Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.03.2003, Page 61

Frjáls verslun - 01.03.2003, Page 61
STJÓRNUN FUNDIR Fyrir réttinum. Réttarþjónninn talar við vitni og dómarann sem engan veginn er nógu ánægður með gang mála hjá Jóni. Jón vaknar í fangafötunum. Það minnir hann á drauminn og hann leggst niður aftur til að undirbúa fundinn sem hann á að mæta á síðar um daginn. þurfi því að vinna vinnuna sína fyrir og eftir sinn fasta vinnu- tíma. Gunna slekkur ljósið og fer að sofa og fljótlega fer Jón að halla sér. Hann tekur að dreyma að hann sé fyrir rétti, ákærð- ur fyrir að stýra fundi án undirbúnings og umhugsunar, láta ekki fundarmenn vita tilganginn með fundinum, fylgja ekki dagskrá, stjórna umræðum illa og skrá ekki niðurstöður funda. Ef rétt reynist þá er um að ræða alvariega tímasóun að Gefðu upplýsingar Stjórnendahópurinn er á fundi. Fundar- menn hafa ekki fengið að vita um tilgang fundarins. Dagskrárheitið „Boðskipti innan fyrirtækisins“ er svo óljóst að eng- inn leggur sömu merkinguna í það. Einn heldur að ijalla eigi um tölvumálin í fyrir- tækinu og annar um nýtt skiptiborð meðan tilgangurinn er að Jjalla um það hvernig eigi að kynna afkomu fyrirtækis- ins fyrir hópstjórum. Allir eru hálfhlæj- andi og vandræðalegir yfir mistökunum og klúðrinu og málinu er frestað til föstu- dags því að enginn hefur undirbúið sig fyrir þetta mál. Svona gengur allur fund- urinn, Jón fundarstjóri er orðinn mjög stressaður og uppstökkur en fundar- mennirnir brosa út í annað og hafa þetta í flimtingum, spyija hvort það sé ekki að minnsta kosti eitt mál sem hægt væri að afgreiða á þessum fundi. Þegar það kemur í ljós að fundar- stjórinn er sjálfur illa undirbúinn með sitt mál er fundinum frestað. Niðurstaðan: Arangurslaus fundur sem aldrei hefði átt að halda. I réttinum ver Jón sig og segist hafa verið með dagskrá en dómarinn segir hana bara hafa verið minnis- yfirlögðu ráði og hindrun ákvarðanatöku. Fyrir réttinum er Jón látinn rifja upp nokkur slæm mistök, t.d. vikulegan stjórnendafund þar sem hann mætti alltof seint. Einn fundarmanna óskaði eftir því að sín mál yrðu fyrst tekin fyrir því að honum lægi á. Fundurinn fór þó stjórn- laust af stað frá upphafi, engin dagskrá lá fyrir og fundarmenn æddu úr einu mál- efni í annað þar til þeir voru orðnir þreyttir og ómögulegir og einn þeirra tók af skarið og stóð upp. Það er ljóst að fund- inum hefði átt að fresta þar sem ekkert umfjöllunarefni lá fyrir. Dómarinn spyr hvernig hefði farið ef þetta gengi svona fyrir sig í réttinum og í myndbandinu er sýnt hversu mikið klúður það hefði verið. Lærdómur: Nauðsynlegt er að hafa umhugsun og eðli- legan undirbúning fyrir fund. Partur af því er að kanna hvort hægt sé að afgreiða málin með öðrum hætti en fundi. Ekki er nógu gott að taka dagskrána saman á fundinum. Hana þarf að undirbúa fyrir- fram um leið og fundarstjórinn kynnir sér möguleg umijöllunarefni svo að öllum sé ljóst hvað á að taka fyrir á fundinum. 61

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.