Saga - 1954, Page 49

Saga - 1954, Page 49
43 Magnússon berbeins fór til Jórsala mikinn leið- angur, sem Snorri segir frá í Heimskringlu, sögu Sigurðar Jórsalafara. I för með Sigurði konungi kunna nokkrir fslendingar að hafa ver- ið fleiri en um er vitað. Þrjú íslenzk skáld hafa kveðið um konung og ferðalag hans, en ókunn- ugt mun vera, hvort nokkurt þeirra hefur tekið þátt í förinni. Hins vegar er kunnugt um einn íslenzkan mann, sem með Sigurði konungi var í Jórsalaför hans, Hermund Þorvaldsson frá Vatnsfirði (Sturlungas. I. 26). Um miðja 12. öld fór Rögnvaldur jarl kali af Orkneyjum og Erlingur skakki af Noregi, ásamt mörgum gildum mönnum, til Jórsala. Sagt er, að með Rögnvaldi jarli hafi verið tveir menn, Ármóður skáld og Oddi inn litli Glúmsson, sem líka var skáld. Hjaltlenzkir eru þessir menn kallaðir sumstaðar, en íslenzkir annarstaðar (Orkneyingasaga, Kbh. 1913—1916 bls. 221). Ef þeir hafa verið íslenzkir, þá er hér dæmi um Jórsalaferð fslendinga. Hefur ferð þeirra Rögn- valds jarls tekizt vel og orðið allfræg. Er ferða- saga þeirra allnákvæm og krydduð mörgum vís- um eftir Rögnvald jarl og áðurnefnd tvö skáld, auk annarra. Kunnasti íslendingurinn, sem sagt er, að hafi farið til Jórsala í fornöld, er Aron Hjörleifs- son. Hefur hann farið för þá einhvern tíma ná- lægt 1230, að því er virðist. Hafði Aron verið gerður sekur skógarmaður eftir Grímseyjar- fund árið 1222 og komizt til Noregs eftir all- mikla hrakninga hér á landi. Hafði hann fengið hirðvist með Skúla jarli. Eftir vetrardvöl þar beiddist Aron fararleyfis, með því að hann hefði heitið Jórsalaför. Tók jarl því seint, en Aron

x

Saga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Saga
https://timarit.is/publication/775

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.