Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.03.2003, Síða 66

Frjáls verslun - 01.03.2003, Síða 66
HEILSfl OG UELLIÐAN (reyndar víða erlendis einnig) er megrunarkúr sem felur í sér að lítið sem ekkert er borðað af kolvetnum en því meira af próteinum og fitu. Fyrir þá sem elska kjöt er þetta draumakúr. Og merkilegt nokk, karlar eru mun líklegri til að prófa hann en konur... Því er ekki að neita að ansi mörg dæmi eru um góðan árangur og fólk sem árum saman hefur þjáðst af offitu og ýmsum óþægindum hennar vegna er alsælt og mörgum kílóum léttara. Einn þeirra er Gylfi Magnússon fiskverk- andi: „Þegar umræðan um bókina fór af stað ákvað ég að prófa þennan kúr þar sem ég hafði árum saman verið í vanda vegna offitu," segir Gylfi. „Eg hafði verið lengi vel yfir 100 kíló og leið oft illa, var þróttlaus, kraftlaus og átti við síþreytu að stríða. Eg tel víst að mikið brauð- og sykurát hafi átt sinn þátt í þessari vanlíðan því þegar ég hóf kúrinn breyttist líðanin. Tveimur mánuðum eftir að ég byijaði á honum er ég 10 kg léttari og mér líður margfalt betur. Eg er einnig laus við brjóstsviða sem ég hef þjáðst af árum saman. Meðalhófið er best í mataræði eins og öðru. Hæfileg hreyf- ing og smávegis aðhald í bland virka til þess að fólk sé í hæfilegri þyngd. Mynd: Golf á íslandi Fyrirhafnarlaus megrun? Tískan breytist og mennirnir með og það sem álitið var eðlilegt og jafnvel eftirsóknarvert, að vera í góðum holdum, er í dag bannað vegna vondra áhrifa á heilsuna. Fitan, sem á fyrri tímum þegar fólk lifði um það bil 20-40 árum skemur, þýddi einfaldlega að konan hafði efni á að borða og átti afgangsforða þó svo hún eignaðist börn og þyrfti að mjólka þeim - var sem sagt góður kvenkostur - merkir í dag að hún hreyfir sig ekki nóg og lifir sennilega styttra en jafnaldri hennar sem passar holdafarið. Umræður um megrun og megrunarkúra eru í enda- lausum hring. Einn daginn má ekki borða fitu, annan daginn er það í lagi en kolvetni eru bannvara. Stundum eru bananar töfraorð, ef ekkert er borðað nema bananar grennist fólk hratt og vel. Það koma upp töfrakúrar sem byggja á því að drekka sérstaka (rándýra) drykki sem innihalda eiga öll næringarefni sem líkaminn þarfnast en aðeins hluta af hitaeiningunum, fólk á að borða sérstakan mat í samræmi við blóð- flokkinn og svo framvegis. Allir þessir kúrar eiga það sameiginlegt að nær- ingarfræðingar hrista hausinn yfir þeim og mæla varnaðarorð gegn þeim. Minna á að meðalhófið er best og að hæfileg hreyfing ásamt því að borða skynsamlega, hvorki of né van, er besta leiðin til þess að grennast og halda sér grönnum. Ég fer eftír töflu í bókinni sem segir tíl um kolvetnainnihald ýmissa matvæla og borða ekkert sem inniheldur hveití og sykur. Dæmigerður morgunverður hjá mér er vanilluskyr með rjóma og í hádeginu borða ég gjarnan grænmeti af einhverju tagi og í kvöldmat stóran skammt af kjötí eða fiski með græn- meti. Reynslan er sú að eftir nokkra daga á kúrnum hætti ég að finna tíl svengdar stöðugt og er bara mjög ánægður með þetta þar sem megrunin hefur komið alveg fyrirhafnarlaust." Hvað með aukaverkanir? Auðvitað eru skiptar skoðanir um kúra eins og þennan og heyrast raddir bæði með og á móti. Þeir sem andmæla kúrnum segja rannsóknir sýna að kólesterólmagn hækki verulega eftir nokkra daga á slíkum kúr og að álagið á nýrun sé gífurlegt þegar prótein er í svo miklum meirihluta í fæðunni. Líkaminn þarfnast kolvetna tíl orkufram- leiðslu og ef hann fær ekki kolvetni úr matnum leitar hann inn á við og býr til glúkósu sjálfur og notar til þess mikla orku. Við það að búa til þessa orku framleiðir líkaminn einnig aceton (sama efni og er í naglalakkseyði) og það er stundum hægt að finna lyktina af þeim sem hafa verið lengi á slíkum kúr. ElSka kjöt... Nýjasti kúrinn og sá sem nú tröllríður íslensku þjóðfélagi GíBi &kverka Mynd úr einkasafni Meðalhófið best Þegar allt kemur til alls er líklega best að fylgja skynseminni og borða í samræmi við orkuþörfina hverju sinni. Sá sem vill grennast þarf að hreyfa sig meira og borða minna, svo einfalt er það. Það er nefnilega sam- ræmi á milli þess sem fer inn um munninn og þess sem safnast utan á mann! ffl 66
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92

x

Frjáls verslun

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.