Morgunn


Morgunn - 01.12.1997, Side 72

Morgunn - 01.12.1997, Side 72
Af blöóiim Silfur-Birkis Tilgangur okkar með því að snúa aftur frá okkar heimi til ykkar er eingöngu sá að vekja athygli ykkar á raunveruleika andans. Svo einfalt er það. Við gætum auðveldlega leitt hjá okkur heim ykkar og athafnir. Það er ekkert sem neyðir okkur til þess að ganga í lið með ykkur og þið getið ekki á nokkurn hátt neytt okkur til þess að veita ykkur athygli. Við leggjum þetta sjálfviljug á okkur vegna þess að okkur þykir vænt um ykkur og allt mannkyn og þráum að hjálpa ykkur. Það mætti jafnvel með nokkrum rétti segja að nokkurrar eigingirni gæti í kærleika okkar vegna þess að við höfum séð svo marga koma til okkar heims sem óhæf, mannleg reköld, ekki reiðubúin og illa útbúin. Þetta verður svo miklu auðveldara ef þau læra lexíur sínar á þeim stað þar sem þeim var ætlað að læra þær, í skóla jarðarinnar. Oft kemur bakslag í það starf sem við erum öll þátttakendur í. Við þurfum að fást við mannlegar verur sem þvi miður eru of oft fullar af veiklyndi og breysk- leika, stolti og hégómaskap, hleypidómum og þrjósku. Of fáir vilja setja þjónustuna ofar sjálfinu, uppsprettuna ofar manneskjunni. Ef þið horfið tilbaka, þá munið þið sjá 70 MORGUNN

x

Morgunn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.