Frjáls verslun - 01.03.2003, Blaðsíða 18
sala FJÖLSKYLDUfyrirtækja
Sigurður Gísli Pálma- Ingibjörg Pálmadóttir. Lilja Pálmadóttir.
son.
Jón Pálmason.
Hagkaup:
SKIPTU MILLI SÍN EIGNUNUM
Fjölskyldufyrirtækið Hagkaup var stofnað árið 1959 af Pálma
Jónssyni. Bræðurnir Sigurður Pálmi og Jón Pálmasynir byij-
uðu snemma að starfa með föður sínum við fyrirtækið og
smám saman varð Sigurður framkvæmdastjóri og Jón inn-
kaupastjóri. Systurnar Ingibjörg og Lilja komu hins vegar lítið
að fyrirtækinu, Ingibjörg þó aðeins í sumarvinnu á unglingsár-
unum. Hagkaupsflölskyldan keypti helminginn í Bónus árið
1992 og seldi svo Kaupþingi og FBA eignir sínar í Hagkaup og
Bónus vorið 1998. Söluverðið hefur ekki verið gefið upp en bú-
ast má við að það hafi skipt milljörðum króna. FBA og Kaup-
þing sameinuðu Hagkaup og Bónus og settu á markað og hafa
Bónusfeðgar smám saman eignast þriðjungshlut í fyrirtækinu.
Við söluna á Hagkaup og Bónus fór öll Hagkaupsfjöl-
skyldan út úr fyrirtækinu, þ.e. systkinin Sigurður Gísli, Jón,
Ingibjörg og Lilja og móðir þeirra, Jónína S. Gísladóttir, og
skiptu þau milli sín söluverðinu og eignunum. Sigurð og Jón
langaði til að prófa nýja hluti og eru saman í nokkrum
fyrirtækjum. Sigurður er búsettur í Bandaríkjunum og
sinnir þar ýmsum fjárfestingum, aðallega í smásölu og fast-
eignaviðskiptum fyrir hönd þeirra bræðra. Lilja hefur verið
í listum enda menntaður myndlistarmaður og Ingibjörg
hefur starfað með sambýlismanni sínum, Jóni Asgeiri
Jóhannessyni, í Baugi og Stoðum auk þess að koma upp 101
hóteli í Reykjavík.B!]
Gallery og Eua:
FRUMKVÖÐULLINN
SELDI
Haustið 1999 keypti NTC hf., sem er í eigu Ásgeirs Bolla
Kristinssonar og Svövu Johansen, Evu hf., sem var í eigu
stofnandans, Mörtu Bjarnadóttur, og ijölskyldu hennar. Um
dæmigert ijölskyldufyrirtæki var að ræða þar sem öll fjöl-
skyldan kom að meira eða minna leyti að rekstrinum. Marta
var í hópi frumkvöðla í tískuverslun á Islandi en hún stofnaði
fyrstu verslunina við Laugaveg 28b árið 1970 og byggði fyrir-
tækið upp af miklum krafti. Eva hf. rak tískuverslanirnar Evu
og Gallery við Laugaveg, Centrum í Kringlunni auk hús-
gagnaverslunarinnar Company þegar fyrirtækið var selt.
Marta, ijölskylda hennar og aðrir starfsmenn Evu unnu við
sameinað fyrirtæki fyrst um sinn en síðan flutti Marta með
Marta Bjarnadóttir. Svava Johansen.
ijölskyldu sína utan og eru þau nú búsett í London og dvelja
einnig á Spáni. Samkvæmt bókinni Ríkir íslendingar átti
Þórarinn Olafsson, eiginmaður Mörtu, um 20% hlut í togar-
anum Siglfirðingi um tíma og fékk 150 milljónir króna fyrir
skip plús kvóta þegar hann seldi á sínum tíma. 35
18