Saga - 1954, Side 69

Saga - 1954, Side 69
63 skyldi prestur hennar áxninna þrisvar, en ef áminningar hrífa ekki, þá skyldi bannsetja kon- una samkvæmt kirkjuskipuninni frá 1537. Þó að þessi aðgerð sé kölluð bannsetning, þá var hún mjög svo öðruvísi en in forna bannsetning í katólskum sið, því að hún var einungis fólgin í synjun heilagrar kvöldmáltíðar. Konan var „sett út af sakramentinu", svo sem það var nefnt. Þessi meðferð var að vísu aðilja til mik- illar ófrægðar og mátti sjálfsagt verða þeim, sem fyrir henni varð, til sálarháska að þeirra tíma skilningi. Ef konan vildi þá ekki betra sig, þá kom til innar veraldlegu refsingar, því að þá skyldi hún sek 3 mörkum og verða útlæg af landsfjórðunginum, enda skyldi húðláti varða, ef hún galt ekki sektina. Svo er að sjá sem ákvæði þau um barnsfeðr- un, sem nú hafa verið nefnd, hafi varla þótt nægilega áhrifamikil, enda hafa menn víst stundum tregðast við að beita þeim,1) einkum þegar konur áttu í hlut, sem sátu í skjóli vold- ugra manna. Dæmi þess ljóst er mál Þórdísar Halldórsdóttur, sem stóð yfir fullan áratug.2) Kona þessi synjaði fyrst með öllu samfara við karlmenn, enda þótt hún hefði barn fætt, og lét sig ekki fyrr en henni var hótað pyndingum samkvæmt inni ólöglegu skipun hirðstjórans. En þó að beinlínis pyndingar væru aldrei lög- heimilaðar, þá hefur ekki þótt mega við ákvæði þau hlíta, sem rakin hafa verið. Fyrir því var svo mælt í bréfi konungsefnis, er þá fór með konungsvald í Danmörku, 12. des. 1625, að kon- 1) Sbr. t. d. Alþb. V. 807-309. 2) Sjá Sögu I. 361 o. s. frv.

x

Saga

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Saga
https://timarit.is/publication/775

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.