Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.11.2004, Page 68

Frjáls verslun - 01.11.2004, Page 68
EGGERT MAGNÚSSON, FORMAÐUR KSÍ: Uið bættust tvö barnabörn að lítur út fyrir að rekstur KSÍ hafi gengið vel á árinu og muni skila ágætum hagnaði eins og undanfarin ár. Nú eru að hefjast framkvæmdir við stækkun og endurbætur á Laugardalsleikvanginum, sem mun ljúka í ágúst næstkomandi. Það stendur upp úr að glæsilegt nýtt aðsóknarmet var sett á Laugar- dalsvelfinum í ágúst þegar ítalska landsliðið komu í heimsókn. Rúmlega 20.000 manns mættu í frábæru veðri og upplifðu einstakan og skemmtilegan viðburð. Ef litið er á það neikvæða þá er mér er efst í huga slakur árangur A-liðs karla í byrjun undan- keppni HM 2006. Væntingamar vom talsverðar. Þá vom vonbrigði með þrjá síðustu leiki A-liðs kvenna í undankeppninni fyrir EM 2005, þar sem draumurinn um úrslita- sæti ijaraði út eftir mjög góða frammistöðu lengst af. Eg horfi bjartsýnum augum á komandi ár og það er mikið um að vera. Framkvæmdir við Laugardalsvöll, sparkvalla- átakið á fullri ferð, leyfis- kerfið fyrir Landsbankadeildina sem að mínu mati bætir mjög afian rekstur félaganna og gerir hann markvissari, auk þess að bæta mannvirkin og alla aðstöðu fyrir áhorfendur, fjiilmiðla og aðra. Knattspyman á Islandi mun enn aukast að vinsældum á árinu 2005. KSÍ og félögin í Lands- bankadeildinni hafa sett sér mjög háleit mark- mið um markaðssetningu knattspymunnar á næstu ámm. Unnið verður skipulega og mark- visst eftir fyrirfram ákveðnum leiðum til að auka vinsældir og áhorfendafjölda á leikjum í Lands- bankadeildinni. I einkalífinu er ég hamingju- maður og enn jókst á það ríki- dæmi þegar við bættust tvö barnaböm, tveir heilbrigðir og fullskapaðir fínir strákar. Það gleymist stundum í asa og ákafa hins daglega lífs hvað það er sem gefur lifinu mest gildi. Góð, samhent og hamingjusöm ijölskylda er í mínum huga það verðmæt- asta í lífinu.S!] BJORG INGADOTTIR, FATAHÖNNUÐUR í SPAKSMANNSSPJÖRUM: Samstíga hjón í gifsi í sex vikur Þess er helst að minnast að mikil ánægja er hjá mér yfir því að Völu, hinum helming Spaksmannsspjara, tókst að hætta að reykja á árinu. Annars var ég nokkuð ánægð með árið. Við eigum alveg frábæra við- skiptavini og gott starfsfólk. Ferðamönnum Qölgar alltaf og þeir kunna vel að meta hönnun okkar. Varðandi árið 2005 er ég nokkuð bjartsýn. Mörg spennandi verkefni sem við emm að vinna að lofa góðu. Vonandi gengur vel í fatahönnun í heild en hafa ber í huga að þetta er mjög ung grein og margt er ólært ennþá. Spaksmannsspjarir er ekki gamalt fyrirtæki en er þó með elstu fyrirtækjum landsins í þessari grein. Hvað mig sjálfa varðar þá var sumarið frábært. Utan þess held ég að það verði okkur hjónunum minnisstæðast frá árinu 2004 að við lentum bæði í því að vera í gifsi í sex vikur á sama tíma út af algjörlega óskildum málum. Eg á báðum fótum en hann á öðmm fæti. Talandi um samstíga hjón. H3
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.