Frjáls verslun - 01.11.2004, Page 114
mm
Eskimo til
Indlands
Þær Asta Eristjánsdóttír og Bjamey Lúðvíksdóttír, eigendur Eskimo
models, eru að opna skrifstofu á Indlandi. Þá er Eskimo með
skrifstofú í Síberíu. En hvers vegna í ósköpunum að nema land í
löndum eins og Síberíu?
Eftír Isak Öm Sigurðsson Mynd: Geir Ólafsson
Við erum á leiðinni til Bombay á Indlandi þar sem
við áformum að dvelja í þijá mánuði og opna
umboðsskrifstofu fyrir leikara, áhugaleikara og
fyrirsætur á þeim stóra markaði sem þar er,“ segja
þær Asta Kristjánsdóttir og Bjamey Lúðviksdóttir,
tvær af eigendum fyrirtækisins Eskimo.
Islenska fyrirtækið Eskimo hefur nokkra reynslu
af því að starfa erlendis, t.d. íTékklandi og Rússlandi.
Árið 1998 dvaldi Asta um nokkurra mánaða skeið í
Síberíu þar sem fyrirtækið opnaði skrifstofu í sam-
vinnu við evrópska ijárfesta og gengur sú skrifstofa
vel að þeirra sögn. „Sami hópur og vann saman í
Síberíu hefur gert sams konar hluti viðar, í Brasilíu,
Tékklandi og Slóveníu, og skrifstofur í þessum löndum eru í
nánu samstarfi við Eskimo á Islandi,” segir Asta.
Eskimo var stofnað í Reykjavík fyrir tæpum 10 árum og
stækkaði fyrirtækið nokkuð hratt. Arið 2000 var það sameinað
öðru fyrirtæki, Casting, sem starfaði á sama markaði en lagði þó
megináherslu á annars konar þjónustu. Nú má skipta starfsemi
Eskimo í nokkra meginþætti. Fyrirtækið útvegar viðskipta-
vinum sínum fyrirsætur í verkefni hér heima og erlendis, það
býður íslenska leikara, áhugaleikara og fólk á öllum aldri í aug-
lýsingar og kvikmyndir, íslenskar og erlendar, auk þess sem
Eskimo er umboðsaðili fýrir ljósmyndara, förðunarfræðinga
og stílista. „Eftírspum eftir sliku fagfólki hefur reyndar aukist
mikið upp á síðkastið meðal útlendinga sem koma tíl Islands tíl
að vinna að verkefnum, enda er íslenskt fagfólk í háum gæða-
flokki,“ segja þær Asta og Bjamey. Eskimo stendur einnig fyrir
ýmsum námskeiðum; framkomu- og fyrirsætunámskeiðum,
förðunamámskeiðum og leiklistamámskeiðum.
Sameining Styrkti Stöðuna „Eskimo rekur umboðsskrifstofu
fyrir fyrirsætur af báðum kynjum og hjá fyrirtækinu fá auglýs-
Fyrirtækið útvegar
viðskiptavinum sínum
fyrirsætur í verkefni hér
heima og erlendis, það
býður íslenska leikara,
áhugaleikara og fólk á
öllum aldri í auglýsingar og
kvikmyndir, íslenskar og
erlendar.
inga- og kvikmyndagerðamenn, skipuleggjendur tískusýninga
og viðburða, margþætta þjónustu á einum stað. Viðskiptavinur-
inn getur þannig bókað í einu símtali fyrirsætu, leikara og bam
í auglýsingu, ljósmyndara og förðunarfræðing. Okkar markmið
er að bjóða góða þjónustu og tryggja þannig ánægða viðskipta-
vini,“ segir Asta.
En hvemig kom það til að lítið fyrirtæki á Islandi hóf útrás á
sínum tíma og kom á fót skrifstofu í Síberíu? „Fyrir 6 ámm hafði
ijárfestir samband og vildi í samstarfi við okkur opna þar skrif-
stofu. Það varð úr og sú skrifstofa hefur gengið ágætlega eftir
opnun. Hún er frá degi til dags rekin af heimamönnum, en þau
vinna náið með Eskimo í öðmm löndum," segir Asta. Hún segir
að Síbería sé mjög spennandi staður og í raun mun Jjölbreyttari
en margir halda þegar kemur að mannflómnni. „Þar er mikið af
fólki og af öllu tagi, enda hafa Ijölmargar góðar iyrirsætur verið
uppgötvaðar þar sem gengið hefur vel í New York, París, Tókýó
og London. I Síberíu leggjum við einungis áherslu á að finna
samninga fýrir rússneskar Jýrirsætur á stómm mörkuðum, en
skrifstofan á Islandi vinnur hins vegar á miklu fleiri sviðum,“
segir Asta. I Síberíu starfa um 15 manns á aðalskrifstofunni, en
114