Morgunn - 01.12.1997, Síða 87
Afangaskýrsla rannsóknanefndar SRFI
3) Könnun á árangri huglækna hjá SRFÍ og er hér um að
ræða áframhald könnunar sem Geir R. Tómasson hafði
áður undirbúið.
4) Hugsanleg áhrif huglækna á vissar filmugerðir.
5) Undirbúningur og úrvinnsla sérstakra sannanafunda.
6) Athugun á myndum er kona noklcur hér í bæ, málar
ósjálfrátt og að því er hún telur, með aðstoð að handan.
Tákna þær eðli og gerð ákveðins fólks og tilfinninga.
Myndirnar eru margslungnar og fylgja þeim skýringar.
7) Skráning fortíðarminninga ungs barns, er mundi fyrri
líf óvenju vel.
8) Tilraunir með manni er getur haft óvenjuleg áhrif á
málmhluti með hugarorku einni saman.
9) Athugun, og e.t.v. efnagreining, á málverki, sem á féll
ókennileg bleik slikja, að því að talið er fyrir álirif dul-
rænnar manneskju.
Þessi upptalning er að sjálfsögðu nokkuð yfirborðs-
kennd, enda tel ég ekki rétt að fara nánar út í þessar hug-
myndir hér, að svo komnu máli. En af því, sem nefndin
hefur þegar framkvæmt og er nú með í undirbúningi, má
ljóst vera að hún gæti haft sér sitthvað til dundurs, ef
henni leiddist á síðkvöldum. Það er reyndar skoðun okkar,
sem í nefndinni störfuðum þetta árið, að stór hluti þess,
sem við höfum þegar unnið og vinnum að, sé enn aðeins
grundvöllur og heimildasöfnun til frekara starfs. Hér er
MORGUNN 85