Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.03.2003, Qupperneq 38

Frjáls verslun - 01.03.2003, Qupperneq 38
NÁMSKEIÐ RUBINSTEINS Regla eða ringulreið? Efdr Jón G. Hauksson Mynd; Geir Ólafsson Ef þið viljið sneiða hjá vandamálum þá er þetta lausnin: Einbeitið ykkur að því að sjá framtíðina fyrir og færið hana yiir í núið. Það ,4eysir málin“ vegna þess að þau verða aldrei að neinum máltrni." Þetta var eitt af mörgum góðum ráðum sem Moshe Rubin- stein, fyrrum prófessor við Kaiiforníuháskólann í Los Angeles, veitti stjórnendum á tveggja daga námskeiði sem útgáfufélagið Heimur, sem m.a. gefur út Frjálsa verslun, hélt nýlega í sam- vinnu við Háskólann í Reykjavík. Rubinstein, sem er upprunn- inn í Israel, hefur komið nokkrum sinnum til landsins. Hann hélt t.d. afar fróðlegt námskeið á vegum Frjálsrar verslunar vorið 1996. Leiftrandi frásagnargleði Rubinstein var líflegur að venju, byggði námskeið sitt á leiftrandi frásagnargleði og braut það upp með verkefnum fyrir vinnuhópa. Þannig hélt hann athygl- inni. Hann nefndi mörg dæmi um það hvernig skörp framtíðar- sýn hefði hjálpað mörgum fyrirtækjum og „leyst mál“ með því að þau urðu aldrei að neinum málum. Þetta ætti ekki aðeins við um stefnumörkun heldur einnig innra verkferli og skipulag. Að færa framtíðina yfir í núið er sömuleiðis nauðsynleg aðferð við að ráða fólk í vinnu. Þar, eins og annars staðar, er ekki gott að vera vitur eftir á; sjá hlutina ekki fýrir. Mér þótti einkar athyglisvert hvernig hann hvatti menn til að gera sér far um að komast út úr vanahugsuninni. „Verið trum- legir í leit að bestu lausninni, hugsið hlutina frá öðrum vinklum tíl að öðlast nýja og ferska sýn, aðra en þessa vanabundnu." Hann taldi að bestu hugmyndirnar fæddust frekar í ringul- reið en reglu. Rök hans eru að í ringulreiðinni brotni múrar og menn komist út úr viðjum vanans - og leyfi sér frjórri hugsun fyrir vikið. „I ringulreiðinni fæðastyfirleitt bestu lausnirnar." Til að hrinda fersku hugmyndunum í verk þyrftí hins vegar reglu. Þessu tengt er raunar hin gullni frasi í stjórnun um að það sé munur á því að gera réttu hlutina og að gera hlutina rétt Mannleg samskipti Hann kom inn á það hve mannleg sam- skipti geta verið flókin því sínum augum líti hver á silfrið. Innan hópa leggi menn oft ekki sama mat á það sem virðist sáraeinföld mál og þekktar stærðir - og upplifi atburði mjög mismunandi. Af þessu leiði t.d. að verðmætamat seljenda og kaupenda á sömu vörunni geti verið mjög frábrugð- ið og þar með ólíkar skoðanir á ávinningi beggja af viðskiptunum. Þess vegna sé bráðnauðsyn- legt að fyrirtæki hlustí vel á viðskiptavini sína, finni út óskir þeirra og þarfir, og bjóði þeim það sem þeir vilja fá, en ekki bara það sem hentar fyrirtækinu sjálfu - og þægilegast er fyrir það að framleiða. 38 Rubinstein fór mörgum orðum um mikilvægi þess að allir starfsmenn fyndu tíl sín og hefðu eldmóð og áhuga á að leysa úr vanda viðskiptavina, þótt hann væri ekki endilega á þeirra sviði. Hann benti á að ekkert færi eins illa í fólk og að mæta sinnuleysi þegar það hringdi í fyrirtæki. Hver einastí starfs- maður, í hvaða deild sem hann kynni að vera, væri fyrirtækið í augum viðskiptavinarins og það ætti að sinna honum og greiða götu hans. Sambönd mikílvsg Hann nefndi mikilvægi sambanda. Fyrir okkur Islendinga kann þetta að koma á óvart þar sem afiir þekkja alla, tengjast einhvern veginn þvers og kruss, og geta yfirleitt leitað til allra eftír ráðum. En hann vill að menn komi sér upp skipulögðu neti tengsla þar sem þræðir figgi tíl vina og kunningja - sem og til afira átta í viðskiptalífinu. Tilgangurinn væri að geta leitað til mjög ólíks utanaðkomandi fólks tíl að fá ráð. Það væri einu sinni þannig að þeir, sem kæmu utan að, hefðu aðra sýn á vandamálinu en þeir sem fengjust við hlutina frá degi til dags. Þeir dyttu því oft niður á eitthvað „frumlegt og galið“ sem innanbúðarmönnum kæmi ekki til hugar. (Með öðrum orðum: Það er meiri ringulreið í hugsun þeirra utanað- komandi við lausn vandamála innan fyrirtækja). Að lokum þetta. Þegar Rubinstein hóf kennslu við Kali- forníuháskóla fyrir mörgum árum gekk hann ásamt konu sinni eitt kvöldið um hverfið tíl að skoða hús í fimm mínútna göngu- leið frá skólanum. Ekkert hús var tíl sölu. Hann beið ekki eftír því að eitthvert hús þarna kæmi á söluskrá eftír svo og svo mörg ár. Hann fann gott hús, hringdi á dyrabjöllunni og kvaðst vilja kaupa húsið. Hann var fluttur í það nokkrum vikum síðar. Hann færði framtíðina yfir í núið - og losaði sig í leiðinni við eril og ótal umferðarhnúta næstu ára við að komast í skólann. Hann leystí málið með því að gera það aldrei að neinu máli. H3 Moshe Rubinstein, fyrrum prófessor við Kaliforníu- háskólann í Los Angeles: í ringulreið- inni fæðast yfirleitt bestu lausnirnar.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92

x

Frjáls verslun

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.