Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.11.2004, Page 39

Frjáls verslun - 01.11.2004, Page 39
munu peningamir koma til þess að flármagna þessi útlán?“ (Mbl. 4. desember 2004) Á ársfundi Seðlabankans í mars sagði Birgir ísleifur að útlána- þensla sem að mestu væri fjármögnuð erlendis væri áhyggjuefni, bæði fyrir tjármálalegan stöðug- leika og verðbólgumarkmið Seðlabankans. Varfærinn Það þarf ekki að koma neinum sem þekkir Birgi ísleif á óvart að hann skuli hvetja til varfæmi, enda er honum gaman lýst sem mjög varfæmum manni. Orðin grandvar, heiðarlegur, vandvirkur og vinnusamur koma sífeilt upp í við- ræðum við samferðamenn hans. Olafur G. Einarsson, formaður bankaráðs Seðlabankans og gamall samherji úr Sjáifstæðis- flokknum, tekur undir það að Birgir ísleifur sé mjög varfærinn maður og láti ekkert frá sér nema að vel athuguðu máli. Hann sé fráleitt maður glannalegra yfirlýsinga. „Birgir hekir reynst mjög farsæll í sínu staríi sem seðlabankastjóri og afsannað rækilega þá kenningu að Seðlabankinn sé gejonslustaður fyrir afdankaða stjómmálamenn. Hann hefur sýnt að hann er mjög hæfur til að takast á við þetta starf.“ Árið 1991 var sú staða uppi að Jóhannes Nordal var að hætta sem seðlabankastjóri og mönnum var umhugað að finna frambærilegan mann í starfið sem mundi sýna ábyrga stjóm. Eins og áður er getið hefur ráðning stjóm- málamanna í stöðu seðlabankastjóra verið mjög umdeild en þegar Birgir hætti þing- mennsku og varð seðlabankastjóri einsetti hann sér strax að taka starfið föstum tökum og hrinda öllum hrakspám. Virðist það hafa tekist enda samdóma álit þeirra sem FV hefur rætt við að Birgir Isleifur hafi staðið sig piýðilega í starfi seðlabankastjóra. Þykir hann afar vinnusamur og setur sig vel inn í öll mál. Hann er ekki hagfræðingur að mennt en sérfræðingar á því sviði hrósa margir Birgi fyrir að hafa lagt sig fram um að setja sig inn í fræðin og taka á málum á faglegum grunni. Þá hefur það auðvitað hjálpað honum hafa trausta menn sér til halds og trausts. „Birgir Isleifur hefur ekki verið að trana sér fram í þessu starfi en hann hefur heldur ekki látið sig hverfa eins og sumir sem viilust eingöngu sinna innri rekstrarmálum bankans og hafa áhuga á golfi eða lax- veiði. Hann hefur heldur ekki verið með umdeildar yfirlýsingar eins og dæmi eni um enda er Birgir frekar feiminn maður. Hann hefur einfaldlega reynt að skilja hag- fræðina og setja sig inn í hana,“ sagði gamall samferðamaður Birgis. NÆRMYND Hefðbundin leið upp stigann Birgir Isleifur er fæddur 19. júlí 1936, er krabbi. Hann fékk snemma áhuga á stjómmálum enda afmiklu sjálfstæðis- fólki. Faðir hans, Gunnar Espólín Benediktsson, var lögfræðingur og forstöðumaður ráðningarskrifstofu Reykjavíkurborgar þegar borgin var mun stærri vinnustaður en í dag. Þá þurftí að útvega mörgum mönnum vinnu og sem embættísmaður á þeim tima þótti faðir Birgis hafa töluverð völd. Til að gera langa sögu stutta fór Birgir afar hefðbundna leið upp metorðastigann í stjómmálum, þ.e. í Heimdail, MR, Samband ungra sjálf- stæðismanna, lögffæði í Háskólanum og í Vöku. Birgir var formaður í SUS 1967 og átti þá samleið með mönnum eins og Lámsi Jónssyni, fyrrverandi alþingismanni, Ragnari Kjart- anssyni, fyrrverandi forstjóra Hafskips, Björgólfi Guðmundssyni, stjómarformanni Landsbankans, Ellerti B. Schram, forseta ÍSÍ, Olafi B. Thors, fyrrverandi forstjóra og forseta borgarstjómar, VaU Valssyni, fyrrverandi bankastjóra, Styrmi Gunnarssyni ritstjóra, Halldóri Blöndal, forseta alþingis, Herði Sigurgestssyni, fyrrverandi forstjóra Eimskips, og fleirum. Margir þessara manna em nánir vinir Birgis í dag og við þann hóp má bæta Olafi G. Einarssyni og Guðmundi H. Garðarssyni, en báðir hafá veitt töluvert með Birgi og bera honum vel söguna við árbakkann. Hann þykir slyngur veiðimaður. Þá er ótaUnn Jón G. Tómasson, fyrrverandi borgarritari. Birgir er giftur Sonju Backman og eiga þau Ijögur böm, Björgu Jónu, Gunnar Jóhann, lögmann og mikinn sjáifstæðis- mann, og tvíburana Ingunni MjöU og Iilju Dögg. Þó að Birgir búi yfir miklum mannkostum þykir hann frekar feiminn og lítt gefinn fyrir athygU. Er fullyrt að honum líði ekki aUtof vel í fjölmenni en á því ber hins vegar ekki þar sem hann kann sína etíkettu, er kurteis og fágaður í framkomu. Enda margreyndur á sviði stjómmálanna. Birgir Isleifur varð stúdent frá Menntaskólanum í Reykjavik 1955, þótti þar prýðisn- emandi, og útskrifaðist úr lagadeild Háskólans 1961. Hann var framkvæmdastjóri Sambands ungra sjálfstæðismanna 1961- 1963 og rak síðan lögmannsstofu 1963-1972, nánar tiltekið að Lækjargötu 6. Þar var Úlfar Þórðarson augnlæknir einnig með aðstöðu og á loftínu steig Halldór Einarsson sín fyrstu skref með fyrirtæki sitt, Henson. „Það má segja að Birgir ísleifur hafi verið fyrirmyndarsjálfstæðismaður enda fór hann hina klassísku leið upp virðingarstigann. Við bætist að hann hefur alla tíð verið mikiU flokksmaður og afar trúr flokknum," segir gamaU sam- ferðarmaður Birgis. Erfðaprinsinn Birgir Isleifur bauð sig fram til borgarstjómar árið 1962 og varð því borgarfuUtrúi 26 ára gamaU. Hann þóttí snemma mjög frambærilegur stjómmálamaður þó hann færi ekki fram með neinum látum frekar en fyrri daginn. / Olafur G. Einarsson: „Birgir hefur reynst mjög farsæll í sínu starfi sem seðlabankastjóri og afsannað rækilega þá kenningu að Seðlabankinn sé geymslustaður fyrir afdankaða stjómmálamenn." Guðrún Helgadóttir: „Hann er harðgreindur maður og prúðmenni í alla staði, stálheiðarlegur en hefur kannski ekki haft þá „nabba“ á olnbogunum sem þarf til að vera í pólitík." 39
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.