Frjáls verslun - 01.03.2003, Blaðsíða 47
Dýrmæt eiyn „ímynd fyrirtækja
er eitt af því dýrmætasta sem það
á,“ segir Liz. „Slæm eða engin
ímynd fyrirtækis hefur skaðleg
áhrif á viðskiptin. Fólk hefur til-
hneigingu til að sniðganga fyrir-
tæki sem það þekkir ekki og enginn
hefur heyrt af og ef ímyndin er
slæm er staða fyrirtækisins enn
verri. Það er því að mínu mati góð
Ijárfesting að skapa góða ímynd
sem gefur sanna mynd af fyrirtæk-
inu eða stofnuninni."
Almannatengsl og ímyndar-
sköpun eiga sér víða stað, bæði
innan fyrirtækis og utan þess.
Margir ytri þættir hafa bein eða
óbein áhrif á ímyndina til góðs eða
ills. Það er því að mörgu að hyggja
þegar kemur að ímyndarmálum og
hefur Elizabeth haldið ijölmörg
námskeið þar að lútandi, meðal
annars í Reykjavík og á Akureyri og
fleiri eru á döfinni. En hvernig á að
bæta ímynd fyrirtækja? Eru ein-
hveijar töfraleiðir til?
„Heppilegasta leiðin fer eftir eðli
fyrirtækisins og stöðu þess hverju
sinni, þannig að ekki er hægt að
tryggja neinar töfraleiðir,“ segir
Elizabeth. „Hins vegar eru nokkur
atriði sem öllum fyrirtækjum og
stofnunum er nauðsynlegt að hafa í
huga - ekki bara á meðan á ein-
hveiju átaki stendur, heldur alla tíð.
Þetta eru atriði eins og jákvæð
umijöllun í Ijölmiðlum, góð vefsíða,
stöðug kynning, bein og óbein, gott
viðmót starfsfólks og að loforð
standist. Algengt er að forráða-
menn fyrirtækja telji að aðeins sé
hægt að fá ijölmiðlaumijöllun þegar
ný vara kemur á markað en átti sig
síður á því þegar eitthvað fréttnæmt
gerist, vegna þess hve nátengdir
þeir eru fyrirtækinu og starfsemi
þess. Hlutverk PR-fólks er meðal
annars það að vekja stjórnendur til
umhugsunar um hvað teljist frétt-
næmt og hvernig hægt sé að koma
fyrirtæki eða stofnun á lramíæri."
Topp tíli! Elizabeth hefur haldið
ijölmörg námskeið fyrir fyrirtæki
og stofnanir um gildi almanna-
47