Frjáls verslun - 01.03.2003, Blaðsíða 53
flUGLÝSINGAR POPPSTJÖRN-
lýsingaherferð í haust áður en
Irafár setti met í diskasölunni í
desember og Birgitta tók þátt í
undankeppni Evróvision-söngva-
keppninnar. Um áramótin var
síðan haft samband við hana. I
auglýsingunum er geíin frískleg,
sportleg og heilsusamleg mynd af
Birgittu að kafa, í „river rafting“,
klifri eða öðrum íþrótta- og úti-
vistargreinum sem geta höfðað til
fólks á öllum aldri og þá ekki síst
yngri kynslóðarinnar.
„Vara sem verður gömul eldist
oft með neytandanum og hættir
að ná til yngri kynslóðarinnar. Rís
er ein elsta framleiðsluvaran hjá
Freyju, hún hefur verið um 4045
ár í framleiðslu og við höfum alltaf
tekið markaðstörn á nokkurra ára
fresti því að við vitum að þetta er
góð vara. Með þessari auglýsinga-
herferð núna erum við að kynna
vöruna fyrir yngra fólki. Við
verðum vör við það í könnunum
að það er sama fólkið sem borðar
Rís og þess vegna erum við að
yngja markhópinn. Það virðist
virka vel,“ segir Ævar.
Gefin er frískleg og sportleg mynd
ingunum.
í Rís-auglýs-
Þegar á herferðina með orkumjólkina
leið kom hins vegar í Ijós að Selma
höfðaði mest til yngra fólksins þó að
meiningin hefði alltaf verið að höfða
til jafnari og stærri hóps í þjóð-
félaginu.
Erlendis geta auglýsendur lent í ýmsum
hremmingum þegar ímynd poppstjörn-
unnar breytist eða markaðsstarfið
bíður hnekki af hennar völdum.
Teiknimyndafígúrur stilltarí
ímynd poppstjarna skiptir miklu
máli. Erlendis geta auglýsendur
lent í ýmsum hremmingum
þegar ímynd poppstjörnunnar
breytist eða markaðsstarfið bíður
hnekki af hennar völdum, t.d. í
dæminu um Britney Spears hér að ofan. Þetta er áhætta sem
fyrirtækin taka. Ævar bendir á að menn séu því í auknum
mæli farnir að nota „teiknimyndafígúrur því að þá er ekki hætt
við að maður missi þær út í einhverja vitleysu. Maður getur
frekar stjórnað þessu,“ segir hann. Ef ímynd poppstjörnunnar
breytist, t.d. með áfengis- eða eiturlyljaneyslu, getur hún
versnað til muna og haft mikil áhrif á markaðsstarfið. Ævar
segir hverfandi líkur á þessu hér þó að auðvitað geti popp-
stjörnur „farið út af sporinu" hér eins og annað fólk. Með því
að gera samning við auglýsandann verður poppstjarnan að
passa upp á ímynd sína með öðrum hætti en áður og í lang-
flestum tilfellum gerir hún það.
Þegar sú ákvörðun er tekin að ráða poppstjörnu til að koma
fram í auglýsingaherferð skiptir miklu máli að valið sé rétt og
að stjarnan höfði til þess hóps sem auglýsingunni er beint að.
Þannig segir Baldur Jónsson, markaðsstjóri hjá Mjólkursam-
sölunni, frá því að fyrirtækið hafi verið í samstarfi við sviss-
neskt fyrirtæki fyrir nokkrum árum við framleiðslu á orku-
„Vara sem verður gömul eldist oft
með neytandanum og hættir að ná til
yngri kynslóðarinnar.“
mjólkinni. Svissneska fyrirtækið
hafi fengið klassískan listamann til
að koma fram í auglýsingum. Hér
á landi hafi Selma Björnsdóttir
hinsvegar verið fengin til að aug-
lýsa vöruna og staðið sig vel. En
þegar á herferðina leið kom í ljós
að Selma höfðaði mest til yngra
fólksins þó að meiningin hefði
alltaf verið að höfða til jafnari og
stærri hóps í þjóðfélaginu.
Gildir líka um fótboltann Erlendis
hafa sum fyrirtæki breytt stefnu
sinni í þá átt að vinna með mörgum
stjörnum. Þannig hefur Pepsi stór-
fyrirtækið í Bandaríkjunum breytt
stefnu sinni á síðustu árum og
bindur sig ekki við eina stjörnu
heldur sfyður almennt áhugamál
ungs fólks. Jón Diðrik Jónsson, for-
stjóri Ölgerðarinnar, segir að Pepsi
hafi ákveðið að fá nokkrar stjörnur
til samstarfs við sig, frekar en að
binda sig við eitt andlit Fyrirtækið
hefur því upp á síðkastið lagt
áherslu á að tengja ímynd sína við
það sem ungt fólk hefur áhuga á,
t.d. fótbolta eins og fór ekki fram-
hjá neinum í fyrra, og þar er fyrir-
tækið til að mynda í samstarfi við
fótboltakappana Ronaldo og Beck-
ham.
Hér á landi hefur Ölgerðin verið
í samstarfi við nokkrar hljóm-
sveitir, t.d. Irafár, I svörtum fötum
og Búdrýgindi, auk íþróttamanna,
og fjármagnar þá auglýsingar fyrir hljómsveitirnar og kaupir af
þeim tónleika. Jón Diðrik segir að yfirleitt sé ekkert kveðið á
um þetta í samningum en Ijóst sé að verðmætin minnki þegar
poppsljarna auglýsir fyrir fleiri en eitt fyrirtæki.
Hreimur, Ragga Gísla... Sælgætisgerðin Freyja er í hópi
þeirra fyrirtækja hér á landi sem hvað oftast hefur fengið popp-
stjörnur til liðs við sig í sínu markaðsstarfi. Fyrir utan Rís-aug-
lýsingarnar hefur Freyja áður fengið Hreim Örn Heimisson,
söngvara í hljómsveitinni Landi og sonum, til að auglýsa Hrís-
kúlur. Af öðrum eftirminnilegum auglýsingum sem popp-
stjörnur hafa tekið þátt í má nefna Ragnhildi Gísladóttur tengja
málningarverksmiðjuna Hörpu-Sjöfn við samnefnt lag Stuð-
manna. Freyja hefur einnig fengið leikara til liðs við sig, td.
þegar Jón Gnarr lék Villiköttinn í auglýsingum fyrir nokkrum
árum. Þá hafa aðrir leikarar komið fram í auglýsingum, t.d.
Helga Braga sem hefur slegið í gegn að undanförnu í auglýs-
ingum Osta- og Smjörsölunnar. ffij
53