Frjáls verslun - 01.11.2004, Page 88
imsM
Harrods
og fll Fayed
Harrods stórverslunin er skrautleg um jólaleytið en saga Mohammed A1 Fayeds,
eiganda þess, er ekki síður skrautleg. Þegar hann keypti sjálft stoltið, Harrods, þótti
mörgum Englendingum fokið í flest skjól.
Textí og myndir: Sigrún Davíðsdóttír
Þegar Egyptinn Mohammed A1 Fayed keypti hið erki-
enska vöruhús Harrods, tákn alls þess sem enskt er, þótti
mörgum að fokið væri í flest ensk skjól. En það er ekki
aðeins að Fayed ráði yfir átta þúsund starfsmönnum í Englandi,
eigi Fulham fótboltaliðið og Ritz hótelið í París. Hann heldur líka
her lögfræðinga önnum köinum og dregur á eftir sér langan
slóða dómsmála.
I nóvember sl. var honum dæmdur málskostnaður upp á
rúmlega ijórar milljónir punda, þegar þrír dómarar höfnuðu
kröfum hans vegna málareksturs, sem á rætur að rekja til 1995,
því frekari málaferli væru sóun á almanna- og einkafé. Um sama
leyti þurfti hann að greiða Jean Tigana, tyrrum framkvæmda-
stjóra Fulham, þijár miiljónir punda í miskabætur í kjölfar
málshöfðunar. Skattamál Fayeds eru annar málaslóðinn, að
ógleymdum viðvarandi meiðyrðamálum við fjölmiðla. Fayed
hefur aldrei fengið breskt vegabréf þó hann haíi búið í Englandi
í tæp 40 ár. Hann kallar Filippus drottningarmann „tíkarson“ og
nasista, sem hafi stýrt samsæri um að myrða son sinn og Díönu
prinsessu 1997 - en er svo spar á upplýsingar um sjálfan sig að
hann er margsaga um aldur sinn. Þegar dómari spurði af hveiju
hann hefði bætt A1 í nafn sitt sagði hann það engu skipta. Dómar-
inn gæti kallað sig Fayed eða A1 Capone ef hann vildi!
Hinn upphaflegi HaiTOd Hinn upphaflegi Harrod var heildsalinn
og tekaupmaðurinn Charles Henry Harrod, sem bætti við sig
lítilli nýlenduvörubúð í Knightbridge 1849. Mjór var mikils vísir
og 40 árum síðar unnu 200 manns í
búðinni við að selja svipað vöruval og í
dag, mat, föt, skartgripi, snyrtivörur og
húsgögn. Upp úr aldamótunum 1900
var núverandi útlit að komast á búðina
og Harrods orðin stærsta búðin í borg-
inni með 91 deild og 2000 starfsmenn
um leið og nærliggjandi hús voru
smám saman lögð undir verslunina.
Harrods hefur orðið fyrst með margar
nýjungar, til dæmis rúllustiga.
Harrods-verslunin er við hina þekktu
verslunargötu Knightsbridge. Þar má
sjá olíufursta á eðalvögnum mæta
til leiks.