Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.03.2003, Síða 43

Frjáls verslun - 01.03.2003, Síða 43
YFIRHEYRSLA GRÍMUR SÆIVIUNDSEN staða í heimi. Yið erum að stórbæta þjónustu okkar. Miklar framkvæmdir eru á döfinni. Við erum að undirbúa byggingu framleiðsluhúss sem er stoðstarfsemi við alla okkar vörufram- leiðslu. Við þurfum að tryggja og styrkja hráefnisvinnsluna. Að öðrum starfsþáttum ólöstuðum er heilbrigðisþjónustan, þar sem sjúklingum með psoriasis er sinnt, merkilegasti starfs- þátturinn. Við höfum rekið þessa starfsemi í tæp níu ár í bráða- birgðahúsnæði og nú er mjög aðkallandi að komast í varanlega aðstöðu. Við höfum unnið að því að byggja meðferðarstöð ásamt gistiaðstöðu fyrir 40 gesti til að byija með. Kostnaðar- áætlun vegna þessa verkefnis hljóðar upp á 400 milljónir króna. Þetta hefur verið mitt hjartans mál undanfarin misseri. Ekkert verkefiii myndi styrkja betur ímynd Islands sem heilsu- og lækningalands. Þessi tvö verkefni eru bæði aðkallandi, löngu tímabær og mikilvæg fyrir framhaldið. Síðast en ekki síst er verkefni um uppbyggingu heilsulindarhótels. Það er gríðarlega fjárfrekt verkefni sem tæplega kemur til framkvæmda fyrr en effir nokkur ár. Allir eru sammála um að hótelrekstur eigi framtíð fyrir sér í Bláa lóninu og við höfum verið að skoða ýmsar leiðir að fjármögnun. Samkvæmt uppbyggingaáætlun þýskra ráðgjafa er gert ráð fyrir 150 herbergja fjögurra stjörnu hóteli með sérstöku baðlóni og sérstakri heilsulindarþjónustu." - Þetta kostar marga milljarða! ,Að hótelinu meðtöldu. En uppbygging heilbrigðisþjónustunn- ar, framleiðsluhúsið og uppbygging við heilsulindina er ljárfest- ing upp á 800 milljónir króna sem þarf ekki að tjármagna alla með eigin fé, heldur blöndu af eigin fé, lánsfé og hugsanlega framlögum frá hinu opinbera vegna heilbrigðisþjónustunnar.“ - Hveijir eiga Bláa lónið? „Stærstu eigendur eru Hitaveita Suðurnesja, Nýsköpunar- sjóður, Flugleiðir, íslenskir aðalverktakar og 01ís.“ - Hafið þið hug á að fá inn erlenda fjárfesta? „Við höfum að undanförnu skoðað möguleika þess að fá erlenda tjárfesta að félaginu en öflug starfsemi við Bláa lónið er grunnurinn að öflugri útrás. Við hefðum t.d. viljað rann- saka lífrikið nánar. Það getur kallað á möguleika til samstarfs við erlend lytjafyrirtæki á sviði húðlækninga þannig að við erum að skoða það að afla ijár gegnum erlenda aðila. Eg mæti skilningi og áhuga þegar ég kynni málefni okkar hér heima en innlendir áhættutjárfestar eru með tjármuni sína bundna í verkefnum sem þeir komast ekki út úr. Þrátt fyrir vaxandi bjartsýni er íslenskur Jjárfestingamarkaður frosinn. Þess vegna höfum við velt fyrir okkur að afla Jjár erlendis til útrásar og uppbyggingar Bláa lónsins." - Hver var velta, hagnaður og tap Bláa lónsins í íyrra? „Veltan í Jýrra nam 578 milljónum króna, hagnaður var 77 milljónir og EBITDA var 80 milljónir. Að því gefnu að ytri aðstæður verði hagfelldar og ferðamannastraumur verði með eðlilegum hætti er rekstur heilsulindarinnar, sem nú skapar mestar tekjur og framlegð, nokkuð tryggur. Við erum bjart- sýn á áframhaldandi vöxt í framtíðinni.“ - Hvernig líst þér á stefnu ferðamálayfirvalda í mark- aðssetningu Islands erlendis? „Mér finnst að það þurfi að stórefla markaðsrannsóknir með tilliti til þess hvaða ímynd Island hefur og hvaða áhrif við viljum hafa á þá ímynd gagnvart þeim markhópum sem við skilgreinum. Eg held að það megi á margan hátt gera mark- aðsstarfið markvissara. Það er fyrst nú sem stjórnvöld eru farin að taka til hendinni og setja fjármuni inn í þennan mála- flokk og er það vel.“ - Trúnaðarbrestur varð fyrir tæpum tveimur árum í stjórn LyJjaverslunar Islands. Er gróið um heilt? „Valdabarátta átti sér stað í LyJjaverslun Islands vorið og sum- arið 2001. Delta blandaðist inn í þá baráttu og það varð mjög alvarlegur trúnaðarbrestur milli manna. Eg varð undir í þess- ari valdabaráttu og það hefur ekki enn tekist að beija í brest- ina. Eg tel að flestir séu sammála um að hagur hluthafa LyJja- verslunarinnar sé nú verri en ella í kjölfar þessarar valdabaráttu. En lífið heldur áfram.“ - Mér skilst að þú hafir hugmyndir um að fiæra rekstur Vals meira í átt til fyrirtækjareksturs? ,Að vinna í fyrirtæki og félagasamtökum er eins og svart og hvítt. I fyrirtæki tekur maður ákvarðanir og ber ábyrgð á þeim. I félagasamtökum er það heildin sem ákveður hvernig málum er skipað. Eg tók við formennsku í Val sl. haust. Við settum á fót stefnumótunarnefnd sem mun skilgreina starfsemina og gera tillögur um hvernig Valur á að sinna hlutverki sínu með þarfir félagsmanna í huga. En þetta er í getjun og ég sé Jýrir mér að það taki allt þetta ár að spekúlera og velta fyrir sér hlutum. Síðan verða félagsmenn að ákveða hvernig þeir vilja sjá Val í framtíðinni.“ - Stjórnvöld hafa gjarnan komið íþróttafélögum til björgunar. Finnst þér það eðlilegt? „Stjórnvöld eiga að koma með öflugri hætti að daglegum rekstri íþróttafélaga og þá sérstaklega barna- og unglinga- starfi. I Val fer mestur tími foreldra í að rukka æfingagjöld til að borga þjálfurunum laun - ekki til að efla félagastarfið. Sér- menntaðir einstaklingar eiga að vinna innan félaganna og launin eiga að vera greidd af sveitarfélögunum. Hafnfirðingar borga ákveðna Jjárhæð fyrir hvert barn sem stundar íþróttir. Þetta er málaflokkur þar sem Reykjavíkurborg þarf að taka verulega til hendinni. Foreldrarnir eiga að nota sinn tíma til að efla félagsstarfið og vera með börnunum. Annað er fráleitt í mínum huga.“ S3 Sjá nærmynd um Grím á næstu opnu. 43
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92

x

Frjáls verslun

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.