn að eiga auðvelt með að kúpla sig
frá önnum dagsins og Sigurður Lárus segir að hann geti
hvílst og sofnað hvar sem er og hvenær sem er. Það sé gott
dæmi um mann sem hafi vald á umhverfi sínu. S3
Grímur Karl Sæmundsen
Fæddur í Reykjavík 4. febrúar 1955.
Fjölskylda Kvæntur Björgu J ónsdóttur
söngkonu og eiga þau þrjú börn, Jón
Gunnar, 26 ára nema í viðskiptafræði við
HI, Sigrúnu, 17 ára menntaskólanema,
og Pétur, 16 ára grunnskólanema.
Foreldrar Guðrún Sigríður Guðmunds-
dóttir Sæmundsen ritari og Pétur Júlíus
Sæmundsen bankastjóri. Hann er látinn.
Bræður hans eru Evald Eilert sálfræð-
ingur, f. 1948, og Ari Kristján, f. 1951.
Nafnið Sæmundsen er komið frá langafa
Gríms í föðurættina sem tók upp nafn
fósturföður síns en þá var í tísku að gefa
nöfnum danskt yfirbragð.
Menntun Stúdentspróf (MR 1975),
Cand. med. (HI1981), almenntlækninga-
leyfi (1983), íþróttalækningar (London
Hospital Medical College 1984-'85).
Starf Aðstoðarlæknir á slysadeild
(1983-1984), sjálfstætt starfandi heimilis-
læknir í Reykjavík ásamt þjónustu við
íþróttafólk (1985-1988). Hefur starfað
síðan við eigin fyrirtæki, nú síðast Bláa
lónið og sinnt viðskiptum. Hefur sinnt
ýmsum störfum, fyrst og fremst fyrir
íþróttahreyfinguna.
Áhugamál íþróttir, félagsstörf og heil-
brigðismál.