Saga - 1954, Side 68

Saga - 1954, Side 68
62 nefnd ákvæði Kristinréttarins voru ekki úr lög- um numin með siðaskiptunum. En eftir að in hörðu refsimæli stóradóms um hórdóm og frænd- semispell og sifja voru komin til framkvæmd- ar, jókst auðvitað freisting kvenna til þess að komast hjá barnsfaðernislýsingu, ýmist með því að neita alveg að lýsa nokkurn föður að barni sínu, eða þá að lýsa einhvern óþekktan mann föður, eða jafnvel að staðhæfa, að þær hefðu aldrei karlmann kennt, eins og Þórdís Halldórsdóttir gerði.1) Hefur þá skjótt þótt þörf á að herða nokkuð ákvæði 9. kap. Kristin- réttarins. Kemur sú hugsun í ljós í samþykkt alþingis 1574, er sýnist vera endurtekin 1578,2 3) þar sem svo er mælt, að konur, sem ekki vilja segja til feðra barna sinna, skuli vera rétt tekn- ar undir þá refsing, sem dómur dæmir eftir at- vikum, hverja kynning þær hafa hver í sínu héraði. Breytingin, sem á verður samkvæmt al- þingissamþ. 1574 og 1578 frá ákvæðum 9. kap. Kristinréttarins, var því fólgin í því, að húð- látsrefsing mátti dæma, í stað þess að synjun um faðernislýsingu varðaði aðeins 3 marka sekt áður. Þegar kona fæddi barn utan hjónabands, þá hefur það lengstum verið venja, að ljósmóðir og sóknarprestur krefði hana skýrslu um barns- föður. Um þá meðferð, sem hafa skyldi, ef kona neitar að segja til faðernis, var samþykkt gerð á alþingi 1594,8) sem er til fyllingar og skýr- ingar alþingissamþ. 1574 og 1578. Slíka konu 1) Sbr. Sögu I. 268 o. s. frv. 2) Alþb. I. 236, 352. 3) Alþb. II. 417.

x

Saga

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Saga
https://timarit.is/publication/775

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.