Frjáls verslun - 01.11.2004, Blaðsíða 70
Greinarhöfundur, Heiðrún Jónsdóttir, er lögmaður hjá LEX lögmannsstofu
Eftirlitsskylda
stjórnarmanna
Undanfarið hefur oft verið rætt um eftirlitsskyldu stjómarfor-
manns. Mikilvægt er að hafa í huga að hún hvíhr á allri stjóminni
og aðrir stjómarmenn geta ekki firrt sig ábyrgð með því að vísa á
stjómarformanninn.
Textí: Heiðrún Jónsdóttír Myndir: Geir Olafsson
Eftirlitsskylda stjórnarmanna og
stjórnarhættir fyrirtækja hafa
verið í brennidepli, m.a í kjölarið
á nokkram hneykslismálum erlendis.
Gríðarlegir ijármunir hafa tapast og era
afleiðingamar m.a. raktar til þess að eftír-
litskerfi virkuðu ekki sem skyldi.
Mest hefur verið rætt um eftírlits-
skyldu stjómarformanns, en mikilvægt
er að hafa í huga að hún hvflir á allri
stjóminni og aðrir stjómarmenn geta
ekki firrt sig ábyrgð með því að vísa á
stjómarformanninn. I þeim tilvikum þar
sem stjómarformaðurinn fer með sér-
stök verkefifi fyrir félagið, hvort sem þeir
era svokallaðir starfándi stjómarmenn
eða ekki, þá ber að líta svo á að enn
ríkari eftírlitsskylda hvfli á öðrum stjómar-
mönnum, sér í lagi með þeim verkethum
sem stjómarformaðurinn sinnir.
Ábyrgð stjórnarmanna skv. lögum
Ábyrgð stjómarmanna á rekstri félaga
hefur verið virk í íslenskum réttí í áratugi.
Akvæði um ábyrgð stjómarmanna er að
finna í lögum um hlutafélög og einka-
hlutafélög og hana er einnig að finna í
dómaframkvæmd. Abyrgð getur einnig
fallið á stjómarmenn vegna brota félags-
ins á sérlögum, s.s. skattalögum og sam-
keppnislögum. Abyrgð stjómarmanna er
víðtæk og getur í stórum og flóknum
félögum verið flókin. Gróflega má þó
skipta ábyrgðinni í 2 flokka, þ.e. annars
vegar eftirlit með bókhaldi og meðferð
flármuna félagsins, sbr. 3. mgr. 68. gr.
laga um hlutafélög (hfl.), og hins vegar
efdrlit með því að skipulag og starfsemi
félags sé jafnan í réttu og góðu horfi, sbr.
1. mgr. 68. gr. hfl.
a. Eftirlit með bókhaldi og meðferð
íjfirmuna fékigsins
3. mgr. 68. gr. hfl.
Félagsstjóm skal annast um að nægi-
legt eftirlit sé haft með bókhaldi og með-
ferð jjármuna félagsins. Framkvæmda-
stjóri skal sjá um að bókhald félagsins
sé fært í samræmi við lög og venjur og
meðferð eigna félagsins sé með tryggi-
legum hœtti.
Stjóm félags ásamt framkvæmdastjóra
fer með stjóm félagsins. Þessir aðilar
skipuleggja almenna verkferla innan
70