Saga - 1954, Page 58

Saga - 1954, Page 58
52 að jafnvel líf hans lægi við. Er Ari prófastur Guðmundsson á Mælifelli furðu fáorður um mál séra Árna í annál sínum, en auðséð er þó, að ekki hefur hann trúað verulega á galdrarykti það, sem á hann var borið. „Kona hans Ingi- björg meintist helzt völd að því, sem manni hennar var kennt“, segir í annálnum, og síðan koma slúðursögur að austan um galdra hennar, sem síðar miklu eiga að hafa gerzt. Er lang- sennilegast, að þetta sé innskot Gísla Konráðs- sonar, sem afritaði annálinn. Til Englands fer séra Árni vegna þess að Þorsteinn bróðir hans hafði setzt þar að og kvænzt, og mun hann hafa vonazt eftir athvarfi hjá honum. En líklega hefur hann annað hvort verið dáinn, er séra Árni kom út, eða hann ekki náð sambandi við hann, því að samkvæmt því, sem áður er getið, virðist séra Árni hafa lent á vonarvöl úti og líklega dáið af hrakningi. Þegar séra Árni flýr til Austurlands, hefur hann sennilega tekið alla fjölskyldu sína með sér og fjármuni. Hefur hann staðnæmzt að Nesi í Loðmundarfirði, því að þar er Ingibjörg kona hans talin búa eftir að hann fer til Englands, og síðan býr þar Þuríður dóttir þeirra. Eftir burtför séra Árna af landinu og dauða hans er eins og galdraáburðurinn leggist með öllum sínum þunga á madömu Ingibjörgu og síðar á sum af börnum þeirra. Hvort það hafa verið hinir nýju sveitungar þeirra, sem standa fyrir söguburðinum, er ekki vitað, en ósjálfrátt koma manni í hug vísuorð skáldsins frá Hall- freðarstöðum, sem rúmum 200 árum síðar flutt- ist að Nesi í Loðmundarfirði og orti þar þessa alkunnu stöku:

x

Saga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Saga
https://timarit.is/publication/775

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.