Saga - 1954, Blaðsíða 53
47
sönnunar er tilfærður eftirfarandi kveðlingur,
sem faðir hennar á að hafa kveðið til hennar
í æsku:
Augun þín eru eins og stampar,
í þeim sorgarvatnið skvampar,
■ ofan með nefi kiprast kampar,
en kjafturinn eins og á dreka.
Mér kemur til hugar kindin mín
að koma þér fyrir hjá Léka.
Þessi saga er svo ótrúleg, að merkilegt má
heita, að henni skyldi vera trúað, jafnvel á
hinni mestu hjátrúar- og hindurvitnaöld, sem
yfir landið hefur gengið. 1 fyrsta lagi mundi
enginn faðir yrkja þessu líkt um sitt eigið
barn, enda þótt í gáska ætti að vera. Og í öðru
lagi mundi enginn faðir vilja barni sínu svo illt,
að nafn þess yrði bendlað við fjölkynngi, því
að það var beinlínis lífshættulegt á þeirri öld,
og hefði séra Jóni mátt verða það minnisstæð-
ur atburður, er fyrsti maðurinn var brenndur
fyrir galdra á Islandi, en hann var einmitt úr
kirkjusókn hans. Gerðist það að vísu rúmum
áratug áður en hann kom að Tjörn, en samt er
ekki líklegt, að hann hefði viljað stuðla að því,
uð dóttir hans gæti átt slíkan dauðdaga í vænd-
um, auk smánarinnar, sem því fylgdi.
Á Völlum í Svarfaðardal var um þessar
mundir prestur að nafni Jón Egilsson. Kona
hans var Þuríður Ólafsdóttir lögréttumanns í
Gnúpafelli. Eitt af börnum þeirra var sonur að
nafni Árni, talinn fæddur um 1630. Fór hann
í Hólaskóla og lauk þaðan stúdentsprófi tvítug-
ur árið 1650. Síðan var hann nokkur ár sveinn
Gísla sýslumanns Magnússonar (Vísa-Gísla) og