Frjáls verslun - 01.03.2003, Blaðsíða 90
Anna Linda Bjarna-
dóttir rekur lög-
mannsstofu sína í
Nýherjahúsinu. Hún
leggur stund á hefð-
bundin lögmanns-
störf, en hefur þó sér-
hæft sig í skattarétti,
bæði íslenskum,
alþjóðlegum og
bandarískum
skattarétti.
Mynd: Geir Ólafsson
Anna Linda Bjamadóttir,
héraðsdómslögmaður
Texti: Vigdís Stefánsdóttir
Anna Linda Bjarnadóttir
er sjálfstætt starfandi
lögmaður, sem rekur
lögmannsstofu sína í
Nýheijahúsinu. Hún leggur
stund á hefðbundin lög-
mannsstörf, en hefur þó sér-
hæft sig í skattarétti, bæði
íslenskum, alþjóðlegum og
bandarískum skattarétti.
,Að reka mína eigin lög-
mannsstofu er eitt það
skemmtilegasta og mest
kreijandi verkefni sem ég hef
tekist á við,“ segir Anna
Linda. „Það stendur allt og
fellur með manni sjálfum."
Þeir eru ekki margir ungu
íslensku lögfræðingarnir sem
hafa kjark og dug til að setja
upp eigin stofu en Anna
Linda segir sérþekkingu sína
vera grundvöll í rekstrinum,
sem hafi skilað sér margfalt
til baka. „Eg legg mikla
áherslu á persónulega þjón-
ustu þar sem umbjóðandinn
hefur alltaf aðgang að mér
þegar hann þarf á þjónust-
unni að halda,“ segir hún.
Anna Iinda lauk stúdents-
prófi frá Verslunarskóla
Islands árið 1992 og embætt-
isprófi í lögfræði frá lagadeild
HI 1997. A námsárunum í
lagadeild vann hún m.a. í Jjár-
málaráðuneytinu og þar
vaknaði áhuginn á skattarétti.
„I rauninni má segja að ég
hafi haft meiri ánægju af því
að vinna við lögfræðistörf
heldur en að læra lögfræði.
Til að byija með fannst mér
lögfræðin vera frekar þurr.
Eftir því sem leið á námið
varð það þó skemmtilegra og
síðustu tvö árin mátti velja á
milli hinna ýmsu kjörgreina
auk þess að skrifa kandidats-
ritgerð. Ritgerðin mín var á
sviði alþjóðlegs skattaréttar
og hallaði um tvísköttunar-
samninga," segir Anna Iinda.
„í náminu kynntist ég eigin-
manni mínum, Ægi Guð-
bjarna Sigmundssyni, sem
vinnur hjá Lögmönnum við
Austurvöll.“
Anna Linda hefur víða
farið og vann einnig á lög-
mannsstofu í Þýskalandi,
sem sérhæfði sig í skattarétti,
og hjá ríkisskattstjóra. Að
námi loknu vann hún hjá
Deloitte & Touche í þijú ár.
„Mig langaði til að sérhæfa
mig meira og fór því um
haustið 2000 til Bandaríkj-
anna í framhaldsnám í skatta-
rétti og lauk mastersgráðu í
skattarétti frá The University
of San Diego. Mér líkaði
mjög vel í Bandaríkjunum.
Námið var kreljandi og
kennslan til fýrirmyndar.
Háskólinn var fámennur
einkaskóli, rekinn af
kaþólsku kirkjunni.
Það sem mér fannst sér-
staklega áhugavert var við-
horf prófessoranna til nem-
enda. Þeir sýndu nemendum
sínum mikinn áhuga, lögðu
nöfn þeirra á minnið og vildu
vita hvert þeir stefndu að
námi loknu.
Anna Iinda segir það fær-
ast í vöxt að umbjóðendur
FÓLK
eriendis leiti til hennar eftir
ráðgjöf, bæði í skattarétti og
öðru. „Islendingum bú-
settum erlendis finnst kostur
að geta leitað til lögmanns á
Islandi og fengið ráðgjöf á
íslensku. Þó svo fólk tali
erlend tungumál þá skilja
ekki allir fagmál. Erlend fýrir-
tæki eru í auknum mæli farin
að leita til mín og sýna áhuga
á viðskiptum eða stofnun
lýrirtækja á Islandi.“
Áhugamál Önnu Lindu
eru margvísleg en hreyfing
er þar efst á blaði. ,Á veturna
förum við hjónin á skíði og
uppáhaldsskíðasvæðið er
Hlíðarfjall á Akureyri. Eg hef
farið til Austurríkis, Italíu og
Bandaríkjanna á skíði og
stefni að því að fara reglulega
í slíkar ferðir. Ur því varð þó
ekki á síðastliðnu ári vegna
barneigna. Sonur okkar,
Viktor Aron, fer vonandi að
geta farið með okkur á skíði
næsta ár eða þar næsta.“
Fyrir utan skíðin hefur
Anna Iinda áhuga á dansi og
hefur verið í ýmsum dans-
skólum og í Kramhúsinu.
„Nú erum við mæðginin
saman í mömmuleikfimi í
World Class og ungbarna-
sundi og höfum gaman af,“
segir hún kankvís. „Fjöl-
skylda mín er mikið hesta-
fólk svo að ég hef stundað
hestamennsku og við hjónin
förum í ferðalög til útlanda
árlega. Af rólegri áhuga-
málum má nefna lestur góðra
bóka og gítarspil en Anna
Linda lærði á gítar sem barn
og hefur haldið því við. ,Að
mínu mati er nauðsynlegt að
eiga sér áhugamál til að slaka
á eftir langan vinnudag í
krefjandi starfi. Það er mjög
auðvelt að gleyma sér í vinnu,
en ég gæti þess að gefa mér
alltaf tíma fýrir fjölskylduna
og áhugamálin,“ segir Anna
Linda að lokum. ffl
90