Frjáls verslun - 01.03.2003, Blaðsíða 24
sala FJÖLSKYLDUfrrtækja
Hildur Petersen, fv. stjórnarformaður Hans Petersen, hefur setið í
stjórn ýmissa fyrirtækja, stofnana og félaga.
Hans Petersen:
STJÓRNARSETA 06
REKSTRARFÉLAG
Skeljungur hf. keypti tæplega 90 prósenta hlut í Hans Petersen hf. í
lok ágúst 2000 af hópi hluthafa undir forystu Hildar Petersen,
þáverandi starfandi stjórnarformanns, og Islandsbanka-FBA Kaup-
verðið var tæplega 667 milljónir króna, þar af komu um 54 prósent í
hlut ijölskyldunnar. Fjórir Ijölskyldumeðlimir voru starfandi hjá fyrir-
tækinu fyrir söluna, Hildur og systir hennar, Guðrún D. Petersen, Elín
Agnarsdóttir, markaðsstjóri verslana, og Jens Ormslev tæknimaður.
Hildur og Guðrún hættu hjá fyrirtækinu við söluna. Hildur hélt
áfram öðrum störfum sem hún hafði sinnt og er í dag stjórnarformaður
ÁTVR og situr í sljórn SPRON og FKA. Guðrún er stjórnarformaður
fasteignafélagsins Guðrúnar M. Petersen, sem á m.a. húsnæði í Austur-
veri, fasteign á Egilsstöðum og húsnæði Hans Petersen við Bankastræti
í Reykjavik. Félagið hefur nýlega selt hlut sinn í Kringlunni og Glæsibæ
og seldi fasteignina að Lynghálsi 1 fyrir nokkrum árum.
Hans Petersen hf. er tæplega aldargamalt fyrirtæki. Hans P Peter-
sen hóf rekstur fyrstu verslunarinnar árið 1907 í Bankastræti 4, þar
sem fyrirtækið rekur enn verslun. Guðrún M. Petersen, eiginkona
hans, tók við rekstrinum árið 1938 og stýrði því með aðstoð sona sinna
í mörg ár. Hans P. Petersen yngri tók smám saman við og stýrði þar til
hann lést 1977. Frá árinu 1974 var Adolf Karlsson framkvæmdastjóri
fyrirtækisins en í janúar 1979 kom þriðja kynslóðin að stjórn þegar
Hildur Petersen, dóttir Hans P Petersen yngri, tók við starfi fram-
kvæmdastjóra. Hildur gegndi því fram til 2000 að Karl Þór Sigurðsson
tók við og Hildur gerðist starfandi stjórnarformaður. Skömmu áður,
eða 1997, hafði fyrirtækinu verið skipt upp í rekstrarfélagið Hans
Petersen hf. og fasteignafélagið Guðrúnu M. Petersen hf. S3
Kexuerksmiðjan Frón:
MESTUR TÍMI
FER í KSÍ
Eggert Magnússon og eiginkona hans, Guðlaug N.
Olafsdóttir, seldu Kexverksmiðjuna Frón árið 2000
og voru kaupendurnir Islensk-ameríska og Innnes en
það er Islensk-ameríska sem á Frón í dag. „Eg var
búinn að stefna markvisst að þessu í einhvern tíma því
að mér fannst þessi eining ekki nógu stór til framtíðar,
80 prósent af sölunni var til tveggja viðskiptavina og
slíkt gengur ekki til framtíðar. Það var því tvennt sem
kom til greina, að kaupa annað fyrirtæki og sameina
þessu eða að selja fyrirtækið. Eg ákvað að selja þvi að
þetta var hentugur tími til þess,“ segir Eggert Magn-
ússon, formaður KSI.
Kexverksmiðjan Frón hafði lengi verið í eigu tjiil-
skyldu Eggerts Magnússonar þegar hann og eigin-
kona hans keyptu hana snemma á tíunda áratugnum,
fyrst rúmlega helming um 1994-1995 og svo afganginn
1997. Eggert og eiginkona hans hættu bæði störfum
hjá fyrirtækinu við söluna og sneri Eggert sér í
auknum mæli að ýmsum hugðarefnum sínum enda
fólst lífeyrir hans í fyrirtækinu. Hann rekur rekstrar-
og fasteignafélagið Skúlagötu 28 ehf., situr í stjórnum
fyrirtækja og sinnir ráðgjöf. „Mestur tími hefur þó
farið í störf fyrir íslenska og alþjóðlega knattspyrnu.
Eg sit nú í framkvæmdastjórn Knattspyrnusambands
Evrópu sem veltir 200 milljörðum íslenskra króna á
ári,“ segir hann. SH
Eggert Magnússon, fv. framkvæmdastjóri Kexverk-
smiðjunnar Fróns, hefur fyrst og fremst sinnt
hugðarefnum sínum á vegum KSÍ.
24