Morgunn


Morgunn - 01.12.1969, Page 61

Morgunn - 01.12.1969, Page 61
MORGUNN 141 Eftir miðdag þennan sama dag (23 febrúar) kom fólk frá Hallgilsstöðum. Það var: Björn bóndi Guðmundsson, Guð- rún dóttir hans, Valgerður Friðriksdóttir, Árni Benedikts- son og 2 drengir ófermdir. Aðalsteinn var þá ekki kominn frá Dal; kom ég því fram í bæjardyr til fólksins, og sagði þvi, að húsfrereyja bæði það að gera svo vel að koma inn; fór ég svo með því í eldhúsið, því þá var nýlega búið að velta stein- unum þar fram á gólfið, kom svo Ragnheiður þar og bauð því að halda til baðstofu og gekk sjálf á undan stúlkunum, og voru þær komnar allar fram fyrir eldhúsdyrnar, en við þrír: ég, Björn og Árni í eldhúsinu. Heyrðist þá afarhátt högg eða smellur í þili milli búrs og eldhúss, og var enginn maður þar nokkurs staðar nálægur, nema þeir, sem taldir eru, allir afbæjarmenn nema Ragnheiður; en þaðan, sem hún stóð, gat hún ekki myndað högg þetta eða smell á nokk- urn skiljanlegan hátt. Ekki fundum við neitt, er kastað hefði verið. Eftir að fólk þetta var komið inn í baðstofu, var bjórkippu kastað yfir þilið, það er aðskilur eldhús og bæjardyragang- inn; vorum við Björn þá við baðstofudyrnar og hlupum strax fram, en urðum einskis vísir. Litlu síðar kastaðist kanna af borði í frambaðstofu 2 til 3 álnir frá borðinu í gólfið og fór í smátt; var þá ekki hægt að kenna ketti eða nokkrum manni um það. Líka var kastað bramaflösku, kúskel og ýmsu fleiru á gólfið, en alltaf með nokkru millibili, en enginn, sem inni var, þó baðstofan væri full af fólki, gat séð nokkurn mann í sambandi við hreyfingar þessar. Fólkið fór svo heim; var þá kastað kassa úr eldhúsinu, um leið og það var að fara af stað, á jafn óskiljanlegan hátt. Um kvöldið á vökunni kom Þorsteinn búfræðingur Þór- arinsson í Dal, og litlu síðar þeir búfræðingar Þorlákur Stefánsson í Dal og Jóhannes Árnason á Gunnarsstöðum og barnakennari Halldór Benediktsson á Hallgilsstöðum og Stefán Guðmundsson á Gunnarsstöðum. Sáu þeir allir eða heyrðu eitthvað, er þeir ekki skildu; tveir af þeim sáu vatns-
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114

x

Morgunn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.