Frjáls verslun - 01.03.2003, Page 54
Sigurður Valtýsson, framkvæmdastjóri MP-verðbréfa, er gestapenni Frjálsrar
verslunar að þessu sinni.
Markmib slíkra fyrirætlana, par
sem allir starfsmenn eru þátttak-
endur í bónuspotti, er að hvetja til
liðsheildar, auka kostnaðarvitund
og að hvetja starfsmenn til að láta
sig varða ýmis atriði sem þeir
horfðu ekki áður á.
Eftír Sigurð Valtýsson Mynd: Geir Olafsson
Mikið hefur verið rætt og skrifað um
launagreiðslur æðstu stjórnenda að
undanförnu og ber að fagna reglum
Kauphallar Islands um aukna upplýsinga-
gjöf þar að lútandi sem taka gildi 1. júní nk.
Ekki er þó ætlunin að ijalla hér eingöngu
um æðstu stjórnendur heldur einnig hina
almennu starfsmenn og árangurstengdar
greiðslur þeim til handa. Kjör starfsmanna
geta verið byggð upp á mismunandi hátt,
þ.e. með föstum launagreiðslum og síðan
afkomutengdum bónusgreiðslum því til
viðbótar.
Helsta markmið fyrirtækja er að öllu jöfnu
að skila góðri afkomu til hluthafa svo og að
halda starfsfólki ánægðu, eins og svo oft er
lýst yfir við hátíðleg tækifæri. Ein leið til þess
er að tengja árangur fyrirtækisins beint við
launaumslög starfsmanna.
Hwatt til liðsheildar Markmið slíkra fyrir-
ætlana, þar sem allir starfsmenn eru þátttak-
endur í bónuspotti, er að hvetja til liðsheildar.
Skýr markmiðasetning hvetur starfsmenn til
dáða. Kostnaðarvitund eykst innan íýrir-
tækisins og starfsmenn eru meðvitaðir um
Arangurstengt
bónuskerfi
54