Morgunn


Morgunn - 01.12.1969, Side 76

Morgunn - 01.12.1969, Side 76
156 MORGUNN þá sjálfum sér og öðrum til gagns og nytja, en ekki til tjóns og bölvunar. Ég þarf ekki að rekja það mál nánar hér. Það á að vera öllum augljóst, sem um það nenna að hugsa. Og þetta sér hver lifandi maður fyrir sér daglega, ef hann hef- ur augun opin. Það er grátlegt að þurfa að horfa á það dag- lega, hvernig menn, bæði yngri og eldri, eyða peningunum, ekki bara í fánýti og hégóma, heldur beinlínis til þess að eyðileggja framtíð og gæfu bæði sína og sinna og valda með því meira tjóni og fleiri tárum en tölu verður á komið. Og þetta er því ömurlegra og átakanlegra vegna þess, að mögu- leikarnir eru hvarvetna fyrir hendi, bæði fyrir einstaklinga og þjóðir, að nota peningana til þess að afla þeirra verð- mæta, sem eru óendanlega mikilsvirði, nota þá til þess að stuðla að friði og farsæld mannanna í stað ófriðar og eyði- leggingar, nota þá til menningar og mannbóta, nota þá til að seðja hungur þeirra, sem svelta, og til hjálpar þeim, sem þurfandi eru, í stað þess að eyða þeim í smíði eldsprengja og tunglflauga. Og ef við lítum okkur sjálfum nær. Biða ekki þúsund verkefni í þessu litla þjóðfélagi í menningar-, mannúðar- og líknarmálum, svo eitthvað sé nefnt, bíða vegna þess að fénu er sóað í fánýti og hégóma? Og að því er sjálfan þig varðar og þitt eigið líf.Er það ekki göfgun þíns eigin hugarfars, þroski þinnar eigin sálar í góðleik, umburð- arlyndi, trúarbjartsýni og kærleika, sem starfar í verki og framkvæmd, sem mestu varðar? Eru það ekki einu verð- mætin, sem þú getur flutt með þér héðan, þegar þú ferð í þína hinztu för? Allan annan farangur verður þú að skilja eftir — líka peningana, ef þeim hefur þá ekki líka verið þegar sóað í fánýtið eða verra en það. Það er til smásaga eftir rússneska skáldsnillinginn Leo Tolstoj. Hún segir frá heimskum manni, sem varði langri ævi til þess fyrst og fremst að afla sér peninga með misjafn- lega heiðarlegu móti ekki síður en hann Koðrán bóndi á Giljá. Hann safnaði sínum peningum í einn sjóð og sóaði þeim ekki. Hann gerði sér bókstaflega aldrei grein fyrir því, að hvarvetna blöstu við möguleikar til þess að verja
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114

x

Morgunn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.