Saga - 1954, Síða 27

Saga - 1954, Síða 27
21 til sögulegra atburða eða staðið í einhverju sambandi við þá. Merki ferða þessara má sjá í gestabók klaustursins í Reichenau í Bodenvatni. Þar eru 39 nöfn manna frá íslandi, sem hafa gist klaustrið á suðurgöngu, allt nöfn óþekktra manna og kvenna (ísl. fornbr.safn I. 171). Má sjálfsagt leiða þá ályktun af þessu, að talsvert meira hafi kveðið að suðurgöngum héðan af landi en ráðið verður beinlínis af inum íslenzku heimildarritum. Inir fyrstu íslenzkir menn, sem að sögn hafa farið pílagrímsferð suður og austur í lönd, munu þeir vera kristniboðarnir Stefnir Þor- gilsson og Þorvaldur Koðransson. í Kristnisögu (ísl. sögur I. 273) segir, að þeir hafi fundizt „eftir hvarf Ólafs konungs“ (Tryggvasonar), er ætti því að hafa verið skömmu eftir 1000, og hafi þeir báðir farið saman víða um heiminn og allt út í Jerúsalem, en þaðan til Miklagarðs og svo til Kænugarðs ins eystra (Kiew) eftir Nepr (Dnjepr). Hafi Þorvaldur andazt austur í Russia skammt frá Paltneskju (Pallteskaja) og liggi hann grafinn í f jalli einu. Til sönnunar því er vísað til vísu einnar eftir Brand „inn víð- förla“, sem virðist hafa verið íslenzkur maður, en er annars óþekktur: Hefik þar komit, es Þorvaldi Koðranssyni Kristr hvíldar lér. Þar es hann grafinn í há fjalli upp í Drafni at Jóhannis kirkju. En um Stefni segir svo, að hann hafi þá farið „norðr í Danmörk". Þar hafi hann ort níðvísu um Sigvalda jarl Strút-Haraldsson:
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Saga

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Saga
https://timarit.is/publication/775

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.