Morgunn - 01.12.1969, Page 29
MORGUNN
111
Fyrst nokkrum mánuðum seinna kom staðfesting á þessu
og tilkynning um, að dauða Jan Plesmans hefði borið að
höndum eins og Krah-Zeht hafði sagt.
Fimm árum síðar, þegar Plesman hafði endurreist K.L.M.,
bar aðra sýn fyrir hugskotssjónir Krah-Zeht. Þetta gerðist
21. júní 1949. Hann sagði áhyggjufullur:
,,,Ég sé hræðilega sýn og hef sterka tilfinningu fyrir því, að
annar sonur Plesmans muni bráðlega farast í flugslysi. Dr.
Fenhaeff, sem hann mælti þessi orð við, skráði strax um-
mæli hans, en hafði vitanlega ekki orð á þeim. En tveim
dögum síðar fórst flugvél hjá Bari á Italíu, þar sem Hans
Plesman var flugstjóri, og komst enginn lífs af. Hafði Albert
Plesman þá misst tvo syni sína í flugslysum og Krah-Zeht
séð bæði slysin fyrir.
Krah-Zeht hefur undanfarin ár unnið með Rannsóknar-
lögreglunni í Hollandi, við að upplýsa ýmis glæpamál. Svo
mikið orð hefur farið af þeirri starfsemi, að hróður hans
hefur borizt vítt um lönd, og hann hefur verið fenginn til
annarra landa, m. a. til Ameríku, og er mikill sægur til af
vottfestum skýrslum, þar sem honum hefur, með dularhæfi-
leikum, tekizt að komast til botns í þeim málum.
Þá er eitt ótalið, og það eru börnin, sem týnzt hafa. Sagt
er, að hvergi njóti skyggnigáfa Krah-Zeht sín betur en þeg-
ar hann hefur verið beðinn um að skyggnast eftir týndum
börnum. Þegar hann var spurður að því, hvers vegna þetta
lægi svo létt fyrir honum, yppti hann aðeins öxlum og svar-
aði: ,,Ég á sjálfur fimm börn. Hvað skiptir meira máli í ver-
öldinni en að finna barn, sem hefur týnzt?“
Á öllum tímum sólarhringsins má hann búast við að vera
ónáðaður, svo sem nú skal greina: Klukkan tvö um nótt
barði lögregluþjónn í Utrecht að dyrum hjá honum til að
segja honum frá áríðandi samtali, sem hann hafði þá átt við
lögregluna í Nijmegen, 50 mílur í burtu.
Tveir bræður voru týndir, annar 8 ára en hinn 11 ára.
Grútsyfjaður svaraði Krah-Zeht lögregluþjóninum undir
eins í dyragættinni: ,,Ég sé tvo drengi sofandi í hlöðu rétt