Frjáls verslun - 01.03.2003, Blaðsíða 28
sala FJÖLSKYLDUfyrirtækja
Steypustöðin:
REKA FASTEIGNAFÉLAG
Valfellsi]ölskyldan seldi hlut sinn í
fyrirtækjum flölskyldunnar, Steypu-
stöðinni, Steypustöð Suðurlands,
Vinnuvélum, Steypi og Einingaverk-
smiðjunni í haust en Steypustöðin var
stofnuð af Sveini B. Valfells iðnrekanda
1947. Fyrir söluna höfðu bræðurnir dr.
Agúst og Sveinn Valfells starfað við
fyrirtæki ijölskyldunnar, Sveinn sem
framkvæmdastjóri í 35 ár og dr. Ágúst
sem stjórnarformaður síðustu ára-
tugina. Jafnframt þessu hefur Agúst séð
um fasteignafélagið Skeifuna 15 sf., sem
rekur m.a. fasteignina Kjörgarð við
Laugaveg og Faxafen 8 auk þess sem
Valfellsbræður eiga rúm 12 prósent í
Smáralindinni. Valfellsfjölskyldurnar
hafa stundað verðbréfaviðskipti töluvert
á síðustu árum og komið að ýmsum
Sveinn B. Valfells og dr. Ágúst Valfells. fyrirtækjum. B3
A. Karlsson:
HAFÐI SJÁLFUR ÝJAÐ AÐ KAUPUM
Lyljaverslun íslands hf. keypti í árslok 2001 allt hlutafé í um-
boðs- og heildversluninni A. Karlssyni hf. af Aðalsteini
Karlssyni og eiginkonu hans, Steinunni M. Tómasdóttur,
sem stofnuðu fyrirtækið árið 1974. Við kaupin varð Aðal-
steinn einn af stærstu hluthöfum í Ljdjaverslun Islands. I
byijun ársins 2002 sameinaðist Lyljaverslun Islands svo
Thorarensen-Lyhum en það fyrirtæki var í eigu ljögurra Ijöl-
skyldna; Svölu, Ölmu og Elínar Stefánsdætra, sem hver um
sig átti 30 prósenta hlut, og Guðmundar Hallgrímssonar, fv.
eiganda Lyija, sem átti 10 prósenta hlut. Eftir sameininguna
er Aðalsteinn einn af stærstu hluthöfum í fyrirtækinu.
„Ég hafði ekki hugsað mér að selja fyrirtækið. Ég hafði
áður ýjað að því að kaupa Lyfjaverslun Islands því að þessi
tvö fyrirtækið áttu mikil og góð viðskipti saman en það varð
ekkert úr því. Stjórn Lyfjaverslunar Islands taldi síðan
áhugavert að sameina þessi fyrirtæki og gerði mér ásættan-
legt tilboð sem ég ákvað að taka,“ segir Aðalsteinn Karlsson.
Fjölskyldufyrirtækið Thorarensen-Lyf á rætur að rekja til
ársins 1919 þegar Stefán Thorarensen apótekari hóf inn-
flutning og dreifmgu á lyfjum og stofnaði Laugavegs apótek
og heildsöluna Stefán Thorarensen hf. Árið 1996 samein-
aðist Stefán Thorarensen hf. fyrirtækinu Lyljum hf., sem
Guðmundur Hallgrímsson lyljafræðingur stofnaði 1970 og
breyttist þá nafnið í Thorarensen-Lyf hf. Samsteypan heitir
í dag Líf hf. og hefur ýmis fyrirtæki innan sinna vébanda,
m.a. Thorarensen-Lyf og A. Karlsson.
Fjölskylda Aðalsteins hefur ekki starfað mikið við A. Karlsson
fyrir utan Aðalstein sjálfan sem byggði það náttúrulega upp og
leiddi frá upphafi. Dóttir hans, Heiða Lára Aðalsteinsdóttir
markaðsfræðingur starfar þó við Líf hf. í dag. Þess má geta að
Stefán Bjarnason, framkvæmdastjóri Thorarensen-Lyfja, er
sonur Ölmu og Bjarna Bjarnasonar og því þriðji ættliðurinn
við stjórn í fyrirtækinu. BH
28