Saga - 1954, Blaðsíða 43

Saga - 1954, Blaðsíða 43
37 koma til Noregs úr Rómför (Flateyjarbók IV. 105). Merkileg er í þessu efni sögnin af Auðuni. inum vestfirzka (íslendingasögur V. 392—394). Hann kemur til Noregs á dögum Haralds harð- ráða (d. 1066), fer þaðan til Danmerkur og gef- ur Sveini konungi Úlfssyni bjarndýr, sem hann hefur haft með sér af Grænlandi. Tjáir hann Sveini konungi, að hann hyggi á suðurgöngu, og kallar konungur það „gott ráð“. Lætur sag- an konung fá Auðuni „silfr mjök mikit“ til ferðarinnar. Bjarndýrið, sem þó hefur senni- lega verið húnn, var sjálfsagt eigi lítilla launa vert, því að það hefur víst verið talin gersemi eigi lítil. Auðun fer síðan suður „með Rúmferl- um“ og kemst til Rómaborgar, enda segir ekki af dvöl hans þar. En á heimleið tók hann sótt mikla og gerðist févana, svo að hann verður að troða stafkarls stíg og biðja sér matar. Kemst hann þó norður til Danmerkur og er þá „kollótr ok heldr ósællegr". Þorir hann eigi að ganga fyrir konung í fyrstu, er hann sér glæsibrag- inn á konungi og hirð hans, og matast úti, „sem siðr er til Rómferla, meðan þeir hafa eigi kastat staf ok skreppu“. Sögn þessi sýnir, þótt hún kunni að vera æfintýr eitt, háttu almennra píla- gríma um þær mundir, sem hún er skráð. Þeir fara gangandi og oft eða oftast í hópum með staf í hendi og poka á baki og biðja sér matar. Þeir taka oft sóttir á ferðinni, megrast og verða einatt illa haldnir, „kollóttir ok ósællegir", eins og það er orðað í sögninni. í Laxdælasögu 78. kap. segir, að Gellir Þor- kelsson og Guðrúnar Ósvífursdóttur að Helga-
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Saga

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Saga
https://timarit.is/publication/775

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.