Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.03.2003, Side 44

Frjáls verslun - 01.03.2003, Side 44
Grímur og eiginkona hans, Björg Jónsdóttir, eru í gönguklúbbnum Labbabörum. Eldhuginn Margir muna eftir Grími Sæmundsen úr fót- boltanum fyrir 20 árum eða félagsstarfi á vegum Vals og ekki hafa færri tekið eftir honum í tengslum við upþbyggingu Bláa lónsins. Grímur er í nærmynd Frjálsrar verslunar að pessu sinni. Eftir Guðrúnu Helgu Sigurðardóttur Myndir: Ur einkasafni Grímur Sæmundsen, framkvæmdastjóri Bláa lónsins, er áræðinn, ákveðinn og vinmargur maður, eins og Eðvarð Júlíusson, stjórnarformaður Bláa lónsins, orðar það, en þeir hafa unnið saman í 11 ár. Hann er metnaðargjarn, dug- legur og atorkusamur maður sem er ákaflega mannblendinn. Hann er hæfileikaríkur og afburða námsmaður enda fór hann létt í gegnum læknisfræðina á sínum tíma. Hann áttaði sig þó fljótlega á því að hann fengi ekki nógu mikla útrás í starfi sem læknir og fór því að leita á mið viðskiptanna. Grímur er afskaplega orkumikill maður og fullur vilja til þess að láta gott af sér leiða og hafa áhrif á umhverfi sitt. Hann vill hafa mörg járn í eldinum og sagt er í gríni að honum líði ekki vel nema að hafa bókað tvo fundi á sama tíma, slíkur er áhuginn og viljinn til að koma miklu í verk. Hrífur fólk með Sér Grímur er sagður duglegur og drífandi, hugmyndaríkur og kraftmikill hugsjónamaður og eldhugi sem vill stýra og stjórna eftir sínu höfði. Hann getur verið „aggressívur", eins og stundum er sagt, en er jafnframt hlýr og yndislegur maður og góður vinur. Hann er keppnismaður og þolir illa að tapa. Bróðir hans, Ari Sæmundsen, fram- kvæmdastjóri Gróco, segir að á æskuárunum hafi fótbolti átt hug Gríms allan. Hann hafi einnig spilað handbolta um tíma en ákveðið svo að helga sig fótboltanum. Grímur fékk mikla útrás fyrir keppnisskapið og tókst að virkja það til góðs. Hann er fyrirliði að eðlisfari og á auðvelt með að hrífa fólk með sér. Hann er þó ekki allra. Hann er sagður afskaplega ákveðinn, jafnvel frekur, og ekki mikið fyrir málamiðlanir en hlustar og getur tekið rökum. Hann þykir skemmtilegur í rökræðum. Hann er eldhugi sem á það til að rjúka áfram án þess að hafa hugsað málin til hlítar en hann hefúr haft lag á að velja með sér samstarfsmenn sem halda honum við jörðina þegar þörf krefur. Samstarfsmenn hans læra fljótt að láta í sér heyra. Anna G. Sverrisdóttir, aðstoðarframkvæmdastjóri Bláa lónsins, segir að Grímur sé góður stjórnandi, frjór og dríf- andi. Hans meginstyrkur sé frumkvöðlakrafturinn og hug- myndaauðgin. Hann stoppi ekki lengi í einu, það sé aldrei „dauð stund í kringum hann“ en hann treysti samstarfsfólki sínu til að vinna úr hugmyndum sínum. Hann geri miklar kröfur en sé jafnframt hvetjandi. „I þessi rúm átta ár sem ég hef þekkt hann hefur hann vaxið sem stjórnandi og lært meira að hlusta á menn. Hann fylgist vel með því sem er að gerast, er fljótur að tileinka sér hlutina og skilja þróunina á sínu sviði. Oftast gleymi ég því að hann er læknismenntaður, það er manni ekki ofarlega í huga þvi að hann er svo sjóaður í viðskiptum og þannig þekki ég hann rneira," segir hún. 44

x

Frjáls verslun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.